Morgunblaðið - 20.04.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
S
ólrún Mjöll Kjart-
ansdóttir, 16 ára stúlka
úr Laugarneshverfinu í
Reykjavík, var nýlega
valin trommari Músík-
tilrauna 2012 en þetta er í fyrsta
skipti í 30 ára sögu keppninnar
sem kona hlýtur þennan titil. Hún
er trommuleikari hljómsveit-
arinnar White Signal sem kosin
var hljómsveit fólksins í almennri
símakosningu Músíktilrauna á
Rás2.
Kom mjög á óvart
Sólrún tók nýlega þátt í
trommukeppninni ,,Hit like a Girl“
en sú keppni er haldin í Bandaríkj-
unum og er markmið hennar að
hvetja stelpur til að tileinka sér
trommuleik. Keppendur voru vald-
ir með hjálp netkosningar.
,,Ég endaði ekki í einu af 20
efstu sætunum í keppninni en það
er allt í lagi. Ég hafði bara gaman
af því að taka þátt og fékk fullt af
atkvæðum. Um 580, held ég,“ segir
Tónlistin og vinirnir
eru númer eitt
Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, trommuleikari í unglingahljómsveitinni White
Signal, var valin besti trommuleikarinn í Músíktilraunum árið 2012. Í kjölfar
þess keppti hún í bandarískri keppni kvenkyns trommuleikara. Sólrún Mjöll byrj-
aði að spila á trommur fyrir um fimm árum og kom titillinn henni á óvart.
Taktviss Sólrún Mjöll Kjartansdóttir hefur spilað á trommur í um fimm ár
og var valin besti trommuleikarinn á Músíktilraunum í ár.
Það er hægt að gleyma sér nærri
endalaust yfir því að skoða falleg föt.
Skoða, spá og spekúlera og láta sig
dreyma. Skemmtilegt er að kíkja inn á
vefsíður stærri verslana úti í heimi um
þetta leyti og sjá hvað er framundan
hjá þeim í tískunni. Sumir eru á leið út
fyrir landsteinana en aðrir geta
kannski nýtt sér að panta fatnað á
netinu.
Massimo Dutti er spænsk tísku-
verslanakeðja sem rekur 573 verslanir
í 51 landi. Verslunin er verðflokki ofar
en H&M en þó er verðið alveg sæmi-
lega viðráðanlegt. Fatnaðurinn er
hannaður í anda sjálfstæðra karla og
kvenna sem lifa hinu „dæmigerða“
stórborgarlífi og eru heimsvön. Þar
með eru fötin þægileg en um leið
smart og falleg. Bara úrvalið af klútum
frá Massimo Dutti er nóg til að rugla
mann í ríminu. Klútakvíði tekur völd
og á endanum er maður búinn að velja
sér fimm uppáhalds. Leðurjakka í
ýmsum sniðum og litum má líka finna
hjá Massimo Dutti og skó með svo fal-
lega háum hælum að mann hreinlega
svimar.
Yngsta kynslóðin er heldur ekki
skilin út undan en undir merkjum Mas-
simo Dutti eru líka hannaður barna-
fatnaður á stráka og stelpur. Sjón er
sannarlega sögu ríkjandi og hægt að
finna sér margt fallegt og litríkt í
þessari verslun fyrir komandi sumar.
Vefsíðan www.massimodutti.com
Glæsileg Fyrirsæta í klæðnaði frá hinu spænska Massimo Dutti.
Spænsk sumartíska
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Klukkan var að ganga eitteftir miðnætti og ég varein vakandi. Sat uppi írúmi og las, með aðra vin-
konuna hrjótandi við hlið mér og
hina einhvers staðar langt undir
sæng á bedda hinum megin í her-
berginu. Skyndilega heyrði ég
ógreinilegt hljóð, leit upp og hlustaði
um stund en þá var það farið. Hélt
áfram að lesa en eftir smástund
heyrði ég það aftur og það var engu
líkara en það kæmi frá sturtuklef-
anum.
Sturtuklefinn. Hann varð tilefni
líflegra umræðna þegar við vorum
nýlentar í Lundúnum og gengum
fyrst inn á herbergi okkar á gisti-
heimilinu. Frístandandi upp við
vegg, beint á móti rúminu. Við
ákváðum að þetta væri bara hippa-
legt og notó. En hvaða hljóð var
þetta …?
Ég starði á sturtuna nokkra stund
og hlustaði. Krafs krafs. Birtan frá
leslampanum rétt megnaði að lýsa
neðri hluta hennar upp en í veikri
birtunni sá ég hana. Sá ég þær. Fyrst
snjáldur, svo höfuð, svo búk og ann-
an. Ég stökk upp í rúminu og hvíslaði
eins hátt og ég gat á vinkonur mínar
að vakna. „Ha … hu … hva …?“
stundi sú upp úr sér sem lá við hlið
mér. „ÞAÐ ERU ROTTUR UNDIR
STURTUNNI!“ stundi ég upp á
móti.
Ég reyndi að láta við-
bjóðinn ekki ná tökum á
mér; nú voru góð ráð dýr.
Það hvarflaði ekki að mér
að vera mínútunni lengur
inni í þessu her-
bergi en á hinn
bóginn hafði ég
ekki nokkra
lyst á því
að stíga
niður á
gólfið,
hvað þá
berfætt! Ég
man ekki
hvernig við komumst
fram á gang en það hafð-
ist.
Við hringdum á gest-
gjafann sem kom að lokum þramm-
andi upp stigann, úrillur og allsnak-
inn fyrir utan lítið bleikt handklæði
sem hann hafði af tillitssemi vafið um
sig miðjan. Eftir nokkra stund varð
okkur ljóst að hann hvorki trúði okk-
ur né ætlaði sér að koma til móts við
okkur og við vinkonurnar, rétt að
skríða í tvítugt, enduðum úti á götu
um hánótt í miðborg Lundúna, leit-
andi að nýju hóteli.
Við snerum aftur morguninn eftir
og þá mætti okkur í anddyrinu gest-
gjafinn, alsæll og hinn kátasti. Hann
hafði þrátt fyrir allt hringt á mein-
dýraeyði, sem hann hafði um nóttina
hótað að rukka okkur fyrir, og þrjú
kvikindi höfðu þegar látið gabbast.
Því bar, að hans mati, augljóslega að
fagna. Hann bauð okkur annað her-
bergi og nóttina fría, sem við þáðum
en sórum þess jafnframt dýran eið að
dvelja aldrei aftur á þessari stofnun.
Þetta ævintýri rifjaðist upp fyrir
mér þegar ég var að leita að hóteli
á tripadvisor.com á dögunum en
þá datt mér í hug að fletta upp
gistiheimilinu. Það fékk
margar ágætis umsagn-
ir á síðunni og eig-
andinn sömuleiðis
en ég get ekki
sagt að það
hafi
freistað
mín að
gefa því,
né honum,
annan séns.
»Við hringdum á gest-gjafann sem kom að
lokum þrammandi upp
stigann, úrillur og allsnak-
inn fyrir utan lítið bleikt
handklæði sem hann hafði
af tillitssemi vafið um sig
miðjan.
HeimurHófíar
Hólmfríður
Gísladóttir
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Íslensk
framleiðsla
Mósel
30% afsláttur af völdum sófum
H Ú S G Ö G N
Basel
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað