Morgunblaðið - 25.04.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.04.2012, Qupperneq 6
SVIÐSLJÓS Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Niðurstaða Landsdóms í málinu gegn Geir H. Haarde virðist benda til þess að forsætisráðherra beri að vera nokkurs konar samhæfingaraðili inn- an ríkisstjórnarinnar, segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur. Hún segir að enn sem komið er hafi tilraunir til að endurheimta traust á stjórnmálunum ekki borið árangur en stríðandi fylkingar gætu séð sér hag í því að draga úr vopnaskaki í aðdrag- anda kosninga. „Landsdómur virðist vera að senda þau skilaboð inn í framtíðina að það verði að fara fram endurskoðun á starfsháttum ríkisstjórna, að ráð- herrarnir vinni betur saman að úr- lausn mála,“ segir Stefanía um þá ákvörðun dómsins að finna Geir sek- an fyrir að hafa ekki boðað til ráð- herrafunda um þá hættu sem steðjaði að íslensku efnahagslífi. „Þá má segja að verið sé að koma til móts við þau sjónarmið að í stórum málum þurfi að virkja alla ríkisstjórnina sameig- inlega og hún beri sameiginlega ábyrgð en ekki bara einstaka ráð- herrar,“ bætir hún við. Þurfa að líta til kosninga Stefanía segir Landsdómsmálið ekki hafa orðið til þess að auka til- trúna á stjórnmálakerfinu í heild sinni en það hafi bæði byrjað og end- að í bullandi pólítík. „Ef skipun rann- sóknarnefndar, Landsdómur og endurskoðun stjórnarskrárinnar áttu að efla pólitíska sátt í landinu þá hafa þau ekki gert það. Þau hafa hins veg- ar endurspeglað pólitísk átök sem sér ekki fyrir endann á,“ segir hún en bætir því við að eins skringilega og það kunni að hljóma þá gæti tilhugs- unin um kosningar hvatt menn til stillingar. „Það kemur auðvitað að því að það verður kosið aftur til þings og þá þarf hugsanlega að mynda nýja ríkis- stjórn ef núverandi stjórnarflokkar missa þingmeirihlutann. Þá þurfa þátttakendur í þessum leik að íhuga með hverjum þeir geta unnið eftir kosningar og ef menn ætla að eiga samstarf þvert á hægri og vinstri lín- ur þá verður þessum átökum að linna,“ segir Stefanía. Hún segir áköll um, að þeir þing- menn sem hafi lagt upp í Landsdóms- vegferðina axli ábyrgð, þátt í hinum pólitíska hildarleik og segist ekki sannfærð um að Landsdómur verði lagður af. „Málskotsrétturinn til dæmis þótti úreltur en er allt í einu orðinn virkt tæki í stjórnmálum og það má vel vera að einhver muni líta á Landsdóm sem vopn til að grípa til í pólitískum átökum,“ segir Stefanía. Endurspeglar pólitísk átök sem sér ekki fyrir endann á Morgunblaðið/Kristinn Landsdómur Geir H. Haarde á tröppum Þjóðmenningarhússins eftir að dómur var upp kveðinn í Landsdómi.  Forsætisráðherra samhæfingaraðili  Landsdómur vopn í pólitískum hildarleik 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði við upphaf þingfundar í gær að lögin um Landsdóm væru ekki heppileg og að þeim hefði átt að breyta fyrir löngu. Þá sagðist hún í svari við fyrirspurn Bjarna Bene- diktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, telja alla þingmenn sammála um að breyta ætti lögunum og að tillaga þess efnis ætti að liggja fyrir seinna á árinu. Jóhanna sagði óheppilegt að ákæruvaldið væri í höndum þingmanna og sagðist jafnframt vona að þing- menn myndu setjast yfir það hvernig þeir vildu hafa fyr- irkomulagið í framtíðinni, þ.e. hvernig bregðast ætti við ef líkur væru á því að ráðherra hefði gerst sekur um að brjóta lög um ráð- herraábyrgð. Sagði hún að breyta ætti lögunum sem fyrst. Landsdómslögin óheppileg FORSÆTISRÁÐHERRA Í UMRÆÐU Á ALÞINGI Í GÆR Jóhanna Sigurðardóttir Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Ragnhildur Helgadóttir, prófessor í stjórnskipunarrétti við lagadeild Háskólans í Reykjavík, telur ekki hægt að gera lítið úr því broti sem Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, var fundinn sekur um í Landsdómi og segir þvert á móti ljóst að meirihluti dóms- ins hafi komist að þeirri niðurstöðu að um meira en formreglubrot hafi verið að ræða. „Það sem mér finnst þörf á að ítreka í ljósi umræðunnar er að það er beinlínis sagt í dómnum að sú háttsemi að fara ekki eftir 17. grein stjórnarskrárinnar hafi ekki bara verið brot á formreglu,“ segir Ragn- hildur, þar hafi þvert á móti staðið skýrum orðum að háttsemin hefði stuðlað að því „að ekki var á vett- vangi ríkisstjórnarinnar mörkuð pólitísk stefna til að takast á við þann mikla vanda, sem ákærða hlaut að vera ljós,“ eins og stendur í dómnum. Þar segir einnig að ef slík stefna hefði verið mörkuð og henni fylgt eftir, hefði mögulega mátt draga úr því tjóni sem hlaust af falli bank- anna. „Þetta brot hafði verulegar efnahagslegar afleiðingar og í dómn- um er það rakið hvernig þær upplýs- ingar sem Geir fékk á árinu 2008 hafi í raun og veru verið þannig að það hafi verið knýjandi að marka nýja pólitíska stefnu,“ segir Ragnhildur. Hún segir ljóst að tekist hafi verið á um túlkun 17. greinarinnar en nið- urstaða meirihlutans hafi orðið sú að túlka hana eftir orðanna hljóðan. Þess vegna hafi hvílt á forsætisráð- herra sú skylda að sjá til þess að mikilvæg stjórnarmálefni væru tek- in til umræðu og eftir atvikum af- greiðslu á fundum. „Það sem mér finnst hanga á 17. greininni er að hún er samráðsgrein, sem tryggir að ef það er ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar þá komi hann fram. Ef menn ræða ekki mál á ríkisstjórnarfundum heldur aðeins utan þeirra og í minni hópum þá er ekki víst að ágreiningur komi fram og þá er ekki víst að stjórnskipanin okkar virki eins og hún á að gera,“ segir Ragnhildur. En kemur ágreiningur ekki ein- faldlega fram við umræður á Al- þingi? Ragnhildur segir að það sé ekki nóg. Fátt hefði t.d. orðið um svör ef viðskiptaráðherra hefði verið spurður um gjaldeyrisskiptasamn- inga á þingi í mars 2008. „Þannig að það er líka spurning hvort þetta hafi ekki áhrif á eftirlit þingsins með störfum ríkisstjórnar- innar. En þetta er ekkert sem Landsdómur tekur upp, hann segir bara að þarna sé klár réttarregla, hún var brotin og það er ekki bara formsatriði heldur hafði það ákveðnar afleiðingar,“ segir hún. Morgunblaðið/Kristinn Geir Brotið meira en formreglubrot. Brot Geirs á 17. greininni hafði efnislegar afleiðingar  Lagaprófessor í HR lítur á greinina sem „samráðsgrein“ Ragnhildur Helgadóttir Atli Gíslason, formaður þing- mannanefndarinnar sem lagði til að ráðherrar væru ákærðir fyrir Landsdómi, sagði í MBL Sjónvarpi að þingmenn hefðu ekki hugsað skýrt þegar þeir greiddu atkvæði um að sækja Geir H. Haarde einan til saka. „Maður hefði eflaust gert ýmislegt annað hefði maður áttað sig á hvernig málatilbúnaðurinn laskaðist við atkvæðagreiðsluna. Menn voru í sjokki og hugsuðu ekki skýrt og ég var einn þeirra,“ sagði Atli. Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra sagðist á mbl.is hafa verið óánægður með ákæruna og það væri hann ennþá. Honum finnst ennfremur að niðurstaða Lands- dóms sýni að hún hafi verið hið mesta óráð. „Það er verið að ákæra og að hluta til sakfella einn mann fyrir afglöp mjög margra í mjög langan tíma. Þetta er engin hreins- un í stjórnmálunum. Í þessu er ekki fólgin nein endurreisn en þetta er niðurstaða og mér finnst hún ekki vera réttlát,“ sagði Ögmundur. „Þetta er engin hreinsun í stjórnmálunum“ Ögmundur Jónasson Atli Gíslason Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við Atla Gíslason. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, föstudaginn 27. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Íslandsmótið Pepsí-deild karla í knattspyrnu 4. maí. Farið verður um víðan völl og fróðlegar upplýsingar um liðin sem leika sumarið 2012. ÍSLANDSMÓTIÐ PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2012 –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við Ög- mund Jónasson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.