Morgunblaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið fórum af stað með þessa heimasíðu af því okkur finnst að öll börn eigi að hafa jafn- an aðgang að skák- menntun. Sú mikla vakning í skáklífi hjá börnum á Íslandi sem verið hefur undanfarin ár er nán- ast einvörðungu bundin við Reykjavíkursvæðið. Okkur fannst vanta aðgengi fyrir krakka á landsbyggðinni að skákkennslu,“ segir Siguringi Sigurjónsson en hann ásamt Henrik Danielsen, stórmeistara í skák, stofnaði fyrr á þessu ári heimasíðu sem heitir krakkaskák.is. Þar geta börn lært að tefla og þjálfað sig í skáklist- inni. „Netið býður upp á svo marga möguleika og við sáum að þar gætum við verið með skák- kennslu sem væri aðgengileg fyrir öll börn á Íslandi. Við gerðum okkur líka ljóst að til að gæta jafnræðis þá yrði þetta að vera frítt. Barn á Patreksfirði sem hef- ur áhuga á skák þarf til dæmis ekki að spyrja foreldrana hvort þau vilji borga fyrir skákennslu, það getur nálgast hana ókeypis á krakkaskák.is.“ Þar sem engar tekjur eru af síðunni þá er hún eingöngu rekin á styrkjum þeirra fyrirtækja sem sjá má á heimasíð- unni. Geta teflt hvert við annað Siguringi segir að hugmyndin sé að hafa vefinn eins gagnvirkan og mögulegt er. „Ég er nýkominn úr skóla þar sem var verið að kenna börnum skák og ég leyfði Jafn aðgangur fyrir öll börn að skákinni Krakkaskák.is er nýr vefur fyrir börn og unglinga sem vilja kynnast skáklistinni og mennta sig í henni. Þar eru líka haldin skákmót og hægt að tefla við aðra í rauntíma. Yngstu börnin geta skemmt sér við að lita taflmenn í litabókinni. Og allt er þetta frítt. Morgunblaðið/Ernir Gaman Það er skemmtilegt að tefla og öll börn ættu að prófa það. Leiðist þér alveg agalega? Mætti jafnvel segja að þú værir leið panda? Þá ættir þú að kíkja á vefsíðuna boredpanda.com því þar er margt fyndið og skemmtilegt að sjá. Síðan er sannkallaður myndabanki en þar er að finna margar fallegar og flottar myndaseríur. Meðal þeirra má nefna 50 dýramyndir sem teknar voru á hárréttu augnabliki og sýna dýrin sum hver í dálítið nýju ljósi. Á vefsíð- unni má líka sjá nýstárlega límmiða til að skreyta fartölvuna með. Loks má ekki gleyma dúllulegum prakk- aramyndum ljósmyndarans Jasons Lee af dætrum sínum. Á einni virðist meðal annars sem önnur hafi límt hina upp á vegg. Hugmyndin að myndunum kviknaði þegar amma stúlknanna veiktist og hún gat þá fylgst með lífi stúlknanna á sérstakri myndasíðu. Kannið vefsíðu leiðu pöndunnar því þar er margt að finna. Vefsíðan www.boredpanda.com Reuters Lítil fluga Fanga má dýrin stór og smá skemmtilega á ljósmynd. Dúllulegir prakkarar á ferð The Visionaries eða Hugsjónafólkið kallast hljómsveit sem hefur þá sérstöðu að allir meðlimir hennar eru ýmist blindir eða sjón- skertir. Bandið skipa þau Gísli Helgason, Hlynur Þór Agnarsson, Rósa Ragnarsdóttir og Haraldur G. Hjálm- arsson. Hljómsveitin leikur aðallega popp og djasstónlist auk þess að flytja frum- samin lög. Þá leika hljómsveitarmeðlimir á hin ýmsu hljóðfæri og skiptast á þeim en einn hljómsveitarmeðlimur spilar m.a. á tvær blokkflautur í einu. Hljómsveitin heldur tónleika í kvöld, miðvikudaginn 25. apríl, klukkan 21, á Café Rosenberg. Endilega … … hlýðið á Hugsjónafólkið Háð og spottar, sýning Hermanns B. Guðjónssonar, stendur yfir í Bog- anum, Gerðubergi, til 22. júní. Á sýningunni eru smyrnuð veggteppi sem Hermann hefur unnið á vinnu- stofunni á Hrafnistu þar sem hann er búsettur. Verk hans hafa vakið verðskuldaða athygli en þau sýna gjarnan þjóðkunnar persónur, svo sem stjórnmálamenn. Mörg þessara verka hefur Hermann gefið og eru þau varðveitt til að mynda á Bessa- stöðum og í stjórnarráðinu. Til að gera sýninguna sem veglegasta voru fengin að láni verk í eigu forseta Ís- lands, forsætisráðherra og annarra stjórnmálamanna. Er sýningin hluti af listahátíðinni List án landamæra. Hermann er fæddur árið 1936 að Fremstuhúsum í Dýrafirði. Hann er sjálfmenntaður listamaður sem stundað hefur ýmis verka- mannastörf í gegnum tíðina. En eft- ir að Hermann lét af störfum hefur hann sinnt fjölbreyttu handverki af mikilli eljusemi, hann rýjar, heklar, smíðar, sker út í tré og hnýtir net svo nokkuð sé nefnt. Sýning á verkum Hermanns B. Guðjónssonar Háð og spottar í Gerðubergi Eljusamur Hermann B. Guðjónsson er sjálfmenntaður listamaður. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Sími 5685170 Innigallar fyrir konur á öllum aldri Stærðir s-xxxl Nýkomnir fallegir bómullarbolir í mörgum litum Hlýrabolir Stuttermabolir og kvartermabolir Velúrgallar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.