Morgunblaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Kristinn P. Magnússon sameinda-
erfðafræðingur á Náttúrufræði-
stofnun Íslands mun á síðasta
Hrafnaþingi vormisseris, miðviku-
daginn 25. apríl kl. 15.15, flytja er-
indi sitt Erfðabreytt náttúra.
Í erindinu verður fjallað um líf-
fræðilega fjölbreytni, sem er undur
lífsins, hráefni þróunar og grund-
völlur þess að lífverur og vistkerfi
geti aðlagast breyttum aðstæðum.
Grunneining líffræðilegrar fjöl-
breytni er erfðabreytileiki ein-
staklingsins. Stofnar, tegundir og
heilu vistkerfin standa og falla með
fjölbreytileika erfðamengja ein-
staklinganna. Þannig endurspeglar
erfðabreytileiki lýðfræðilega bygg-
ingu og þróunarsögu stofns, segir í
tilkynningu. Erindið verður flutt í
Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ.
Morgunblaðið/Einar Falur
Breytingar Erfðabreyttur lax vex tvöfalt
hraðar en sá villti í náttúrunni.
Erfðabreytt náttúra
Varðberg, samtök um vestræna
samvinnu og alþjóðamál, efnir til
hádegisfundar kl. 12.00 fimmtu-
daginn 26. apríl í ráðstefnusal
Þjóðminjasafns við Suðurgötu.
Á fundinum ræða tveir sér-
fróðir menn um öryggi í rafræn-
um viðskiptum. Guðmundur Kr.
Tómasson framkvæmdastjóri
greiðslukerfa Seðlabanka Íslands
flytur erindið: Rafræn greiðslu-
miðlun – greiðslu- & uppgjörs-
kerfi. Haukur Oddsson forstjóri
Borgunar flytur erindið: Að vera
á undan skúnkunum. Fundar-
stjóri er Björn Bjarnason, for-
maður Varðbergs. Fundurinn er
öllum opinn.
Ræða öryggi í raf-
rænum viðskiptum
Miðvikudaginn 25. apríl verður
síðasta opna húsið með dagskrá í
Hallgrímskirkju. Samkoman hefst
kl. 14.00 í safnaðarsal kirkjunnar.
Efni samverunnar er: Auðlegð efri
ára, en sr. Bernharður Guðmunds-
son mun fjalla um efnið. Einnig
verður almennur söngur við
undirleik Björns Steinars org-
anista og kaffiveitingar. Allir eru
velkomnir.
Opið hús í dag
Hatursáróður verður umfjöllunar-
efni fimmta fundarins í fundaröð
innanríkisráðuneytisins um mann-
réttindamál í tengslum við mótun
landsáætlunar í mannréttindum.
Fundurinn verður haldinn í Iðnó í
Reykjavík fimmtudaginn 26. apríl
klukkan 8.30 til 10.30 f.h. Ögmund-
ur Jónasson innanríkisráðherra
flytur ávarp í upphafi fundar.
Framsöguerindi flytja: Björg Thor-
arensen, prófessor við lagadeild
Háskóla Íslands, Margrét Stein-
arsdóttir, framkvæmdastjóri Mann-
réttindaskrifstofu Íslands, Logi
Kjartansson, lögfræðingur hjá
stjórnsýslusviði Ríkislögreglu-
stjóra, og Íris Ellenberger sagn-
fræðingur. Fundarstjóri verður
Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins.
Hatursáróður rædd-
ur á fundi í Iðnó
STUTT
Efnt verður til stórtónleika í menn-
ingarhúsinu Miðgarði á föstudags-
kvöld, við upphaf Sæluviku Skag-
firðinga. Nefnist dagskráin
„Sönglög á Sæluviku“ og er þetta í
fjórða sinn sem tónleikar undir
þessu heiti taka forskot á sæluna,
en árleg menningarhátíð Skagfirð-
inga verður formlega sett á sunnu-
daginn.
Hátt í 50 manns taka þátt í tón-
leikunum og listamenn eru af öllum
aldri. Meðal söngvara má nefna
Óskar Pétursson og Guðrúnu
Gunnarsdóttur sem munu m.a.
syngja lög sem systkinin Ellý og
Vilhjálmur gerðu ódauðleg.
„Þetta verður sannkölluð söng-
veisla þar sem kynslóðabilið verður
brúað við upphaf Sæluvikunnar.
Tónleikarnir bera þeirri grósku
sem er í tónlistarlífi Skagfirðinga
gott vitni. Þeir hafa alltaf verið
mjög vel sóttir og Miðgarður troð-
fyllst,“ segir Stefán R. Gíslason,
söngstjóri og einn aðstandenda tón-
leikanna.
Af fleiri listamönnum má nefna
Álftagerðisbræður, Unglingakór
Varmahlíðarskóla, Sigvalda Helga
Gunnarsson, Herdísi Rútsdóttur,
Kolbrúnu Grétarsdóttur, Sigurlínu
Einarsdóttur og Írisi Olgu Lúðvíks-
dóttur. Kórstjóri unglingakórsins
er Helga Rós Sigfúsdóttir. Sérstaka
sönglagasveit skipa þau Einar Þor-
valdsson, Guðbrandur Guðbrands-
son, Kristján Reynir Kristjánsson,
Margeir Friðriksson, Sveinn Sigur-
björnsson, Stefán R. Gíslason og
dóttir hans, Berglind, ásamt bak-
raddasöngvurum og slagverksleik-
urum. Kynnir á tónleikunum verð-
ur Jón Hallur Ingólfsson.
Tónleikarnir í Miðgarði hefjast
kl. 20.30 á föstudagskvöld og for-
sala aðgöngumiða er í Rafsjá á
Sauðárkróki og KS í Varmahlíð.
Söngveisla við upphaf Sæluviku
Óskar
Pétursson
Guðrún
Gunnarsdóttir