Morgunblaðið - 25.04.2012, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Hrafn Stefánsson, stjórnmálafræðingur í Reykjavík, er þrítugur í
dag. Hrafn kveðst vera lítið fyrir það að gera mikið úr afmælum sín-
um. Hann hafi samt alltaf gaman af því að eiga afmæli.
„Það er allur gangur á því hvað ég geri í tilefni dagsins, und-
anfarin ár hef ég haft þetta mjög lágstemmt,“ segir Hrafn. Hann
hélt ekki upp á tvítugsafmælið sitt svo hann ætlar aðeins að gera
meira úr þrítugsafmælinu, segist eiga það inni. „Á afmælisdaginn
sjálfan ætla ég að taka það rólega með nánustu fjölskyldu. Það verð-
ur líklega hefðbundið afmæliskaffi og kannski hræri ég í vöfflur
með sultu og rjóma. Um helgina slæ ég svo upp teiti fyrir vinahóp-
inn,“ segir Hrafn. Ófá þrítugsafmælin hafa verið haldin í vinahópn-
um undanfarið að sögn Hrafns og segir hann vini sína vera duglega
við að halda upp á stórafmæli sín með pompi og prakt.
Spurður út í eftirminnilega afmælisdaga rifjar Hrafn upp þegar
hann varð fimm ára og fékk blátt og gult BMX-hjól í afmælisgjöf.
„Það var sjúklega flott, það heitasta árið 1987.“
Hrafn kveðst ekki vera í þrítugskrísu, langt því frá. „Ég er mjög
ánægður með að verða þrítugur, þetta er rétt að byrja.“
Þeir sem eru fæddir 25. apríl eru í stjörnumerkinu Nautinu. Naut-
in eru oft sögð vera jarðbundin og segir Hrafn það passa vel við sig,
hann sé nokkuð hefðbundið naut. ingveldur@mbl.is
Hrafn Stefánsson er þrítugur
Fékk BMX-hjól í
fimm ára afmælisgjöf
V
ernharð Guðnason,
slökkviliðsstjóri Bruna-
varna Skagafjarðar,
fæddist í Hnífsdal og
ólst þar upp í Heimabæ.
Hann var í Barnaskólanum í
Hnífsdal, Gagnfræðaskóla Ísafjarð-
ar, var skiptinemi við Pana High
School í Illinois í Bandaríkjunum
1979-80, lauk sveinsprófi í húsasmíði
við Iðnskólann á Ísafirði 1984 og öðl-
aðist meistararéttindi frá Meist-
araskólanum 1987, stundaði nám í
bráðatækni við Center for Emer-
gency Medicine í Pittsburg í Penn-
silvaníu í Bandaríkjunum frá 1999 og
lauk þaðan prófum 2000.
Slökkviliðsmaður í Reykjavík
Vernharð stundaði húsasmíðar á
höfuðborgarsvæðinu frá 1987, var
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
við Slökkviliðið í Reykavík (síðar
SHS) 1988-2008, var jafnframt for-
maður og framkvæmdastjóri Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna 2002-2008.
Vernharð var auk þess kjörinn
formaður þá nýstofnaðrar alþjóða-
deildar helstu samtaka sjúkraflutn-
Vernharð Guðnason 50 ára
Skíðafjölskyldan Vernharð ásamt konu sinni, Ester flugumferðarstjóra, og börnunum Baldvini, Sigrúnu og Guðrúnu.
Á slóðir forfeðranna
Sælureitur Fjölskyldan hefur verið með hús í smíðum í Fljótavík frá 2009.
Skessugil 9, Akureyri Dagbjört Jóna
Aðalsteinsdóttir fæddist 16. desem-
ber kl. 7.35. Hún vó 3970 g og var 51
cm löng. Foreldrar hennar eru Dagný
Ágústsdóttir og Aðalsteinn
Sigurgeirsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Hermann Hafþór fæddist
20. september kl. 4.00. Hann vó
4.405 g og var 55 cm langur. Foreldrar
hans eru Kristín Telma
Hermannsdóttir og Jón Trausti
Gunnarsson.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Egill Antonsson varði nýlega doktorsritgerð sína í efnafræði við
Freie Universität í Berlín í Þýskalandi.
Ritgerðin ber heitið: „Ljósörvun, ljósjónun og dreifing rönt-
gengeislunar á óbundnum nanóögnum í agnageisla.“ Í ritgerð-
inni er lýst þremur nýjum aðferðum til að rannsaka eiginleika
nanóagna (þvermál ca. 50-200 nanómetrar) í agnageisla í loft-
tæmi. Með þessum aðferðum má rannsaka stærð, lögun, ljós-
brotsstuðul og eðlismassa nanóagna í lofttæmi. Þá má einnig
rannsaka annars vegar ljósjónun nanóagna með röntgengeislun
og hins vegar víxlverkun þeirra við örstutta laserpúlsa sem hafa vel skilgreint og
breytanlegt bylgjuform.
Egill Antonsson fæddist 1982 í Reykjavík. Hann lauk BS-prófi í efnafræði frá Há-
skóla Íslands 2005 og MSc-prófi í efnafræði frá Freie Universität í Berlín 2008. For-
eldrar hans eru Anton Helgi Jónsson, rithöfundur, og Margrét Sveinsdóttir, kennari.
Doktor í efnafræði
Góð brauð - betri heilsa
Handverk í 18 ár
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00