Morgunblaðið - 25.04.2012, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur haft meira en nóg að starfa
að undanförnu en sérð nú fram á að eiga
tíma aflögu fyrir sjálfa/n þig. Farðu í fjall-
göngu, það hressir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ættir að huga að því hvernig þú getir
aflað þér fjár með lántökum eða aukaverkum.
Mikil hætta er á misskilningi og því er þetta
mjög slæmur dagur fyrir mikilvægar sam-
ræður. Hlustaðu á líkamann.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það gengur ekki að vera stöðugt
kvartandi út af öllu. Gættu þess að halda ut-
an um þína nánustu eins og þeir gera um þig.
Þú færð gott tilboð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér tíma til þess að taka til
hendinni heima fyrir og kláraðu það sem hef-
ur setið á hakanum. Einhver reynir að blekkja
þig. Líttu stundum um öxl.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ákvörðun eða dómur stjórnvalds hefur
áhrif á fjölskyldu þína eða eignir þínar. Taktu
fagnandi á móti góðvild annarra. Segðu af
eða á í tæka tíð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess vandlega að enginn
hlunnfari þig í viðskiptum. Gættu þess að of-
metnast ekki þegar vel gengur því dramb er
falli næst.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að hlusta á hjartað og fylgja því getur
haft dásamlegar afleiðingar. Hógværð og
festa geta aflað þér margra fylgismanna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert við því að gera
þótt þú fáir ekki öllu ráðið um sérstakt verk-
efni. Hvað getur þú lagt af mörkum í deilu-
máli? Gaumgæfðu peningamálin betur, þá
sérðu að þú stendur bara nokkuð vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver sem þú veist ekki af kem-
ur þér á framfæri bakvið tjöldin. Þú ferð um
og breytir lífi lífi þeirra sem þú elskar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hæfileiki þinn til þess að ná ein-
beitingu er aðdáunarverður. Veittu því athygli
sem gengur vel og sýndu þakklæti þitt með
því að láta gott af þér leiða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fjölskyldan og heimilið setja svip
sinn á daginn hjá þér. Hættu að reyna að fá
fólk til þess að vera sammála þér. Einhver
rænir þig allri orku.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Til þess að fjármálin gangi upp þarft
þú að fylgjast grannt með og halda vel á
spöðunum. Einbeittu þér að einu verkefni í
einu og þá mun allt ganga upp hjá þér.
Sumarið er komið. Og Sigmundur
Benediktsson skrifar á þeim tíma-
mótum: „Sagt var að það boðaði
gott ef sumar og vetur frysu saman,
en það gerðist víðast hvar núna og
hafi það boðað gott fyrir löngu
hlýtur það að boða gott eins nú. Ég
held að gervitunglin hafi ekki enn
ruglað sólkerfið, til allrar ham-
ingju.“ Og hann yrkir sumarmála-
vísu:
Vors af gleði glóðadís
geisla léði betur.
Sól í geði, saman frís.
Sumar kveður vetur.
Jón Gissurarson rifjar upp gömlu
trúna „að rjómaskánin ofan á
mjólkurtrogunum það sumarið átti
að verða jafn þykk og ísskánin á
pollunum eftir fyrstu sumarnótt-
ina“.
Ennþá höfum enga brælu
áttum gæfuríkan dag.
Bráðum fáum sumarsælu
syngur vorið gleðibrag.
Pétur Stefánsson kveður sér
hljóðs:
Brumar grein og braggast jurt.
Bárur ýfa sæinn.
Svalt er úti, sól og þurrt
sumar fyrsta daginn.
Ágúst Marinósson orti eftir túr-
inn sumardaginn fyrsta:
Á hafinu ég hef það flott
og horfi yfir sæinn.
Fiskirí var frekar gott
á fyrsta sumardaginn.
Þá Hallmundur Kristinsson:
Léttlyndar meyjar og glaðbeittir gumar,
gamlingjar hrumir og allt þar á milli
gefa nú vonir um gleðilegt sumar.
Gangi það eftir og fátt eitt því spilli.
Ágúst fylgist líka með atburðum í
landi:
Kvótafrumvarp kvelur menn
nú kann að þrjóta smérið.
Vinstri stjórnin veltur senn
og Wen fór ekki í Kerið.
Loks varpar Hallmundur Krist-
insson fram gátu:
Í útlöndum hann andskotast,
ekki hugnast samningshlé;
lætur hvorki laust né fast.
Hann langar svo í ESB.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af gervitunglum,
fiskiríi og sumarsælu
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
VARIÐ
YKKUR Á
HUNDINUM!
„GÚLLÍVER Í
PUTALANDI”
FYRSTI KAFLI
HJÁLPI MÉR HAMINGJAN!
ÞAÐ ERU 254 BLAÐSÍÐUR Í
ÞESSARI BÓK
ÉG BYRJA FREKAR
Á HENNI Á MORGUN
„FAÐIR MINN ÁTTI
LANDAREIGN Í
NOTTINGHAMSKÍRI; ÉG VAR
ÞRIÐJI AF FIMM SONUM...
BIDDU
HANA AÐ FINNA
TVO HANDA OKKUR
HVER
ER LYKILLINN
AÐ FARSÆLU
HJÓNABANDI?
GIFSTU MANNI SEM
HVORKI DREKKUR NÉ BORÐAR OF
MIKIÐ, MANNI SEM KEMUR ALLTAF
SNEMMA HEIM OG RUSLAR EKKI
TIL. ÞETTA ER LYKILLINN AÐ
FARSÆLU HJÓNABANDI
NÝJI NÁGRANNINN OKKAR,
HANN MIKAEL, ER KOKKUR
OG HANN BJÓ TIL ÞETTA
HEILSUSAMLEGA KALKÚNA-
TÓFÚ SEM VIÐ GETUM BORÐAÐ
YFIR HÁTÍÐARNAR
ÞAÐ BRAGÐAST VÍST ALVEG
EINS OG KALKÚNN ÞÓ ÞAÐ
SÉ EKKI GERT ÚR KALKÚNI
KEMUR
EKKI TIL
GREINA!
ÞVÍ
MIÐUR
MIKAEL,
HANN VILL
ÞETTA EKKI
Víkverja líst vel á sumarið. Sólríkirdagar og hitastigið á uppleið,
dæmigert próflestrarveður, sem er
upplagt til að æra óstöðugan. Fólk er
líka greinilega komið í sumarstell-
ingar. Kunningi Víkverja fór um
helgina á skíði í Bláfjöllum. Veðrið
var frábært, færið til fyrirmyndar og
hann og fjölskylda hans gátu athafn-
að sig að vild í brekkunum og engin
bið í lyftunum. Við þessar aðstæður
hefði allt verið fullt á skíðasvæðinu
fyrir fjórum vikum, en nú er fólk með
hugann við sumarið og tími vetr-
aríþrótta liðinn.
x x x
Víkverji hefði ekki viljað vera ísporum franska ökuþórsins, sem
ók inn um inngang í neðjanjarðarlest-
arstöð í París og var kominn hálfur
niður tröppurnar áður en honum
tókst að nema staðar. Bílstjórinn
kvaðst hafa haldið að hann væri að
fara niður í bílastæðakjallara. Sem
betur fór var enginn í tröppunum
þegar atvikið átti sér stað. Maðurinn
var látinn blása í blöðru og reyndist
allsgáður. Bílastæðaskilti stendur við
innganginn að lestarstöðunni og mun
þetta ekki vera í fyrsta skipti, sem
reynt er að aka inn um hann.
x x x
Kýrin Strumpur frá Kanada munvera nythæsta kýr, sem sögur
fara af. Hún hefur á 15 árum mjólkað
216,891 kg, sem er heimsmet og hefur
verið skráð í heimsmetabók Guin-
ness. „Það jafnast á við eina milljón
glasa af mjólk,“ segir Eric Pate-
naude, mjólkurbóndi í Kanada. Nyt-
hæsta kýr á Íslandi í fyrra var Týra í
búi Sigurlaugar Jónsdóttur og Ólafs
Helgasonar í Hraunkoti í Landbroti,
sem skilaði 12.144 kg mjólkur á árinu.
Það myndi samsvara 182.160 kg
mjólkur á 15 árum þannig að Týra
þyrfti að bæta um betur til að komast
í heimsmetabókina.
x x x
Kýrnar í Hraunkoti eru reyndarmeð hæstu meðalnytina á Ís-
landi, 8.340 kg, sem mun vera Ís-
landsmet. Víkverji veit ekki hvernig
kýrnar hans Patenaude, sem er sjötti
ættliðurinn í fjölskyldunni, sem
stundar búskap, stæðust þann sam-
anburð við kýrnar í Landbroti.
Víkverji
Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd
börn eftir hinni andlegu, ósviknu
mjólk, til þess að þér af henni getið
dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.)
Brautarholti 10-14 / 105 Reykjavík / 575 2700 / pixel@pixel.is / www.pixel.is
Við prentum alla regnbogans liti.
Gulur rauður grænn og blár
svartur hvítur fjólublár!
Við bjóðum upp á alla almenna prentun,
ráðgjöf, skönnun, umbrot, bókband
og umsjón með prentgripum.
Pixel er alhliða prentþjónusta með
starfsstöðvar í Reykjavík og á Ísafirði.
Pixel þýðir myndeining - sem er minnsta eining úr mynd.
Orðið pixel er byggt á samblöndu úr orðunum
pix (pictures) og el (element)