Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég get talað enn skýrar, ég hef ekki séð nein rök fyrir því að sameina efnahagsráðuneytið og fjármálaráðu- neytið. Ég þarf þá að fá mjög sterk fagleg rök fyrir því ef einhverjar breytingar eiga þar að verða,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra í andsvari við fyrirspurn Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar, for- manns Framsóknar, á Alþingi 7. desember síðastliðinn. Fyrirhugaðar breytingar á stjórn- arráðinu og skipan ráðuneyta voru þá til umræðu og vildi Jóhanna kveða af- dráttarlaust á um það að ekki stæði til að bræða saman efnahags- og við- skiptaráðuneytið annars vegar og fjármálaráðuneytið hins vegar. En eins og kemur fram í greininni hér fyrir neðan hefur ráðherranefnd lagt til slíka sameiningu og er nú stefnt að henni í nýju frumvarpi ríkisstjórnar- innar. Vísaði „getgátum“ á bug Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætis- ráðherra einnig út í málið og var svar Jóhönnu þá svohljóðandi: „Virðulegi forseti. Það er algjör- lega ljóst í mínum huga að miðað við þær umræður sem hafa orðið á Al- þingi og í fjölmiðlum um ráðuneyta- breytingar og eru meira og minna sprottnar af getgátum eru þingmenn og fjölmiðlar komnir fram úr sjálfum sér í þessu efni …Hér er farið að ræða um að leggja eigi niður efna- hagsráðuneytið o.s.frv. … Engin ný ákvörðun hefur verið tekin í því máli. Engin fagleg úttekt hefur farið fram á því hvort rétt væri að gera einhverj- ar breytingar í þessu efni,“ sagði Jó- hanna m.a. í andsvari sínu. Tveim dögum áður var Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður VG, til and- svars út af sama máli og lét þá þau orð falla að „hvernig sem þessu verð- ur fundinn staður innan stjórnarráðs- ins til frambúðar á yfirstjórn efna- hagsmála að vera samræmd á einum stað,“ sjónarmið sem virðist hafa orð- ið ofan á í ljósi framvindunnar. Rétt rúmum þrem vikum síðar, nánar tiltekið 31. desember, hurfu Jón Bjarnasson og Árni Páll Árnason úr ríkisstjórn með því að ráðuneyti Jóns, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytið, voru færð undir Steingrím J. Sigfússon, sem fer nú fyrir fimm ráðuneytum sem atvinnuvegaráðherra, og ráðuneyti Árna Páls, efna- hags- og viðskiptaráðu- neytið, var fært undir Steingrím. Rúmum hálfum mánuði síðar, 18. jan- úar sl., var greint frá því á vef forsætisráðuneytisins að sérstök ráðherranefnd myndi leggja „faglegt mat á kosti og galla þess að gera breytingar á efnahags- og við- skiptaráðuneytinu“. Til skoðunar í nokkrar vikur Sex vikum síðar, 21. mars sl., þótti „skynsamlegt og faglega rétt“ að færa verkefni sem tengjast hagstjórn frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti til fjármálaráðuneytis svo úr yrði fjármála- og efnahagsráðuneyti (sjá greinina hér fyrir neðan). Jóhanna Sigurðardóttir greindi frá aðdragandanum í þingræðu um fyrir- hugaðar breytingar 17. apríl sl. „Til viðbótar við þessa greiningar- vinnu og samráð sem átt hefur sér stað hefur sérstök ráðherranefnd um stjórnkerfisumbætur verið að störf- um frá því í byrjun árs, sem í áttu sæti fimm ráðherrar. Þær tillögur sem nú liggja fyrir eru afrakstur vinnu þeirrar nefndar.“ Sá ekki rök fyrir sameiningu  Forsætisráðherra var andvígur sameiningu efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis  Lét þessa skoðun í ljós í þingræðu í desember í vetur  Nú er hins vegar stefnt að sameiningunni Morgunblaðið/Ernir Stjórnarráðið Ríkisstjórn VG og Samfylkingar stefnir á að fækka ráðherrum úr 12 í 8. Er ætlunin að ganga endanlega frá breytingunni í septemberbyrjun eða um sjö mánuðum fyrir kosningar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Aftast í sautján síðna samstarfsyfirlýsingu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er að finna kafla um svonefndar stjórnkerfisumbætur þar sem vikið er að þeim áformum að fækka ráðuneytum í áföngum úr tólf í níu. Átti skipan ráðuneyta að verða sem hér segir svo þau séu talin upp af handahófi úr samstarfsyfirlýsingunni: (1) efnahags- og við- skiptaráðuneyti (nýtt); (2) atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti (nýtt); (3) umhverfis- og auðlindaráðuneyti (nýtt); (4) fjármálaráðuneyti (óbreytt); (5) mennta- og menningarmálaráðu- neyti (nýtt); (6) utanríkisráðuneyti (óbreytt); (7) ráðuneyti sveitastjórna, samgöngu og byggða- þróunar (nýtt); (8) mannréttinda- og dóms- málaráðuneytið (nýtt); (9) heilbrigðisráðuneyti (óbreytt) og (10) félags- og tryggingamálaráðu- neyti (óbreytt). Úr tíu ráðuneytum í níu Fyrir lok kjörtímabilsins var svo gert ráð fyrir því að tvö ráðuneyti rynnu saman í eitt þannig að ráðuneytum fækkaði úr 10 í 9, með því að lögfest yrði sameining samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytis og mannréttinda- og dómsmálaráðuneytis í nýju innanríkisráðu- neyti. Líkt og rakið er í upptalningunni hér til hliðar var svo ákveðið að ganga lengra á braut sameiningar með því að ráðuneyti heilbrigðis- mála annars vegar og félags- og tryggingamála hins vegar urðu að velferðarráðuneyti. Fækkaði ráðuneytum við það úr 9 í 8. Vekur athygli að í frumvarpi til laga um breytinga á stjórnarráðinu segir „að gert [sé] ráð fyrir að heilbrigðisráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið sameinist“ en það verður ekki ráðið af texta samstarfsyfirlýsing- arinnar. En í henni segir að ráðuneytin skuli verða „óbreytt að öðru leyti en því að stefnt er að því að auka samvinnu milli ráðuneytanna um verkefni sem heyra undir bæði ráðuneyti“. Voru breytingarnar rökstuddar með þess- um orðum í títtnefndri samstarfsyfirlýsingu: „Ríkisstjórnin mun gera umtalsverðar stjórnkerfisbreytingar og umbætur í því skyni að gera þjónustu hins opinbera við almenning og atvinnulíf eins góða og kostur er með þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru hverju sinni. Víðtækt samráð verður haft við starfsfólk, al- menning og hagsmunaaðila og leitast við að skapa almennan skilning og samstöðu um nauð- syn þessara breytinga.“ Farið að tilmælum ráðherranefndar Þau tíðindi urðu svo í málinu 21. mars sl. að ríkisstjórnin samþykkti tillögu ráðherranefndar um stjórnkerfisumbætur varðandi breytingar á heitum og fjölda ráðuneyta í Stjórnarráði Ís- lands. Var tillagan send til umfjöllunar í þing- flokkum ríkisstjórnarflokkanna og níu dögum síðar, 30. mars, lagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fram þingsályktun um fækkun ráðuneyta í anda tillagna ráðherranefndarinnar. Með þeim var lögð til breyting á fjármála- ráðuneytinu miðað við það hlutverk sem því var ætlað í samstarfsyfirlýsingunni og er það út- skýrt svo á vef forsætisráðuneytisins: „Í ljósi þeirrar greiningar sem unnin hefur verið þykir skynsamlegt og faglega rétt að verk- efni sem tengjast hagstjórn séu færð frá efna- hags- og viðskiptaráðuneyti til fjármála- ráðuneytis og að heiti þess verði breytt í fjármála- og efnahagsráðuneyti.“ Ráðuneytunum fækkað í áföngum  Samstarfsyfirlýsing Samfylkingar og Vinstri grænna kvað á um fækkun ráðuneyta úr 12 í 9  Stjórnvöld gengu síðan lengra og stefna nú á 8 ráðuneyti  Tillagan bíður afgreiðslu þingsins Morgunblaðið/Brynjar Gauti Alþingi Ráðuneytum hefur fækkað. Breytingar í nokkrum skrefum » 1. október 2009 var nafni viðskipta- ráðuneytisins breytt í efnahags- og við- skiptaráðuneytið. Í sömu lotu tók dóms- mála- og mannréttindaráðuneyti við af dóms- og kirkjumálaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneytið leysti menntamálaráðuneytið af hólmi og sam- göngu- og sveitarstjórnarráðuneyti tók við af samgönguráðuneyti. » 1. janúar 2011 voru fjögur ráðuneyti sameinuð í tvö ný: Samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytið og dómsmála- og mannréttindaráðuneytið urðu að nýju innanríkisráðuneyti og heilbrigðisráðu- neytið og félags- og tryggingamálaráðu- neytið urðu að nýju velferðarráðuneyti. » Ráðuneytum fækkar svo úr tíu í átta með sameiningu sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis í nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og tilfærslu verkefna úr efnahags- og við- skiptaráðuneyti til atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytis annars vegar og fjár- málaráðuneytis hins vegar en það verður fjármála- og efnahagsráðuneyti. Fram kemur í minnisblaði for- sætisráðuneytisins til Stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar Al- þingis að kostnaður við sameiningu ráðuneyta geti ver- ið á bilinu 125-225 milljónir, „enda óvissuþættir og lausn- armöguleikar margir“. Tekið er fram að Framkvæmdasýsla ríkisins áætli kostnaðinn 157- 182 milljónir kr. Kostnaður við stofnun innanríkis- og velferð- arráðuneytis sé nú þegar 243,4 milljónir og kostn- aður af stofnun efna- hags- og við- skiptaráðuneytis 24,2 milljónir kr. Dýrt að flytja SAMEININGIN KOSTAR Jóhanna Sigurðar- dóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.