Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 & Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 • www.tonastodin.is Tónastöðin býður upp á mikið úrval hljóðfæra og nótnabóka fyrir allar tegundir tónlistar og leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. Rauðagerði 25  108 Reykjavík  Sími 440 1800  kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Verð kr. 99.900 Vita Mix kanna fylgir með meðan birgðir endast Blandarinn sem allir vilja! Miðvikudaginn 11. apríl sl. skrifaði fyrr- verandi rekstrarstjóri Vegagerðarinnar í Fellabæ grein í Morg- unblaðið til að sýna fram á gríðarlegan ávinning af heilsársvegi um Öxi. Í þessari grein kom hvergi fram hvað kostnaðurinn við snjó- mokstrana á þessu ill- viðrasama svæði í 530 m hæð yrði mikill. Útilokað er að Vegagerðin geti tryggt að Öxi sleppi endanlega við 6-10 metra snjódýpt og 25-35 m veðurhæð á sekúndu hvort sem þessi vegur milli Skriðdals og Berufjarðar verður byggður upp eða ekki. Nú halda Austfirðingar að fyrr- verandi rekstrarstjóri, Guðni Nikulás- son, hafi fullyrt í grein sinni að með- alumferð ökutækja á sólarhring verði enn meiri í gegnum Héðinsfjarð- argöngin en um Axarveginn eftir tæpa þrjá áratugi. Fram kom hjá greinarhöfundi að árið 2041 yrði umferðin um Öxi komin í 320 bíla þegar hann hélt því fram að ávinningur umferðar- og veghaldara gæti á 30 árum orðið um 19 milljarðar króna vegna styttingar á þessari leið milli Skriðdals og Berufjarðar. Engar áhyggjur hafa stuðningsmenn Ax- arvegar af því hvernig vel upp- byggðum vegi í 530 m hæð á þessu ill- viðrasama svæði yrði haldið opnum þegar illt er að eiga við fjárveit- ingavaldið sem setur hnefann í borðið til að forðast kostnaðinn við snjó- mokstrana eins og heitan eld með skilaboðunum „hingað og ekki lengra“. Í þessari hæð milli Skriðdals og Berufjarðar geta stuðningsmenn Axarvegar og Héðinsfjarðarganga á sunnanverðum fjörðunum og Fljóts- dalshéraði ekki sett fram kröfu um að starfsmenn Vegagerðarinnar leggi sig í óþarfa hættu til að halda þessum snjóþunga farartálma opnum í alltof mikilli veðurhæð alla vetrarmánuðina. Í innanverðum Berufirði getur upp- byggður vegur í 7% halla breyst í dauðagildru ef illa fer. Nú finna menn fyrir því að samanlagt hafa snjó- mokstrarnir á Öxi orðið ennþá dýrari en Almannaskarðsgöngin sem rík- isstjórn Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, lét flýta í febrúar 2003. Þeir heimamenn á suðurfjörð- unum sem börðust fyrir þessari sam- göngubót til að losna við slysagildruna í Almannaskarðinu voru í kjölfarið rakkaðir niður af stuðningsmönnum Héðinsfjarðarganga á Austurlandi og gerðir að óbótamönnum. Hugmyndin um uppbyggða heilsársvegi á ill- viðrasömum og snjóþungum svæðum sýnir hvað Íslendingar njóta þess að vera langt á eftir Norðmönnum sem eru löngu hættir að fara með sína vegi upp í 200 metra hæð yfir sjávarmáli. Siðblind umfjöllun sem stuðnings- menn Axarvegar nota gegn jarð- gangagerð Norðmanna og Færeyinga er til háborinnar skammar. Þetta nota talsmenn hálendisvegarins á Íslandi til árása á báðar frændþjóðir okkar með þeim falsrökum að bættar sam- göngur í formi jarðganga hafi gert þær gjaldþrota, sem er fjarri öllum sanni. Hugmyndin um uppbyggðan Axarveg tryggir aldrei að Djúpivogur, Fljótsdalshérað og Egilsstaðir verði á einu samfelldu atvinnu- svæði um ókomin ár. Til þess er Öxi alltof ill- viðrasöm og snjóþung þó að andstæðingar Al- mannaskarðs- og Fáskrúðsfjarðar- ganganna á Austfjörðum andmæli því. Með hverj- um degi sem líður minnka líkurnar á því að Axarvegur sé í sjónmáli eftir að Skipulags- stofnun neitaði að sam- þykkja þessa fram- kvæmd. Á Djúpavogi og víðar á suðurfjörð- unum viðurkennir meirihluti heima- manna að tími fjallveganna sé liðinn. Þar fellur hugmyndin um að þessi vegur í innanverðum Berufirði fari upp í snarbratta fjallshlíðina fyrir neðan Mannabeina- og Miðhjalla í grýttan jarðveg. Nógu mikil er slysa- hættan á veginum niður Háuöldu og í brekkunni fyrir ofan brúna á Hemru án þess að klettarnir uppi í fjallinu verði sprengdir burt með skelfilegum afleiðingum. Þá tekst aldrei að bjarga mannslífum ef aurskriður sem enginn sér fyrir sópa veginum niður fjalls- hlíðina. Þarna geta grjóthrun og snjó- flóð líka tekið sinn toll. Að loknum al- þingiskosningum 2007 var kynnt önnur hugmynd um að vegurinn yrði tekinn upp úr Berufjarðardal fyrir neðan Víðineshjalla. Of mikil slysa- hætta fylgir því að fara með hann upp í fjallshlíðina fyrir ofan Beitivelli. Dauðagildrur í Berufirði Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson »Hugmyndin um upp- byggða heilsársvegi á illviðrasömum og snjó- þungum svæðum sýnir hvað Íslendingar njóta þess að vera langt á eftir Norðmönnum sem eru löngu hættir að fara með sína vegi upp í 200 metra hæð yfir sjávarmáli. Höfundur er farandverkamaður. mæld 2008, er átta ár hjá körlum og sjö ár hjá konum. Til samanburðar eru þessar tölur á Íslandi 17 ár hjá körlum og 20 ár hjá konum. Ímyndið ykkur að þið hefðuð ekki kost á grunnmenntun, að lífsbaráttan í land- inu ykkar væri það hörð að menntun mætti afgangi. Maddelein vinkona mín er í þeirri stöðu. Þrír stærstu þjóðflokkarnir í Sene- gal eru Wolof (43,3%), Pular (23,8%) og Serer (14,7%). Flestir tala Wolof í Senegal þó þeir séu ekki af Wolof- þjóðflokknum en franska er opinbera málið og lögð er áhersla á franskt rit- mál í skólum landsins. Ritmál Wolof er talsvert á reiki sökum þess að það er almennt ekki kennt og eðlilegt er að þeir sem lokið hafa skólagöngu skrifi ritmálið með frönskum „slett- um“. Gott dæmi er orðið vinur „xa- rit“, ég hef séð heimamenn skrifa það á ýmsan hátt en algengast er að sjá þá bæta „e“ fyrir aftan „xarite“ sem er í raun ekki rétt ritun. Stafsetning skiptir ekki máli að mati heima- manna. Þetta er svolítið ruglingslegt fyrir okkur Íslendingana sem erum alin upp við mjög stífa ritun íslensk- unnar. Þegar litið er til hvaða áhrif þetta hefur á hinn almenna borgara er það úrræðaleysi. Skrifræðið er mikið og stjórnsýslan hæg í Senegal. Í fátækrahverfinu í Dakar eru fjöl- margar konur sem eru ólæsar, óskrif- andi og tala enga frönsku. Bjargir því takmarkaðar, þá sérstaklega fyrir þær sem eru einstæðar. Víða í Dakar sérðu heimilslausar konur sofandi á gangstéttum með börnin sín hjúfruð að sér. Félagslegt net fólksins er fjöl- skyldan og stuðning er að finna hjá athvörfum fyrir þessar konur sem eiga ekki fjölskyldu, en ekki hjá hinu opinbera. Þessi sjón, sofandi kona á gangstétt með teppi yfir sér og barninu sínu, fær mann til þess að skilja trygginguna sem felst í fjöl- kvæninu í Senegal og ástæðu þess að stórfjölskyldan býr þröngt saman. Maddelein er heppin að eiga fjöl- skyldu. Hún veit þó hvað hana vantar og hvað hana langar að gera í fram- tíðinni, hún á sinn draum. Draum- urinn hennar er að fara í kokkaskóla, en þangað kemst hún ekki nema að læra að lesa og skrifa. Hún hefur aft- ur á móti ekki efni á því að fara í nám því launin hennar fara beint til fjöl- skyldu hennar. Margar konur eru í hennar sporum. Þær langar að læra en hafa ekki tækifæri til þess. Karl- arnir eru aðeins betur staddir hvað varðar lestur en þó eru um 30-40 % karla eldri en 15 ára sem ekki kunna að lesa. Að kunna ekki að lesa árið 2012 er ekki í lagi. Við hljótum að sjá það öll. Að minna á ólæsið í Afríku er til- gangur greinarinnar, að fólk sjái að á bak við tölur um ólæsi eru mann- eskjur eins og Maddelein sem þráir að læra og langar að eiga sína eigin Facebooksíðu. Manneskjur sem geta kennt okkur svo margt um hvernig lifa skal af við aðstæður sem við myndum kalla óviðunandi. Hugsið um þetta þegar talið berst að fullorð- insfræðslu í Afríku, hvernig get ég hjálpað? »Meðaltalsskólaganga Senegala, mæld 2008, er átta ár hjá körl- um og sjö ár hjá konum. Til sambanburðar eru þessar tölur á Íslandi 17 ár hjá körlum og 20 ár hjá konum. Höfundur er þróunar- og stjórnmálafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.