Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 31
Fjölskylda Jóhann Páll kvæntist 29.8. 1974 Guðrúnu Sigfúsdóttur, f. 13.1. 1953, ritstjóra Forlagsins og kennara. Hún er dóttir Sigfúsar Halldórssonar, f. 20.1. 1922, d. 15.3. 1982, versl- unarmanns, og Sigurborgar Helga- dóttur, f. 24.10. 1928, röntgen- hjúkrunarkonu. Sambýlismaður Sigurborgar var Einar V. Sigurðs- son, f. 9.2. 1930, d. 7.2. 2003, vélstjóri. Börn Jóhanns Páls og Guðrúnar eru Egill Örn, f. 4.3. 1974, fram- kvæmdastjóri Forlagsins, eiginkona hans er Þórhildur Garðarsdóttir, f. 29.5. 1973, fjármálastjóri Forlagsins en börn þeirra eru Kristján Dagur, f. 28.4. 2003, og Guðrún Klara, f. 3.5. 2006; Sif, f. 7.10. 1980, aðstoð- arútgáfustjóri JPV og nemi við HÍ, eiginmaður hennar er Arnar Hrafn Gylfason, f. 17.11. 1980, framleiðandi hjá CCP en börn þeirra eru Bríet Jó- hanna, f. 11.5. 2009, og Selma Rún, f. 5.8. 2011; Valdimar, f. 11.10. 1988, há- skólanemi og vinnur á skrifstofu For- lagsins, kærasta hans er Elsa Mjöll Bergsteinsdóttir, f. 23.6. 1991, nemi. Systkini Jóhanns Páls eru Ásgeir Már Valdimarsson, f. 30.10. 1942, umsjónarmaður en hann á dæturnar Ingunni, Þórunni, Steinunni Ósk, El- ísabetu og Elínu Ósk og synina Örn Frosta og Óðin; Anna, f. 25.6. 1948, sálfræðingur en hún á synina Valdi- mar, Jón Helga og Jóhann Pál. Foreldrar Jóhanns Páls: Valdimar Jóhannsson, f. 28.6. 1915, d. 27.1. 1999, bókaútgefandi, og Ingunn Ás- geirsdóttir, f. 23.5. 1922, d. 16.5. 2010, húsmóðir. Úr frændgarði Jóhanns Páls Valdimarsson ar Daníel Guðnason frá Bakkavelli á Hvolsvelli Ingunn Jósafatsdóttir húsfreyja Jón eldri Jónsson Fögruhlíð í Fróðárhreppi Sigurlín Jóhannesdóttir húsfreyja Jóhannes Larsen stýrimaður Jón Halldórsson b. á Hjaltast. í Svarfaðard. Sigríður Ólafsdóttir frá Miðlandi Öxnadal Jóhann Páll Valdimarsson Valdimar Jóhansson útg. í Rekjavík Ingunn Ásgeirsdóttir húsfr. á Seltjarnarnesi Ólafía Jónsdóttir húsfr. í Keflavík Ásgeir Theódór Daníelsson hafnarstj. í Keflavík Jóhann Páll Jónsson kennari á Skriðulandi Anna Jóhannesdóttir húsfr. á Skriðulandi Guðrún Guðmundsd. frá Stóra Dunhaga Emil Tómasson bóndi Regína Thor.sen fréttaritari Emil Thor.sen útgerðarstjóri Morgunblaðið/Golli Afmælisbarnið Jóhann Páll Valdimarsson. Morgunblaðið/Golli Útgáfa á bók bókanna Jóhanna Páll og Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís- lands, skrifa undir samning um útgáfu á nýrri þýðingu Biblíunnar. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 90 ára Bergljót Jakobsdóttir Jónína Kristjánsdóttir 85 ára María Gísladóttir Rannveig Ólafsdóttir Sigríður Ólafsdóttir 80 ára Gyða Guðmundsdóttir Ingibjörg Guðmundsdóttir Lilja Hallgrímsdóttir Sveinbjörn B. Blöndal 75 ára Birgir Lúðvíksson Guðmundur M. J. Björnson Hrafnhildur Ólafsdóttir Kári Ævar Jóhannesson Loftur Andri Ágústsson 70 ára Gísli Garðar Óskarsson 60 ára Aðalsteinn Gottskálksson Else Birgit Olsen Guðmundur Ásgeirsson Guðmundur Sverrir Ólafsson Hildur Sigurbjörnsdóttir Hörður Smári Þorsteinsson Jóhann Páll Valdimarsson Jón Hjörtur Gunnlaugsson Kristín Bryndís Óladóttir Þorsteinn Vilhelmsson Þórhildur Jónsdóttir 50 ára Andrea Thorarensen Ewa Brzeczak Friðrik Hjaltalín Gísli Ríkarðsson Guðrún Sigríður Guð- mundsdóttir Jerzy Piotrowski Ólöf Þorvaldsdóttir Sigurbjörn Árnason Sigurlaug Garðarsdóttir Steinþór Bragason Sverrir Hjörleifsson Þórey Helgadóttir 40 ára Albert Már Eggertsson Almar Guðmundsson Anna Vigdís Kristinsdóttir Árdís Grétarsdóttir Guðrún Jóhanna Halldórs- dóttir Halldór Kjartan Þor- steinsson Heiðdís Pétursdóttir Íris Helma Ómarsdóttir Jakob Sigurðsson Jón Sigurður Eyjólfsson Kristín Ólafsdóttir Sigríður Þorbergsdóttir Sólveig Lilja Óskarsdóttir Sylwester Wasilewski Þórunn Jónsdóttir 30 ára Agnieszka Maria Lichy Alda Diljá Jónsdóttir Ármann Árnason Björn Gaui Haraldsson Brjánn Guðjónsson Daníel Freyr Kristínarson Diljá Kristjánsdóttir Elín Margrét Þráinsdóttir Guðrún Anny Hálfdán- ardóttir Gyða Guðrún Magnúsd. Hlíðberg Hanna Dís Whitehead Íris Ósk Guðsteinsdóttir Pawel Aleksander Sliwa Sigurgísli Bjarnason Steindór Kristinn Jónsson Til hamingju með daginn 30 ára Brjánn lauk prófi í steinsmíði í Englandi og er framkvæmdastjóri S. Helgason - Steinsmiðju. Kona Guðrún Auður Böðvarsdóttir, f. 1989, hárgreiðslukona og nemi. Börn Sigrún Sól, f. 2009, og Guðjón Máni, f. 2011. Foreldrar Guðjón Brjánss., f. 1955, forstjóri HVE og Linda Olsen, f. 1958, leikskólakennari. Stjúpm. Dýrfinna Torfa- dóttir, f. 1955, gullsm. Brjánn Guðjónsson 40 ára Þórunn fæddist í Keflavík, ólst upp í Vogum og starfar við Prjónast. Kidka á Hvammstanga. Eiginmaður Jakob Ást- mar Jóhannsson, f. 1969, skólabílstjóri. Sonur Hermann Grétar Jakobsson, f. 1999. Foreldrar Jón Grétar Guðmundsson, f. 1949, múrari í Reykjavík, og Hrönn Bergsdóttir, f. 1949, aðstoðarverkstjóri í fiskvinnslu. Þórunn Jónsdóttir Benedikt Davíðsson, forsetiASÍ, fæddist á Patreksfirði3. maí 1927 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Davíð Dav- íðsson, smiður, sjómaður og formað- ur Verkalýðs- og sjómannafélags Patreksfjarðar, síðar oddviti á Sel- látrum, og f.k.h., Sigurlína Bene- diktsdóttir verkakona. Davíð oddviti var sonur Davíðs, smiðs á Geirseyri Jónssonar, og Elínar Ebenesers- dóttur, b. á Vaðli Þórðarsonar. Bróðir Sigurlínu var Guðmundur, sjómaður á Patreksfirði, faðir Bene- dikts, fyrrv. siglingamálastjóra. Sig- urlína var dóttir Benedikts, skip- stjóra á Patreksfirði Sigurðssonar, bókbindara í Botni, bróður Sól- veigar, langömmu Guðmundar J. Guðmundssonar, fyrrv. formanns Dagsbrúnar. Móðir Sigurlínu var Elín Sveinbjörnsdóttir, bróður Gísla, föður Gísla á Uppsölum. Fyrri kona Benedikts var Guðný Stígsdóttir saumakona sem lést 1972 en þau eignuðust fjögur börn. Seinni kona hans var Finnbjörg Guð- mundsdóttir skrifstofumaður en þau eignuðust tvö börn. Benedikt og Finnbjörg skildu. Benedikt stundaði sjómennsku og fiskvinnslu á Patreksfirði 1942-45, var iðnnemi í húsasmíði í Reykjavík og lauk sveinsprófi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1949. Benedikt stundaði húsasmíðar í Reykjavík 1949-54, 1957-60 og 1965- 68 og starfaði hann að félagsmálum hjá Trésmíðafélagi Reykjavíkur 1954-57 og frá 1970 og hjá ASÍ á ár- unum 1960-65. Hann var forseti ASÍ 1992-96. Benedikt var formaður Trésmíða- félags Reykjavíkur 1954-57, sat í miðstjórn ASÍ 1958-88, sat í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs um árabil, var formaður Sambands byggingarmanna 1966-90, sat í stjórn Lífeyrissjóðs bygging- armanna og í framkvæmdastjórn Sambands almennra lífeyrissjóða , í bankaráði Iðnaðarbankans og var formaður bankaráðs Alþýðubankans 1976-87.Hann sat í miðstjórn Sósíal- istaflokksins 1956 og lengst af í mið- stjórn og framkvæmdastjórn Al- þýðubandalagsins . Benedikt lést 13. nóvember 2009. Merkir Íslendingar Benedikt Davíðsson 30 ára Steindór ólst upp á Akureyri, lauk atvinnu- flugmannsprófi og er flugmaður hjá Norlandair. Kona Helga B. Ingvadótt- ir, f. 1982, viðskiptafræð- ingur hjá Íslenskum verð- bréfum. Dóttir Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, f. 2009. Foreldrar Fjóla Trausta- dóttir, f. 1955, starfar hjá Toyota á Akureyri, og Jón Steindórsson, f. 1955, verktaki í Kópavogi. Steindór Krist- inn Jónsson Ceramide Gold ambúlur fyrir augnsvæðið, með hjálp náttúru- legra efna þéttist húðin og liftist. Ceramide Gold ambúlurnar gefa húðinni aukið „boost“. Kröftug og áhrifarík meðferð fyrir andlit og háls. Byrjaðu strax í dag, gefðu húðinni aukið vítamín og hún viðheldur æskuljóma sínum. Kynnum Ceramide línuna frá Elizabeth Arden. Ceramide er andlitslína með mikilli virkni sem skilar frábærum árangri. 15% kynningarafsláttur á Ceramide-línunni í verslunum Hagkaups

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.