Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Skechers GOwalk fisléttir og sveigjanlegir Það kemur vel á vondan þeg-ar gagnrýnandi þarf aðskrifa um Afmælisveislunaeftir nóbelsskáldið Harold Pinter. Leikritið er viðurkennt meistarastykki leikbókmenntanna, verk sem fékk dræmar móttökur fyrst en varð síðan óumdeild snilld. Er hægt að vera með einhverjar að- finnslur? Þegar við bætist að tals- vert skrið er á minningum persón- anna og jafnvel nöfnum og að fram fara samtöl sem eru óskiljanleg vandast málið enn. Í stað þess að hringja í vin er hægt að glugga í The Theatre of the Absurd eftir Martin Esslin. Esslin segir eitthvað á þá leið að verkið hafi meðal annars verið túlkað sem táknsaga um hvernig menn eru felldir í sama mót þar sem Stanley, píanistanum og listamanninum, er þröngvað í jakkaföt af útsendurum borgaralegs samfélags. Hann bend- ir á að verkið geti alveg eins verið táknsaga um dauða þar sem maður er rifinn úr hlýju heimilisins sem hann hefur búið sér. Esslin hefur þó ekki trú á þessum túlkunum. Með því sé verið að ganga út frá að verk- ið hafi verið skrifað til að tjá fyrir- framgefna hugmynd en Pinter hafi ekki sagst vinna á þann hátt. Hann hafi unnið út frá aðstæðum og per- sónum. Með þetta í huga ætti þá að vera nokkuð frítt spil til að velta vöngum. Það sem mætir áhorfandanum þegar gengið er í salinn fyrir sýn- ingu er herbergi með ljósu vegg- fóðri á lofti, veggjum og gólfi. Tón- list sem gæti verið frá þeim tíma sem verkið var samið, árið 1958, fyllir loftið. Í veggfóðrinu mótar fyr- ir hurðum og opi á vegg. Í upphafsatriðinu kynnumst við þeim Meg og Petey sem eiga og reka lítið gistihús við sjávarsíðuna á Englandi. Kristbjörg Kjeld er veitingakonan Meg og Erlingur Gíslason er hreint afbragð sem Pe- tey eiginmaður hennar. Samtal þeirra í upphafi þar sem hann gluggar í blað dagsins og tekur við spurningum hennar og spjalli er hversdagslegt, mein- og innihalds- laust á einhvern sérstaklega við- felldinn og ekta hátt og er ein besta senan í þessari uppfærslu. Við kom- umst að því að þau eru með gest sem heitir Stanley sem Meg hefur miklar mætur á. Þegar Stanley, leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni, bætist í hópinn sér maður smátt og smátt að hann er þarna sennilega til að láta lítið fyrir sér fara en hann á sér að eigin sögn, fortíð sem píanó- leikari. Við tekur atburðarás sem er í stuttu máli sú að tveir viðbótar- gestir koma í heimsókn, McCann, leikinn af Birni Thors, sem er taugaveiklað hrottamenni, og Gold- berg, leikinn af Eggerti Þorleifs- syni. Þeir hafa sérstakan áhuga á Stanley og virðast eiga eitthvað óuppgert við hann enda eiga þeir eftir að þjarma að honum. Haldið er upp á afmæli hans sama kvöld, sem hann segir að vísu að sé í næsta mánuði. Þar slæst Lulu, ung stúlka og nágranni, í hópinn og við tekur drykkja og skollaleikur þar sem gestirnir tveir láta Stanley áfram finna til tevatnsins. Daginn eftir er hann kominn í jakkaföt og ófær um að tjá sig. Hann er síðan leiddur í burtu af gestunum tveimur. Þó að maður viti ekki nákvæm- lega hvaðan Stanley og gestirnir tveir koma, hvort hann er alltaf að segja satt, hvað það nákvæmlega er sem gestirnir eiga sökótt við hann og ásakanir þeirra í hans garð séu fáránlegar og innbyrðis ósamrýmanlegar er hægt að lesa úr samskiptunum lýsingu á ógninni sem starfar af þeim sem taka sér vald og beita því. Stanley er borinn sundurleitum sökum, misþyrmt og leiddur frá þeim stað þar sem hann leitaði skjóls. Þegar Petey ætlar að malda í móinn er honum hótað svip- aðri afgreiðslu ef hann hagi sér ekki. Af ágætum leikarahópi má auk Erlings nefna Ingvar E. Sigurðsson sem skilar Stanley með sannfær- andi hætti, fyrst dekruðum, þá stressuðum og að lokum yfirbug- uðum. Björn Thors dregur upp sannfærandi af mynd af taugaveikl- uðum og hálf-álappalegum hrotta. Það er líka pínulítið gaman að þeirri mjúku rödd og ró sem Eggert Þor- leifssonar bregður fyrir sig í hlut- verki Goldbergs. Kannski hefði upp- færslan fangað áhorfandann betur ef hún hefði verið örlítið hófstilltari og miðlað af meiri krafti þeirri ískyggilegu ógn sem þar glittir í. Að taka sér vald Afmælisveislan bbbnn Afmælisveislan eftir Harold Pinter Leikarar: Björn Thors, Eggert Þorleifs- son, Erlingur Gíslason, Ingvar E. Sig- urðsson, Kristbjörg Kjeld og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Leikmynd: Gretar Reynisson, búningar: Helga I. Stefáns- dóttir, hljóðmynd: Kristinn Gauti Ein- arsson, lýsing: Ólafur Ágúst Stefáns- son, þýðing: Bragi Ólafsson. Aðstoðarleikstjóri: Stefán Hallur Stef- ánsson. Leikstjórn: Guðjón Pedersen. Kassinn, Þjóðleikleikhúsið. Þriðja sýn- ing 29. apríl 2012 SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Sannfærandi „Ingvar E. Sigurðsson [...] skilar Stanley með sannfærandi hætti, fyrst dekruðum, þá stressuðum og að lokum yfirbuguðum.“ Karlakórinn Stefnir og stjórn- andi hans Gunn- ar Ben fara vítt á vængjum söngs- ins við undirleik Judit Thorberg- son á vortón- leikum í Norður- ljósasal Hörpu í kvöld kl. 20. Á dagskrá verða sígildar söng- perlur, s.s. Þér landnemar, Man- söngur, Við Tungnaá, dægurperlur eins og Yesterday og Suður um höf- in og líka gleðisöngvar og ölvísur á borð við Glösin fleytifyllið þér, Söngvatnið, Ölerindi og Í krá að kirkjubaki. Vortónleikar Stefnis í Hörpu Gunnar Ben Í kvöld kl. 20 halda Finnur Karlsson og Haukur Þór Harðarson útskriftar- tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík en þeir útskrifast báðir með BA-gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands í vor Á efnisskrá tónleikanna eru verk sem Finnur samdi við sálminn Eymd- artíð mesta yfir stendur nú, Rhezocs, sem Finnur vann út frá fyrstu tveim töktunum í fyrsta verkinu sem hann samdi fyrir Maríu Ösp Ómarsdóttur, útskriftarnemanda í flautuleik frá LHÍ, og The End/Old Tape, sem Haukur Þór Harðarson samdi fyrir sextán manna kammersveit, en þetta er fyrsta tilraun Hauks til að skrifa verk þar sem notaður er utanaðkom- andi efniviður við tónsmíðarnar. Úlfar Ingi Haraldsson stjórnar flutningi verkanna. Finnur Karlsson hlaut stærstan hluta tónlistaruppeldis í Skóla- hljómsveit Kópavogs þar sem hann lærði á barítónhorn. Eftir útskrift þaðan hóf hann nám við Tónlistar- skóla Sigursveins D. Kristinssonar þaðan sem hann lauk framhaldsprófi 2009. Sama ár hóf hann tónsmíðanám við Listaháskólann. Finnur hefur iðulega komið fram með ýmsum hljóðfærahópum og kór- um og er nú meðlimur í hljómsveit- unum Orphic Oxtra og Mikado og syngur með Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík og Hljómeyki. Verk eftir Finn hafa verið valin til flutnings á ýmsum tónlistarhátíðum auk þess sem hann skrifaði tónlistina fyrir uppfærslu Útvarpsleikhúss Ríkisútvarpsins á leikritinu Undan- þágunefndin eftir Gunnar Gunn- arsson. Haukur Þór Harðarson hóf tónlist- arnám í forskólanum hjá Tónlistar- skóla Seltjarnarness og lærði síðan á básúnu. Hann fékk síðar áhuga á djasstónlist og hóf nám við Tónlistar- skóla FÍH sautján ára. Haukur Þór hóf nám í tónsmíðum við Listahá- skóla Íslands árið 2009. Hann hefur tekið talsverðan þátt í tónlistarlífi innan Listaháskólans og leikur meðal annars með hljómsveitinni Orphic Oxtra. Útskriftartónleikar í Fríkirkjunni  Tónsmíðanemar halda tónleika Finnur Karlsson Haukur Þór Harðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.