Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Sprett úr spori Það getur verið bagalegt að missa af strætó en þessi ungmenni ætluðu ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana og hlupu í loftköstum til að komast í vagninn. Golli Vegna umræðu um sölu muna frá heimsmeistara- einvíginu í skák 1972 tel ég rétt að eftirfarandi komi fram. Atburðarás þessi fór öll af stað eftir að ég hætti sem forseti Skáksambandsins en eftir því sem ég best veit eru þetta aðalatriði málsins. 1) Á árinu 1974 ákvað Skák- sambandið í samráði við Sverri Kristinsson hjá Eignamiðlun að láta smíða tvö skákborð sem eru nákvæm eft- irlíking borðsins sem teflt var á í einvíg- inu, tveim árum áður. Sverrir mun hafa kostað smíðina og átti annað borðið en af- henti Skáksambandinu hitt. Þetta var gert í fjáröflunarskyni og tók Sverrir að sér í umboði Skáksambandsins að selja borðin. 2) Í bók Þráins Guðmunssonar um sögu Skáksambandsins segir að borðunum átti að fylgja taflplatan, viðarplata, sem síðari hluti einvígisins var tefldur á. Hann segir þar að tilraunir Skáksambandsins að selja borðin erlendis hafi ekki borið árangur en þau voru meðal ann- ars boðin Íranskeisara og hátt- settum mönnum hjá Al- þjóðaskáksambandinu. 3) Skáksambandið bauð síðan ann- að borðið sem verðlaun í hluta- veltu en það gekk ekki út. 4) Að lokum keypti Páll G. Jónsson bæði borðin með taflplötum, við- arplötum sem áritaðar voru af Fischer og Spassky, ásamt hlið- arborðum, taflmönnum og klukku sem voru sömu gerðar og notað var í einvíginu. Páll styrkti þannig fjárhag sam- bandsins og hefur nú átt þessa hluti í nærfellt fjörutíu ár. 5) Af bók Þráins og undirrituðum skjölum sem Sverrir hefur undir höndum má ráða að Páll hafi keypt taflplötuna sem 7.-21. skákin var tefld á. Þessi fjárvana áhuga- mannasamtök, Skáksambandið, seldu þennan grip fyrir nær 40 árum í fjáröfl- unarskyni og freistuðu þess að selja hann úr landi. 6) Nú vill Páll selja annað borðið með plöt- unni og er ekki unnt að áfellast hann. Mér vitanlega lagði hann talsvert á sig að finna kaupendur innanlands enda umhug- að um að gripirnir héldust í landinu. Rætt var m.a. við bankastjóra og borgarfulltrúa en án árangurs. 7) Af ofansögðu er ljóst að Skáksambandið lét gera borðin með það fyrir augum að selja þau og plötuna sem teflt var á til út- landa, en tókst ekki. Svo virðist nú sem munir þessir fari nú til útlanda eins og Skáksambandið stefndi upphaflega að. 8) Ávinningur er að því að Skáksambandið nú freisti þess að gera skrá yfir gripi tengda einvíginu en mikið af hvers kyns minjagripum var framleitt til sölu í fjár- öflunarskyni. Til að mynda er mér tjáð að talsvert af minjapeningum hafi verið brætt vegna gullinnihalds. 9) Rétt er að árétta að allir helstu munirnir sem notaðir voru í heimsmeistaraeinvígnu eru nú í eigu Þjóðminjasafnsins, nema þessi tréplata sem 7.-21. skákin var tefld á. Þar er hins vegar steinplatan sem fyrstu skákirnar voru tefldar á. 10) Mitt mat er að þeir gripir sem Skák- sambandið gaf Þjóðminjasafninu væru um 150-200 m króna virði ef seldir væru á uppboði og hafa líklega meiri alþjóðlega skírskotun en flestir munir safnsins. 11) Vert er einnig að velta fyrir sér að fátt er svo með öllu illt … Í söfnum margra landa eru fornmunir frá t.d. Egyptalandi og Grikklandi. Það hefur átt mikinn þátt í að kynna heimsbyggðinni sögu þessara landa, fremur en ef þeir væru geymdir í einu safni í Kaíró eða Aþenu. Fari ein- hverjir munir sem tengjast einvíginu á safn erlendis eða staði þar sem þeir eru aðgengilegir almenningi mun það vekja og viðhalda athygli á Íslandi og einvíginu. 12) Því miður hafa Íslendingar ekki verið áhugasamir um að koma upp safni um þennan mikla atburð fyrr en Þjóðminja- safnið nú. Margir útlendingar spyrja mig, hvar var teflt? Á Laugardalshöllinni er lít- ill skjöldur sem Einar S. Einarsson festi þar til minningar um atburðinn. Eftir Guðmund G. Þórarinsson » Þessi fjárvana áhuga- mannasamtök, Skáksam- bandið, seldu þennan grip fyrir nær 40 árum í fjáröflunarskyni og freistuðu þess að selja hann úr landi. Guðmundur G. Þórarinsson. Höfundur er verkfræðingur. Munir frá heimsmeistaraeinvíginu Sumar fiskitegundir, svo sem makríll, lax, síld, loðna og kol- munni, eiga það til að ferðast um heiminn án vegabréfs, að færa sig milli landa eða nánar til tekið milli hafsvæða sem heyra undir lög- sögu einstakra ríkja. Þó veiðiheimildir séu í eigu hagsmunaaðila í mörgum löndum er ekki ýkja auð- velt að komast að samkomulagi um ákveðnar reglur varðandi skiptingu veiða í stofnunum. Þarna kemur hafréttarsáttmáli Sameinuðu þjóðanna til sögunnar með því að fastsetja viðmiðanir um stjórnun fiskveiða, þar sem tekið er tillit til verndarsjónarmiða, sam- ráðs, viðurkenndra gagna og vís- indalegra vinnubragða, svo og sann- girnissjónarmiða varðandi samfélög í dreifbýli og sjávarbyggðum. Sam- kvæmt hafréttarsáttmálanum hafa fjögur lönd (Rússland, Noregur, Ís- land og Færeyjar) ásamt ESB rétt til að nýta makríl og villtan lax. Að sjálfsögðu er að- almarkmið fisk- veiðistjórnunarinnar sjálfbærni og hámarks- nýting stofnanna. Eins og sjá má af sam- anburði á aflaskýrslum um laxveiði hefur ESB ekki átt glæstan feril í þessu efni. Hvernig hefur þetta þá komið út í reynd, miðað við síðustu ár? Noregur og ESB hafa reyndar haft samvinnu en hún hefur takmarkast við að neita Íslendingum um sæti við samningaborðið. Þess í stað lögðu þessi ríki fram tillögu um að úthluta sjálfum sér réttindum yfir 90% af makrílkvótanum og 100% af laxa- kvótanum en skilja ekkert eftir handa Færeyjum og Grænlandi, enda þótt í sjónum við þessi tvö lönd séu helstu uppvaxtarstaðir fyrir villtan lax. Auk þess hafa Noregur og ESB lagt til að teknar verði upp vísinda- legar reikniaðferðir sem banna lönd- um eins og Grænlandi og Færeyjum „veiðar úr blönduðum stofnum“ en leyfa Írlandi, Skotlandi og Noregi að stunda þær án takmarkana. Mestur hluti vorlaxins sem veiddur er í atvinnuskyni í Norður-Noregi er lax sem kemur úr rússneskum ám. Makríllinn virðist hafa sínar eigin hugmyndir vegna þess að hann hef- ur tekið upp á því að færa sig sífellt vestar og þéttni svifsins sem hann nærist á er einnig mest í hafinu vestur af Íslandi. Í alþjóðlegum samningum er kvótum venjulega út- hlutað til ríkja í hlutfalli við það hvar lífmassi stofnsins verður til. Rétt er að benda á að meira en 90% af líf- massa villtra laxa verður til alfarið utan lögsögu ESB-ríkja og ekki er snefil af norsk-íslenska síldarstofn- inum að finna í hafsvæðum undir stjórn ESB. Þrátt fyrir þetta hefur ESB gert kröfu til 6,51% af síld- arkvótanum. Hver er þá hin skynsamlega lausn á málinu? Er það með samkomulagi sem byggist á viðskiptahagsmunum og samfélagslegri hagfræði fremur en líffræðilegum gögnum? Ef til vill? Saga undanfarinna ára bendir til þess að ekki sé til neinn grundvöllur til að byggja sanngjarna lausn á. Með góðum vilja og með viðskipta- legar verndaráætlanir í huga hafa Grænlendingar og Færeyingar bjargað allt að tíu milljón löxum sem hefði átt að teljast meiri háttar framlag til að endurreisa alþjóðlega laxastofna Atlantshafsins. En með samþykki stjórnvalda í löndum sín- um hafa fiskimenn í Noregi, Írlandi og Skotlandi drepið jafn marga laxa áður en þeir náðu að hrygna og norðlægu löndin, Grænland, Ísland og Færeyjar, höfðu bjargað. Með þetta í huga, hvernig í ósköpunum getum við treyst þessum þjóðum til að taka á makríldeilunni af sann- girni? Eftir Orra Vigfússon »Meira en 90% af líf- massa villtra laxa verður til alfarið utan lögsögu ESB-ríkja og ekki er snefil af norsk- íslenska síldarstofninum að finna í hafsvæðum undir stjórn ESB. Þrátt fyrir þetta hefur ESB gert kröfu til 6,51% af síldarkvótanum. Orri Vigfússon Höfundur er formaður NASF, vernd- arsjóðs villtra laxastofna. Flökkustofnar – makríll og lax Atlantshafslax, afli 2000-2009 2) Aflaskýrsla Alþjóðahafrannsóknarráðsins (meðalþyngd 2,6 kg) 1) Heildarfiskafli skv. Aflaskýrslum Alþjóðahafrannsóknarráðsins (meðalþyngd 3,2 kg) Ísland 2 Fjöldi í þúsundum ESB-lönd 1 Fjöldi í þúsundum 500.000 400.000 300.000 200.000 100.000 0 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 2000 2009 2000 2009 Þróun laxveiða á Íslandi og hjá ESB löndunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.