Morgunblaðið - 03.05.2012, Side 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012
Bíldshöfði 14 » 110 Reykjavík » Sími 567 6744 » gsvarahlutir.is
Triscan gormar, bremsu- og stýrishlutir
Pöntum á fimmtudögum, varan komin á mánudegi
Allt frá árinu 1974
hefur verið í gangi
þrýstihópur innan Al-
þjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar með það
verkefni að leita leiða
til að stjórna barn-
eignum með bóluefn-
um (Task Force on
Birth Control Vacc-
ines). Þessi þrýstihóp-
ur ásamt Róm-
arklúbbnum og
bankaelítunni hefur verið mjög
upptekinn við að finna leiðir til að
fást við hið svokallaða fólksfjölg-
unarvandamál og fundu vís-
indamenn á þeirra vegum það út,
að hægt væri að nota hCG-
geldingarhormónið. Ekki leið á
löngu uns hCG-hormóninu var
leynilega fyrir komið inni í bóluefn-
um og sérstaklega gefið ungum
konum í Suður-Ameríku, Afríku og
á Filippseyjum. Viðbrögð létu ekki
á sér standa fyrst frá Filippseyjum
þar sem 3,4 milljónir kvenna voru
bólusettar, Nikaragúa, Mexíkó og
svo víða. Vísindaniðurstöður sýndu
síðan fram á að hCG-hormónið hafi
verið notað í tetanus- bóluefninu,
og hjá meirihluta kvenna í rann-
sókninni fannst mótefnið.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sagð-
ist ekki hafa nein svör við hvernig
á því stæði að hCG-hormónið
komst inn í alla framleiðslulínuna á
öllum þessum bóluefnum. Það er
samt merkilegt hvað mikið af vafa-
sömum bóluefnum er í gangi í dag,
hið svonefnda Polío-
bóluefni í Pakistan er
orðið frægt fyrir að
vera aðalástæðan fyrir
lömunum, þar sem 107
urðu fyrir lömunum.
Þá er nú árlega reikn-
að með 100-180 löm-
unum eftir bólusetn-
ingar með
Políó-bóluefninu á
Indlandi á vegum
UNICEF (Telegraph
16. janúar sl). Menn
hafa síðan verið að
velta fyrir sér hvaða
innihaldsefni eða taugaeiturefni eru
eiginlega í þessum bóluefnum?
Bill Gates karlinn kom fram ekki
alls fyrir löngu og sagði að ef okk-
ur tækist mjög vel til með ný bólu-
efni og heilbrigðisþjónustu gætum
við líklegast minnkað fólksfjölgun
um 10 eða 15 prósent (topix.com/
forum/world/australia/
T25MJ5LG3AC9EMCF9).
Er Polysorbate80 eitrið komið
til að vera?
Það er ekki langt síðan vís-
indamenn fundu upp efnið Polys-
orbate80 (eða tween80) en þetta
efni er þekkt fyrir að valda breyt-
ingum á leggöngunum og móðurlífi,
vansköpunum, hrörnun eggbúsins
hjá rottum og auk þess sem efnið
getur komið í veg fyrir að rottur
geti fjölgað sér (agny.blog.is/blog/
agny/entry/1197828/). Ekki leið á
löngu uns þessu efni var komið fyr-
ir í Gardasil-bóluefninu handa ung-
um konum, og síðan í öllu
svínaflensufárinu fréttum við af því
að efninu hefði verið fyrir komið í
bóluefninu gegn svínaflensu. Einn
þrýstihópur skipulagðra kvenna
eða (National Coalition of Org-
anized Women) gaf síðan út tvær
skýrslur í Bandaríkjunum, en í síð-
ari skýrslunni kemur fram að yfir-
völd höfðu haldið aftur upplýs-
ingum frá fólki og að fleiri en 3,587
fósturlát og andvana fæðingar
hefðu átt sér stað eftir bólusetn-
ingu hjá konum á aldrinum 17-45
(ProgressiveConvergence.com).
Það er ekki það að við fréttum ekki
af því að 5 hafi látist eftir bólusetn-
ingar í Svíþjóð, 10 í Noregi
(whale.to/vaccine/swine90.html) og
2 í Ísrael og víða.
Hvað getur maður sagt þegar
sóttvarnalæknir var í því að aug-
lýsa þetta óörugga bóluefni sem
öruggt, og þegar að dr. Tim O’Shea
og fleiri harðlega gagnrýndu það,
þar sem niðurstöður úr klínískum
rannsóknum voru ekki ennþá
komnar fram hjá barnshafandi
konum? En hér var haldið uppi
þessari endemis lygi með að bólu-
efnið væri öruggt handa þeim, er
aðrar þjóðir eins og Sviss vöruðu
við og sögðu að bóluefnið væri ekki
öruggt fyrir börn 18 ára og yngri
og barnshafandi konur.
Hvað gekk hérna á með öllum
þessum endemis ósannindum, og er
það nema vona að maður spyrji eft-
ir að sænskur vísindamaður hefur
fundið eiturefnin Arsenik [As] um
2,421 ppm) og Tin [Sn] um 1,511
ppm í þessu bóluefni (whale.to/v/
toxic8.html)?
Ekki þýðir neitt að spyrja þessa
hagsmunagæslu hjá sóttavarna-
lækni, þar sem menn þar á bæ hafa
nákvæmlega ekkert eftirlit, og
ljúga bara að mönnum, að kvika-
silfur sé ekki í bóluefnum (DV 27.
apríl 2011), þegar 49,6% af Thi-
merosal er kvikasilfur sem notað
var í Pandemrix-bóluefninu gegn
svínaflensu. Við höfum líka svona
sérstakt lið hérna sem fullyrðir, að
taugaeitur sé ekki að finna í bólu-
efnum (Fréttablaðið 27. des. sl.),
þrátt fyrir MSDS (Material Safety
Data Sheet) segir að þetta séu
mjög sterk taugaeiturefni sem not-
uð eru hér í bóluefnum. Ofan á allt
þá höfum við eins og segir svona
sérstakt lið er vill ekki heldur gefa
út bæklinga yfir innihald og auka-
verkanir, líklegast af þeirri ástæðu
að menn eru hræddir um að fólk
myndi hafna bólusetningunni ef
þeir kæmust að hinu sanna um
innihaldið og aukaverkanirnar. Það
verður ekki annað sagt en að þetta
sé allt saman mjög grunsamlegt,
sérstaklega þegar að kaupsamning-
urinn á 300 þúsund skömmtum af
bóluefni var undirritaður löngu áð-
ur hinn 4. maí 2007 og þegar að
svínaflensan kom eins og forskrift
þessara spámanna í september
2009, er auglýstu svo þetta óörugga
„Mock up“-bóluefni með leyfi ein-
göngu undir farsóttarkring-
umstæðum (merkt sem Mock up)
allt í einu sem fullkannað og öruggt
bóluefni, ekki satt? Það er ótrúlegt
til þess að vita ef þessir menn hafa
orðið útundan og ekki fengið greitt
eins og þeir í Bretlandi er svarar
5,25 pund fyrir hverja bólusetningu
eftir allt þetta.
Er leynilega staðið að ófrjósemis-
aðgerðum með bólusetningu?
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson »Hér var haldin uppi
þessari endemis lygi
með að bóluefnið væri
öruggt handa þeim, er
aðrar þjóðir eins og
Svisslendingar vöruðu
við og sögðu að bóluefn-
ið væri ekki öruggt fyrir
börn 18 ára og yngri og
barnshafandi konur.Þorsteinn Sch. Thorsteinsson
Höfundur er formaður Samstarfs-
nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði og
meðlimur í félagi áhugamanna um
bólusetningar.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is