Morgunblaðið - 03.05.2012, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Lækjarmelur 11, fnr. 228-2428, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Ragnar
Egilsson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Hvalfjarðarsveit,
miðvikudaginn 9. maí 2012 kl. 14:00.
Stekkjarholt 2, fnr. 231-1731, Borgarnesi, þingl. eig. Eyþór Eðvarðs-
son, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Borgarbyggð og Íbúðalána-
sjóður, miðvikudaginn 9. maí 2012 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
2. maí 2012.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Bergþórugata 1, 200-8130, Reykjavík, þingl. eig. Páll Björgvinsson,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., mánudaginn 7. maí 2012 kl. 11:30.
Bólstaðarhlíð 33, 201-3166, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Magnús
Guðmundsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn
7. maí 2012 kl. 11:00.
Kirkjustétt 22, 226-8807, Reykjavík, þingl. eig. Hallgrímur Friðgeirsson
og Þorbjörg Dögg Árnadóttir, gerðarbeiðendur Arion banki hf., Frjálsi
fjárfestingarbank hf. og Reykjavíkurborg, mánudaginn 7. maí 2012
kl. 14:00.
Ljósheimar 14-18, 202-2158, Reykjavík, þingl. eig. Rafn Kristján
Viggósson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Lífeyrissjóður
verslunarmanna, mánudaginn 7. maí 2012 kl. 10:00.
Stigahlíð 4, 203-0913, Reykjavík, þingl. eig. Haukur Harðarson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 7. maí 2012 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
2. maí 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Aðalgata 34, fnr. 212-7159, Súðavík, þingl. eig. Rúnar Dagbjartur
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Byko ehf., þriðjudaginn 8. maí 2012
kl. 15:15.
Brekkugata 24, fnr. 212-5452, Þingeyri, þingl. eig. Ásta Sigurðardóttir,
gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær og Vátryggingafélag Íslands hf.,
þriðjudaginn 8. maí 2012 kl. 14:15.
Skólavegur 9, fnr. 212-0326, Hnífsdalur, þingl. eig. Guðrún Oddný
Kristjánsdóttir og Pétur Ármann Jónsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. maí 2012 kl. 10:30.
Sundstræti 34, fnr. 224-0287, Ísafirði, ehl. gerðarþola, þingl. eig.
Sævar Óli Hjörvarsson, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., þriðjudaginn 8. maí 2012 kl. 11:00.
Sundstræti 34, fnr. 224-0295, Ísafirði, ehl. gerðarþola, þingl. eig.
Sævar Óli Hjörvarsson, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., þriðjudaginn 8. maí 2012 kl. 11:30.
Unnarstígur 8, fnr. 212-6578, Flateyri, þingl. eig. Hinrik Rúnar Haralds-
son, gerðarbeiðendur Borgun hf., Íbúðalánasjóður og Ísafjarðarbær,
þriðjudaginn 8. maí 2012 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
2. maí 2012.
Una Þóra Magnúsdóttir ftr. sýslumanns.
Félagsstarf eldri borgara
! "
#
$%& &
%
' (
"
'' ( )
'
! !
! *
)+& " ,
+ " & - $" "& " , )
" $) & .
( )
#! %
'
!
"# $!%&'
!
(
)&*
/)
&
' !
0
" %& "
&
" + ) " )& 2 ,
" !
(
)(* ( )
! ""
'! ,
) "
! "
#
" + !
" ) , 1" + ,
)
" &
3 % -, & +) 4 5 2 (& &
+
'6 4&
3'!
)"
+
' 7+ "+ % 4& ! "+ " + ,%& 4&2
!
,&- .! &!
8
%
&,
' .
%
'' 9:
") %
$
'
/'!
010 %
' ( & ,+ $"
9:
")
'!
% ,
: 2+
) /"
8 ;% ! , <<<
# % .
) "
=
% % 3>8#' " + ???"
3"4- )'"
@
' + .
*& ;&
:&
5" - A&
;
+&
"
3 %
'
6! 71 *
)+&
,
" ' %
>' . )&
)" +
* *"
>' ;&
% B $+" " +
1" % %
>83'
✝ ÁsmundurBjörn Corne-
lius fæddist í
Reykjavík 1. sept-
ember 1946. Hann
varð bráðkvaddur
4. apríl 2012.
Móðir Ásmundar
er Guðrún Inga
Wyman, f. 4. sept-
ember 1928, búsett
í Bandaríkjunum.
Faðir hans var
Pálmi Sævar, f. 18. apríl 1926,
d. 24. apríl 2004.
Ásmundur ólst upp hjá móð-
urömmu og afa sem voru þau
Ágústa Sveinbjörg Ingv-
arsdóttir húsmóðir, f. 22.8.
1904, d. 1. október 1994, og
Björn Sveinsson hafn-
arverkamaður hjá Eimskipum,
f. 30.11. 1900, d. 23.10. 1983. Í
heimili Ágústu og Björns voru
uppeldissystkini Ásmundar þau
Þorvaldur Bergmann, f. 19.1.
1936, d. 13.11. 2011, Birna
Kristín, f. 24.4. 1937, Nonný
exander Freyr, f. 25.9. 1997. 2)
Inga Sveinbjörg Ásmunds-
dóttir, f. 12.4. 1970, gift Kristni
Edgari Jóhannssyni, f. 20.10.
1964. Börn þeirra eru Bergur
Edgar, f. 15.6. 1995, og Gyða
Sveinbjörg, f. 6.3. 2001. 3)
Hrönn Ásmundsdóttir, f. 25.10.
1971, gift Snorra Ólasyni, f.
31.12. 1969. Börn þeirra eru
Ásmundur Ernir, f. 19.2. 1992,
Jóhanna Margrét, f. 15.8. 1995,
og Signý Sól, 23.7. 2004.
Ásmundur var háseti á milli-
landaskipi áður en hann mennt-
aði sig sem vélvirki frá Iðnskól-
anum í Keflavík og þaðan lauk
hann einnig meistaranámi sínu
í faginu. Aðeins 19 ára að aldri
hóf Ásmundur störf hjá Járn-
og pípulagningaverktökum
Keflavíkur hf. (JPK). Þar var
hann verkstjóri í járn-, blikk-
og pípulagningadeild til
margra ára. Ásmundur var
einnig forstöðumaður kælivéla
og heimilistækjaviðhaldsdeildar
Keflavíkurverktaka og Hús-
unar í fjölmörg ár. Hann
gegndi einnig starfi umsjón-
armanns Fráveitu Reykjanes-
bæjar um 6 ára skeið eða til
ársins 2008.
Útför Ásmundar fór fram í
kyrrþey 17. apríl 2012.
Unnur, f. 15.9.
1938, d. 3.1. 2009,
Guðný Ása, f. 10.7.
1942, Sveinjón, f.
14.10. 1943, og
Ásta Droplaug, f.
23.12. 1945. Ás-
mundur var ætt-
leiddur af Frank
Lewis Cornelius,
aðstoðarslökkvil-
iðsstjóra hjá
slökkviliði hersins
á Keflavíkurflugvelli, f. 18.8.
1913, d. 8.9. 1960. Hálfsystkini
sammæðra eru: Kathy, Donna,
Belinda og Ed. Hálfsystkini
samfeðra eru Þórður, Hafdís og
Björney.
Þann 30. október 1965
kvæntist Ásmundur eftirlifandi
eiginkonu sinni Margréti Ein-
arsdóttur, f. 6.1. 1943. Börn
þeirra eru: 1) Þórir Frank, f.
14.12. 1966, kvæntur Sigrúnu
Valdimarsdóttur, f. 11.4. 1968.
Börn þeirra eru Auður Sólrún
Ólafsdóttir, f. 14.4. 1986, og Al-
Elsku besti pabbi okkar.
Kveðjustundin er runnin upp. Þú
varst tekinn frá okkur snarlega.
Við rifjum upp gamlar og góðar
minningar frá uppeldisárum okk-
ar þar sem okkur er efst í huga
þakklæti fyrir góðar samveru-
stundir. Þú varst tæknivæddi
pabbinn í hverfinu. Fyrstur með
allar nýjungar eins og litasjón-
varp, Atari-leikjatölvuna, Soda
stream-tækið, Beta-vídeótækið,
apple IIe heimilistölvuna og svo
lengi mætti telja. Ekki má gleyma
8mm upptökuvélinni og sýningar-
vélinni ásamt risasýningartjaldinu
sem var svo vinsælt í öllum okkar
afmælum. Lengi voru bara til
tvær myndir til að sýna og þær
voru alltaf jafn vinsælar. Þegar á
leið fengum við að sjá gamlar upp-
tökur úr eldri afmælisveislum og
það sló í gegn. Pabba fannst gam-
an að vesenast í þessu fyrir okkur.
Honum fannst svo mikilvægt að
eiga og skrá myndir frá liðinni tíð
fyrir þá sem á eftir kæmu. Það var
svo fyrir nokkrum árum að hann
setti þessar myndir yfir á DVD
diska fyrir okkur systkinin.
Pabbi okkar var sannkallaður
þúsundþjalasmiður. Það var alveg
sama hvað það var sem við þurft-
um aðstoð við, alltaf var hann
mættur til að aðstoða og var hann
mjög laginn við að leysa úr flókn-
um vandamálum. En hann lagaði
aldrei það sem hann vissi að við
gætum gert sjálf og hummaði slík
verk gjarnan af sér. Það var hans
leið að kenna okkur að stóla á okk-
ur sjálf en ekki aðra. Eitt af
áhugamálum pabba var matseld.
Við nutum svo sannarlega góðs af
því í gegnum tíðina. Kínversk
matseld var kynnt í eldhúsinu á
Heiðarbólinu. Fjölskylduleyni-
uppskriftirnar eru nú dreifðar á
okkur systkinin. Eigum við eftir
að sakna kalkúnsins og meðlæt-
isins en þó mest af öllu eigum við
eftir að sakna elsku pabba sem var
líka svo frábær afi. Við áttum svo
góðar fjölskyldustundir öll saman
á Vatnsholtinu þar sem allt var
lagt í góðan mat og að allir fengju
notið sín á sínum forsendum. Á
þessum stundum leið pabba vel.
Seinustu árin voru pabba erfið
þar sem hann missti vinnuna fyrir
um þremur árum. Fyrir mann
sem lagði mikinn metnað í vinn-
una sína og gerði allt vel sem hann
tók sér fyrir hendur þá var þetta
gríðarlega erfitt. Pabbi ákvað þó
fyrir rest að taka þetta á jákvæðn-
inni. Hann var óþreytandi að
skutla og passa barnabörn, hunda
og gera við hjólin. Fastur liður var
að hringja í okkur systkinin í
vinnuna og þá var hann alltaf að
spá og spekúlera hvernig ætti að
leysa ýmis verkefnin sem lágu
fyrir hverju sinni. Mikið ofsalega
eigum við eftir að sakna þessara
símtala, sakna þess að hlæja sam-
an að einhverjum aulabröndur-
um. Hefðum örugglega skemmt
okkur konunglega um páskana yf-
ir öllum málsháttunum sem pabbi
valdi fyrir okkur í heimalöguðu
páskaeggin sem hann bjó til.
Meira að segja gæludýrin fengu
málshátt.
Við systkinin erum óendanlega
þakklát fyrir að hafa átt þig sem
pabba og börnin okkar hefðu ekki
getað óskað sér betri afa sem var
svo stór þáttur af þeirra lífi.
Þeirra missir er mikill. Minningin
um góðan og gefandi mann mun
ylja okkur um ókomna framtíð.
Þín kæru börn,
Þórir, Inga Sveina og Hrönn.
Elsku afi minn.
Þakkir til þín fyrir að vera mér
svo góður vinur í gegnum árin. Þú
varst ekki bara frábær afi heldur
einnig frábær félagi. Við þurftum
ekki svo mikið að tala saman því
þú þekktir mig svo vel og ég
þekkti þig svo vel. Við brölluðum
svo mikið saman. Þið amma voruð
alltaf að þeysast með mig hingað
og þangað til að örva mig. Við fór-
um á söfn víða um landið og fórum
í ferðalög í litla húsinu á meðan
mamma var heima að hvíla sig.
Best af öllu var þó að komast í mat
til afa. Það fór aldrei á milli mála
ef mér þótti maturinn þinn góður,
afi. Þá skipti engu hvort þetta var
kjötsúpa eða kalkúnn. Það var
bara allt gott hjá þér. Við mamma
eigum svo sannarlega eftir að
sakna þess að sjá ekki bílinn þinn
renna í hlað hjá okkur. Það var
ósjaldan sem þú varst bara allt í
einu mættur til að bjóða mér á
rúntinn. Og þú fannst það bara á
þér ef ég átti slæma daga. Þá
varstu bara mættur án þess að
hringja á undan þér. Ef mamma
þurfti að vinna lengur þá mátti
bíllinn alltaf keyra mig heim til þín
og þar var ég alltaf svo öruggur.
Ég á eftir að sakna þín afar mikið,
afi minn.
Þinn vinur og afastrákur,
Bergur Edgar.
Elskulegur mágur minn Ás-
mundur Cornelius varð bráð-
kvaddur miðvikudaginn 4. apríl sl.
Mikill missir er að góðum dreng,
fjölskylda og vinir syrgja.
Það voru ekki einungis fjöl-
skyldubönd sem tengdu okkur
Ása. Hann var líka alla tíð góður
og traustur vinur okkar Ingvars,
jafnframt deildu þeir svilar starfs-
vettvangi í hartnær fjörutíu ár.
Eftir fráfall Ingvars reyndist Ási
mér í alla staði hjálpsamur og góð-
ur vinur.
Elsku Magga systir, Þórir,
Inga Sveina, Hrönn, tengdabörn
og barnabörn, minningin um ein-
lægan og góðan mann lifir áfram
með okkur öllum. Megi góður Guð
gefa ykkur styrk á sorgarstundu.
Um vorkvöldin síðla ég sigli einn
um sundin blá.
Til hvíldar er heimurinn genginn
og hljómarnir þysmiklu fallnir í dá.
Um sofanda varir fer viðkvæmt bros
meðan vornóttin gengur hjá.
(Tómas Guðmundsson)
Hvíl í friði, minn kæri mágur
S. Halla Einarsdóttir.
Við ólumst upp við þau forrétt-
indi að hafa Ása, Möggu frænku
og börnin þeirra í okkar nágrenni.
Á uppvaxtarárum okkar systra
vorum við heimagangar hjá Ása
og Möggu. Fengum stundum að
passa litlu frændsystkinin okkar
eða bara að vera með í þeirra dag-
lega lífi. Í áratugi deildu þessar
tvær fjölskyldur saman jóladegi
og mörgum dásamlegum stundum
á öðrum tyllidögum. Ási var að-
almaðurinn í því að fanga augna-
blikið; eigum við honum það að
þakka að til eru af fjölskyldunni
dýrmætar myndir og myndbönd.
Ási var hlédrægur, heilsteyptur
og svo einstaklega hlýr. Aldrei
orðmargur, fastur fyrir en kíminn
og stutt í vinalega brosið. Alltaf
heilsaði hann okkur með kossi á
kinn og iðulega bætti hann við
„mín“ á eftir nafni okkar. Á okkar
yngri árum fannst okkur hann svo
flottur. Hafði þetta spennandi yf-
irbragð heimsborgarans, hafði
siglt um heimshöfin og var að auki
með einhverjar útlenskar tenging-
ar líkt og eftirnafnið hans. Fyrir
okkur var þetta ævintýralegt. Og
þau tvö saman, frænka í flug-
freyjubúningnum og Ási með upp-
brettar ermar með sína einstöku
bylgju í hárinu. Það var bara ekki
neitt sem toppaði þau.
Með árunum og stækkandi fjöl-
skyldu færðist yfir Ása rósemi
sem var svo notaleg í nánd. Hann
var traustur klettur í lífi sinna
nánustu. Hann tók virkan þátt í lífi
þeirra og lét sig velferð margra
varða. Sérstaklega viljum við
þakka fyrir hversu reiðubúinn
hann ávallt var að rétta móður
okkar hjálparhönd og reyndist
henni sannur vinur í raun. Í amstri
dagsins gleymist oft hvað lífið er í
rauninni stutt og með tímanum
hverfa þeir smám saman sem hafa
átt þátt í því að móta okkur.
Elsku Magga frænka og fjöl-
skylda, það er erfitt að kveðja,
megi Guð gefa ykkur styrk í sorg-
inni.
Auður, Hildur,
Björg og Rósa.
Ásmundur Björn
Cornelius
Á Bakka í Svarfaðardalnum er
herbergi á efstu hæðinni sem
aldrei er kallað annað en „Villa-
herbergi“. Þetta er kvistur sem
er með útsýni yfir Dagsláttuna,
bakkana og ána. Lífsstundin og
eilífðin sameinuð. Á síðbúnu sum-
arkvöldi þegar kyrrðin og dimm-
blátt húmið læðast um, má heyra
niðinn frá ánni. Þennan undar-
lega tón sem einungis heyrist
með hjartanu. Hugurinn leitar
uppi alla þá hluti sem tengjast
Villa og áttu sinn stað í „Villa-
herbergi“. Uppstoppaðir fuglar,
fálki og andarsteggur. Villi var
veiðimaður. Stundum kom hann
heim með svartfugl sem mamma
matbjó og undir borðhaldi feng-
um við að heyra skemmtilegar
sögur.
Villi var mikil sögumaður og
hafði frá mörgu að segja. Hann
var næmur fyrir því jákvæða og
skemmtilega í fari manna. Það
var fleira í herberginu. Undir
glerplötunni á gamla skrifborð-
inu hans Villa var ýmislegt sem
náði út yfir ána, yfir fjöllin og út í
heim. Gömul póstkort með mynd-
Vilhjálmur
Þórsson
✝ VilhjálmurÞórsson, frá
Bakka í Svarfaðar-
dal, fæddist 23.04.
1930. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 21.4. 2012.
Útför Vilhjálms
fór fram frá Dal-
víkurkirkju föstu-
daginn 27. apríl
2012.
um af furðulegu
fólki, undarlegum
stöðum og framandi
dýrum. Og á veggj-
unum voru gamlir
kambar og sokka-
mót sem drógu
mann heim aftur.
Allir þessir hlutir
áttu sér sögur sem
Villi gaf líf.
Fyrir nokkrum
árum þegar ég
heimsótti Villa á Dalvíkina sýndi
hann mér nauðaómerkilegan
rekaviðardrumb sem var lítill og
kræklóttur. En á aðra hliðina
hafði hann málað – „svona til að
skerpa á þessu lífi sem er í hon-
um“ sagði Villi. Þegar þann hafði
útskýrt fyrir mér hvað hann átti
við fannst mér eins og hann væri
að lýsa silfri heimsins. Fjársjóðn-
um við enda regnbogans sem ég
hafði leitað að sem fjósadrengur
á Bakka en aldrei fundið. Þarna
var hann – í þvottahúsinu hjá
Villa …! Og Villi hló. Þegar Villi
hló þá hló hann allur, allt andlitið
bæði augun og munnurinn sem
annars var svo nettur, opnaðist
upp á gátt og smitandi hlátur
dreifði gleði og kátínu til allra
sem heyrðu og gerðu mann glað-
an aftur daginn eftir.
Nú er bara niðurinn eftir. Í
hjartanu gapir tómarúm. Villi var
móðurbróðir okkar og er hann
síðastur af þeim sex systkinum til
að kveðja þennan heim. Söknuð-
urinn er sár en minningin er hlý
og lifir með okkur um ókomin ár.
Þór Ingi Daníelsson
og systkini.