Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012
Ekki er hægt að segja ann-að en að það hafi veriðbráðvel til fundið aðdjassa upp íslensk dæg-
urlög líkt og þeir félagar í Hot Eski-
mos, Karl Olgeirsson píanóleikari,
Kristinn Snær Agnarsson trommu-
leikari og Jón Rafns-
son kontrabassaleik-
ari, gera á þessari
skemmtilegu plötu.
Oftar en ekki enda
slíkar plötur sem
hálfgerður syk-
urhroði, en í þessu tilviki gæta menn
að því að velja ekki bara það vinsæl-
asta, þó sum laganna hafi vissulega
orðið allvinsæl á sínum tíma. Ekki
má þó skilja þetta svo að þetta sé
einhver tilraunamennska og krydd-
kökur út í gegn; öðru nær – er til
meiri lumma í íslenskri tónlist-
arsögu en Stolt siglir fleyið mitt með
Áhöfninni á Halastjörnunni?
Kúnstin við að taka lag sem allir
þekkja og færa í nýjan búning er að
færa það sem lengst frá upprun-
anum án þess þó að missa sjónar á
því hvað það var sem gerði lagið vin-
sælt á sínum tíma, leyfa manni að
heyra vel samið lagið upp á nýtt og
þá njóta upp á nýtt. Það tekst þeim
félögum misjafnlega á skífunni,
stundum frábærlega eins og í Álfum
Magnúsar Þórs Sigmundssonar, þar
sem þeir draga vel fram hvað lagið
er frábærlega samið, í Rúdolf Þeys-
ara og í Animal Arithmetic. Sum-
staðar tekst þeim miður, til að
mynda í Stolt siglir fleyið mitt sem
er með svo klifunarkennda laglínu
að erfitt er við að eiga og væmnin í
Is it True er fullmikil.
Að því sögðu þá er platan
skemmtileg út í gegn og ég hef ekki
tölu á því hvað ég hef sent marga
diska til kunningja í útlöndum sem
allir hafa orðið stórhrifnir.
Gamlar lummur og aftur-
gengnar kryddkökur
Geisladiskur
Hot Eskimos - Songs from the Top of
the World bbbbn
Hot Eskimos skipa Karl Olgeirsson,
Kristinn Snær Agnarsson og Jón Rafns-
son. JRmusic gefur út.
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Skemmtan Félagarnir í Hot Eskimos, Karl Olgeirsson píanóleikari, Krist-
inn Snær Agnarsson trommuleikari og Jón Rafnsson kontrabassaleikari,
djassa upp íslensk dægurlög.
Mikil menningarveisla er fram-
undan á vegum Menningar-
miðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Ber
fyrst að nefna einleik með leik-
aranum Sigurði Skúlasyni, Hvílíkt
snilldarverk er aðurinn!, en einleik-
inn vann hann ásamt leikstjóra
verksins, Benedikt Árnasyni, upp úr
höfundarverki Williams Shake-
speares. Verkið verður sýnt víðs
vegar um Austurland, á sex stöðum,
en fyrsta sýningin var haldin í gær í
Miklagarði á Vopnafirði. Í kvöld
verður hann sýndur í Herðubreið/
Hótel Öldunni, á morgun í Fé-
lagslundi á Reyðarfirði, á laugardag-
inn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum, á
sunnudaginn í Hótel Framtíð á
Djúpavogi og á mánudaginn í Ný-
heimum á Höfn. Allar sýningar á
verkinu hefjast kl. 20.30.
Krummadans og -söngur
Listahátíðin List án landamæra
teygir sig austur, í Sláturhúsið á Eg-
ilsstöðum og verður sett kl. 14 á
laugardaginn í Bragganum. Margrét
M. Norðdahl, framkvæmdastýra
Listar án landamæra, setur hátíðina
en kynnir verður Stefán Bogi
Sveinsson, forseti bæjarstjórnar.
Sveinn Snorri Sveinsson flytur ljóð
og nemendur leikskólans Tjarnar-
lands, félagar frá eldri borgurum og
einstaklingar frá Stólpa túlka
krumma í dansi, hreyfingu og söng.
Þá bjóða nemendur við tónlistar-
skólana á Héraði og Sveitabandið
frá Menntaskólanum á Egilsstöðum
upp á dansatriði. Fimleikadeild
Hattar býður upp á fimleikasýningu
í umsjón Auðar Völu Gunnarsdóttur
og kvenfélagið Bláklukka selur kaffi
og meðlæti á meðan á hátíðinni
stendur. Í Sláturhúsinu verða einnig
sýnd handverk frá ýmsum hópum og
kynnt verður samstarfsverkefni
leikskólans Tjarnarlands, félags
eldri borgara, Stólpa og starfs-
brautar ME sem ber yfirskriftina
Betri bær - list án landamæra og
sýnd heimildarmynd Sigurðar Ing-
ólfssonar og Ólafar Bjarkar Braga-
dóttur um verkefnið auk handverks
sem tengist hrafninum. Af sýningum
má nefna ljósmyndasýningu Ingi-
mars Skúlasonar, nemanda við ME,
og samsýningu Friðriks Halldórs-
sonar og Önnu Kristínar Magnús-
dóttur. Hlið við hlið nefnist svo sam-
starfsverkefni Anne Kampp
leirlistakonu og Stólpa. Einnig má
nefna sýningu á verkum nemenda
Starfsendurhæfingar á Austurlandi
og sýningu á verkum nokkurra fé-
laga í Myndlistarfélagi Fljótsdals-
héraðs. Þá sýna félagar frá geðrækt-
armiðstöðinni Ásheimum afrakstur
vetrarins.
Snilldarverk Sigurður Skúlason í
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!
Veisla fyrir austan
Einleikur með Sigurði Skúlasyni og
fjölbreytt dagskrá í Sláturhúsinu
Þann 28. apríl sl. hófst vefuppboð á
gömlum hljómplötum sem margar
teljast til forngripa, á vefnum upp-
bod.is, en að uppboðinu standa
fornbókaverslunin Bókin og Gallerí
Fold. Uppboðið stendur til 13. maí.
Úrvalið er
vægast sagt mik-
ið og fjölbreytt,
allt frá sígildum
barnaplötum til
kóraplatna og
eru margar
hverjar komnar
vel til ára sinna.
Má af einstökum
plötum nefna
Söngævintýrið
Rauðhetta og Hans og Gréta og
Valla og snæálfana með Gylfa Æg-
issyni; Einu sinni var, vísnaplötu
Björgvins Halldórssonar og Gunn-
ars Þórðarsonar; plötu með Alfreð
Clausen og Sigurði Ólafssyni frá
árinu 1955; Kúreka norðursins með
Hallbirni Hjartarsyni; plötu
Change sem ber nafn sveitarinnar
og plötu með Maríu Markan sem
gefin var út af fyrirtækinu Gramo-
phone, En dröm - Den farende
svend. Elvis Presley er einnig með-
al listamanna en ein platnanna á
uppboðinu hefur að geyma lögin
„Hound Dog“ og „Don’t be Cruel“.
Leiðbeiningar má finna á vefnum
fyrir þá sem vilja bjóða í plöturnar.
Eigandi Bókarinnar er Ari Gísli
Bragason.
Lax Plata með söngvaranum Guð-
mundi Jónssyni. Hún er á uppboði.
Gamlar og góðar
plötur á uppboði
Ari Gísli Bragason
Dave Grohl, for-
sprakki hljóm-
sveitarinnar Foo
Fighter og fyrr-
verandi tromm-
ari Nirvana, mun
að öllum lík-
indum stýra gerð
heimildarmynd
um hið sögu-
fræga hljóðver
Sound City í Los
Angeles. Á átt-
unda áratugnum voru þar hljóðrit-
aðar margar merkar breiðskífur,
m.a. tvær plötur Fleetwood Mac, sú
sem hét eftir hljómsveitinni og hin
góðkunna Rumours. Grohl þekkir
til hljóðversins, hljóðritaði í því ein-
hverja þekktustu breiðskífu rokk-
sögunnar, Nevermind, með hljóm-
sveitinni Nirvana. Fleiri stórmenni
tónlistarsögunnar hafa tekið upp
plötur þar, m.a. Neil Young og
Johnny Cash. Hljóðverið hætti
starfsemi í fyrra.
Gerir heimildar-
mynd um hljóðver
Dave Grohl
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE AVENGERS 3D Sýnd kl. 7 - 10:10 (POWER)
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 10:20
21 JUMP STREET Sýnd kl. 5:45 - 8
HUNGER GAMES Sýnd kl. 10
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
Fór beint á toppinn í USA
BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND
FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG
„FYNDNASTA MYND
SEM ÉG HEF SÉÐ Í
LANGAN TÍMA!“
- T.V., Kvikmyndir.is
HHHH
STÆRSTA OFURHETJUMYND
ALLRA TÍMA
Ð
„SVÖL,
SKEMMTILEG,
GRÍPANDI OG FYNDIN“
„ÞÆR GERAST VARLA
BETRI EN ÞETTA!“
- Tommi, Kvikmyndir.is
HHHH
HHHH
- J.W. Empire
HHHH
- J.C. Total Film
HHHH
- J.C. Variety
HHHH
- T.M. Hollywood Reporter
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
„ÞESSI MYND Á EFTIR AÐ BJARGA MANNSLÍFUM.“
-STEFÁN KARL STEFÁNSSON, LEIKARI
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
GRIMMD (BULLY) KL. 5.45 - 8 - 10.15 10
21 JUMP STREET KL. 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 5.40 L
IRON SKY KL. 10.30 12
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.15 10
HUNGER GAMES KL. 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 16
THE AVENGERS KL. 5 - 8 - 10.30 - 11 10
THE AVENGERS LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 10
21 JUMP STREET KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.20 - 5.40 L
AMERICAN REUNION KL. 8 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
HUNGER GAMES KL. 5 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 11 16
21 JUMP STREET KL. 8 - 10.10 14
BATTLESHIP KL. 10.10 12
AMERICAN PIE KL. 6 - 8 12
MIRROR MIRROR KL. 6 L
Stefanía Ósk Margeirsdóttir heldur
framhaldsprófstónleika sína á píanó sem
eru jafnframt burtfarartónleikar hennar
frá Tónlistarskólanum í Grindavík
fimmtudaginn 3. maí 2012 kl. 20:00
í Grindavíkurkirkju.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og allir velkomnir.
Framhaldsprófstónleikar
Tónlistarskólinn í Grindavík
www.grindavik.is/tonlistarskoli