Morgunblaðið - 03.05.2012, Qupperneq 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012
Empire Total film Variety
Tommi, Kvikmyndir.is
„Svöl, skemmtileg, grípandi og fyndin“
„Þær gerast varla betri en þetta!“
Hörku Spennutryllir
frá framleiðendum
“Girl with the Dragon
Tattoo” og “Safe
House”.
Stærsta ofurhetjumynd allra tíma!
EGILSHÖLL
16
14
KRINGLUNNI
ÁLFABAKKA
12
12
VIP
L
16
12
12
L
10
10
10
10
10
10
12
12
AKUREYRI
10THEAVENGERS (3D) KL. 5 - 8 - 10:50 3D
GONE KL. 8 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 5:40 - 10:10 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 11 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
BATTLESHIP KL. 8 - 10:50 2D
TITANICÓTEXTUÐ KL. 9 3D
COLDLIGHTOFDAY KL. 5:50 2D
16
12
KEFLAVÍK
10THEAVENGERS KL. 8 - 10:50 3D
GONE KL. 8 2D
SVARTURÁLEIK KL. 10 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 7 - 8 - 10 - 10:503D
THEAVENGERSVIP KL. 5 - 8 - 10:50 2D
THEAVENGERS KL. 5 - 10:20 2D
CABIN IN THEWOODS KL. 5:50 - 8 - 10:20 2D
BATTLESHIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
AMERICANPIE KL. 8 2D
FJÖRFISKARNIR ÍSL.TALI KL. 5 2D AVENGERS KL. 5 - 8 - 9 - 10:50 3D
THEAVENGERS KL. 6 2D
CABIN IN THEWOODS KL. 10:10 2D
COLDLIGHTOFDAY KL. 6 - 8 2D
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI !
Heimildamyndin Bully erþörf saga um einelti ískóla í Iowa-ríki í Banda-ríkjunum. Rakin er saga
nokkurra einstaklinga sem orðið hafa
fyrir einelti í skóla og hvernig áhrif
það hefur á þeirra líf.
Styrkur myndarinnar er að reynt
er að horfa til eineltis í víðu sam-
hengi. Skoðuð eru viðbrögð skóla-
yfirvalda, foreldra, einstaklinganna
sem fyrir eineltinu verða og hvernig
nærsamfélagið reynir að sporna við
þessari vá. Víða er pottur brotinn og í
myndinni má sjá hvernig kerfinu mis-
tekst að takast á við vandamálið með
fullnægjandi hætti.
Myndin er runnin undan rifjum
Stans Hirch sem leikstýrir myndinni.
Hirch fylgdi eftir nokkrum krökkum
sem orðið höfðu fyrir einelti í skóla í
heilt skólaár. Í viðtali Hirch við
Morgunblaðið í síðustu viku kom
jafnframt fram að hann er fyrir aftan
myndavélina í nær öllum senum
myndarinnar. Átakanlegt er að horfa
upp á það þegar eineltið nær hámarki
og jafnframt er sorglegt að horfa upp
á getuleysi skólayfirvalda til þess að
taka á vandamálinu. Sérstaklega
kemur aðstoðarskólastjóri East Mid-
landskóla, Kim Lockwood, illa út í
myndinni þar sem hún neitar að horf-
ast í augu við alvarleika vandamáls-
ins. Það kemur illa niður á Alex
Libby, einni aðalpersónu mynd-
arinnar, sem verður fyrir andlegu og
líkamlegu ofbeldi í mörgum senum
myndarinnar.
Óhætt er að segja að myndin eigi
erindi við vestrænt samfélag í heild
sinni. Stan Hirch á hrós skilið fyrir að
veita vandamálinu athygli með þess-
um hætti.
Ef hins vegar rýnt er í veikleika
myndarinnar þá er hluti hennar lang-
dreginn og hefði hún að ósekju mátt
vera eilítið styttri og hnitmiðaðri í
umfjöllun sinni. Jafnframt gerði leik-
stjórinn lítið til þess að kanna viðhorf
stjórn- eða yfirvalda til málsins í víð-
ara samhengi. Engu að síður er
myndin vel heppnuð og ætti ekki að
láta neinn ósnortinn.
Fórnarlamb Í Bully er m.a. fylgst með ungum dreng, Alex, sem verður fyrir miklu einelti af hálfu skólafélaga sinna.
Saga sem verður að segja
Háskólabíó og Borgarbíó
Bully/Grimmd: sögur af einelti
bbbmn
Höfundur: Lee Hirsch. Heimildarmynd.
Bandaríkin, 2011. 98 mín.
VIÐAR GUÐJÓNSSON
KVIKMYNDIR
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hole in the Wall, eða Hola í vegg,
nefnist stuttmynd um einelti og af-
leiðingar þess sem kvikmyndagerð-
armaðurinn Haukur M, fullu nafni
Hakur M. Hrafnsson, vinnur að fjár-
mögnun á og nýtir til þess vefinn In-
diegogo.com, óskar í myndbandi eft-
ir fjárframlögum til verkefnisins.
Samkvæmt reglum vefjarins hafa
listamenn sem nýta sér þessa leið
ákveðinn tíma til að ná heildar-
upphæðinni. Í tilfelli Hauks eru dag-
arnir 30 og þarf settu marki að vera
náð 27. maí nk., stefnt að því að
safna 22.000 dollurum eða um 2,7
milljónum króna. Náist það ekki
falla áheit niður.
Tökur eftir fjórar vikur
Myndin er útskriftarmynd Hauks
en hann er á lokaári í leikstjórn-
arnámi við Polish National
Filmschool, eða Kvikmyndaskóla
Póllands. Haukur á nokkrar kvik-
myndir í fullri lengd að baki, m.a. (Ó)
eðli frá árinu 1999 og hefur einnig
leikstýrt stuttmyndum, heimildar-
myndum, tónlistarmyndböndum og
auglýsingum. Þess má geta að
Haukur hlaut heiðursverðlaun dóm-
nefndar á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík í fyrra, fyrir stutta
heimildarmynd sína Ósýnileg mæri,
Invisible Border. Eiginkona hans,
Ásta Júlía Guðjónsdóttir, nemur
kvikmyndatöku við sama skóla og
mun hún sjá um kvikmyndatöku í
Holu í vegg.
„Ég er nú þegar kominn með leik-
ara og framleiðsla hafin, við erum
tilbúin í tökur eftir fjórar vikur. Ég
býst við því að við getum alveg skot-
ið myndina, það þarf bara að fórna
rosalega miklu ef ég næ ekki þessari
upphæð,“ segir Haukur. Myndin
verði tekin í borginni Lodz, á Red
Epic-myndavél, og svo yfirfærð á 35
mm filmu. Haukur segist hafa fengið
ákveðna upphæð frá skólanum en
hún dugi ekki fyrir framleiðslu-
kostnaði. Því hafi hann ákveðið að
fara þessa leið, að óska eftir fjár-
framlögum. „Ég tel þessa síðu og
fleiri vera framtíðina fyrir óháða
kvikmyndagerð, ég held við séum
rétt að sjá byrjunina á mikilli
sprengju,“ segir Haukur.
Áttar sig ekki á eigin sök
Hola í vegg fjallar um einelti með-
al unglinga og hvernig netið hefur
breytt hegðun ungs fólks hvað slíkar
ofsóknir varðar. Sagan er sögð frá
sjónarhóli unglings sem gerst hefur
sekur um einelti. Haukur segist hafa
verið nýbyrjaður að skrifa handritið
þegar 11 ára drengur sem upplifði
mikið einelti til lengri tíma og glímdi
við geðraskanir, svipti sig lífi í Sand-
gerði í fyrra. Sá atburður hafi haft
djúpstæð áhrif á hann, og í byrjun
stuttmyndarinnar sviptir ungur
drengur sig lífi eftir að hafa orðið
fyrir miklu einelti á netinu. 18 ára
bróðir hans sem gerst hefur sekur
um einelti, leiti í kjölfarið sökudólga
án þess að átta sig á eigin gjörðum.
Fjáröflunarsíðu Hole in the Wall
má finna á vefslóðinni indie-
gogo.com/holeinthewall. Einnig má
finna Facebook-síðu helgaða henni.
Einelti frá sjónar-
horni gerandans
Fjármagns leitað á netinu fyrir stuttmynd um einelti
Kvikmyndahjón Haukur og eiginkona hans, Ásta Júlía Guðjónsdóttir, við kvik-
myndatökuvél, einbeitt á svip. Þau vinna að gerð stuttmyndarinnar Hole in the Wall.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is