Morgunblaðið - 03.05.2012, Síða 40
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Slítur öll tengsl við Kutcher
2. Linda Pé undirbýr sig
3. Árás gerð á vísir.is
4. Alexander í skrýtinni stöðu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Blásið verður til rokkveislu á Gamla
Gauknum annað kvöld kl. 22.30 en
tilefnið er fyrirhuguð tónleikaferð
Muck og Plastic Gods um Bandaríkin
í júní. Auk þeirra leika annað kvöld
Caterpillarmen og World Narcosis.
Rokkveisla haldin
á Gamla Gauknum
Leikfélag Kópa-
vogs frumsýndi
nýtt íslenskt leik-
verk, Hringinn, í
febrúar sl. og hef-
ur nú verið ákveð-
ið að bjóða upp á
aukasýningar í
kvöld, annað
kvöld og 6. maí kl.
20. Verkið er eftir Hrefnu Friðriks-
dóttur og leikstjóri er Hörður Sigurð-
arson. Nánari upplýsingar má finna á
vef leikfélagsins, www.kopleik.is.
Aukasýningar
á Hringnum í maí
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg
verður haldin 25.-28. maí. Meðal
mynda á hátíðinni verður Reimt á Kili
eftir Steinþór Birgisson
en hann hlaut verð-
laun fyrir bestu
myndina á hátíð-
inni í fyrra, Jón og
séra Jón. Í mynd-
inni er fylgst með
hestamönnum sem
fóru sömu leið og
Reynistaðabræð-
ur á sínum tíma.
Skjaldborgarhátíðin
haldin 25.-28. maí
Á föstudag Fremur hæg breytileg átt og bjartviðri. Hiti 3 til 10
stig, mildast SV-lands en víða næturfrost N- og A-til á landinu.
Á laugardag Norðan og norðaustan 3-10 m/s. Víða léttskýjað.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan- og norðaustanátt, víða 5-10 m/s og
léttskýjað, en skýjað í fyrstu NA-til. Hægari vindur síðdegis. Hiti 2
til 10 stig á morgun, mildast á S- og SV-landi.
VEÐUR
Kolbeinn Sigþórsson varð í
gærkvöld hollenskur meist-
ari í knattspyrnu með Ajax
þegar lið hans sigraði
Venlo, 2:0, í næstsíðustu
umferðinni. „Þetta er frá-
bært, nánast ótrúleg til-
finning sem erfitt er að
lýsa með orðum,“
sagði Kolbeinn við
Morgunblaðið þegar sig-
urinn var í höfn en hann
skoraði 7 mörk í fjórtán
leikjum með liðinu. »1
Kolbeinn hol-
lenskur meistari
Fram sendi Val skýr skilaboð í gær-
kvöld og vann fyrsta úrslitaleik lið-
anna um Íslandsmeistaratitil kvenna
í handbolta á Hlíðarenda á sannfær-
andi hátt. Stella Sigurðardóttir átti
stórleik og skoraði
12 mörk í leiknum
og Einar Jónsson
þjálfari sagði að
þetta hefði
verið
besti
leikur
liðsins í
vetur. »4
Fram sendi Val skýr
skilaboð í fyrsta leik
Breiðablik vann Lengjubikar
kvenna í knattspyrnu í ár með
því að sigra Val í úrslitaleik í
Kórnum í gærkvöld, 3:2.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
vinn titil og vonandi kemst
þetta upp í vana,“ sagði fyrir-
liðinn Fanndís Friðriksdóttir
sem skoraði tvö marka Kópa-
vogsliðsins. »4
Vonandi kemst
þetta upp í vana
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Á tækniöld, þar sem flest samskipti fara á net-
hraða heimsálfa á milli, menn nota síma til þess að
vera í sambandi eða skrifa sendibréf, sem send
eru með póstinum, vekur athygli þegar fólk fær
kveðju í formi flöskuskeytis.
Nemendur í Suðurhlíðarskóla fundu eitt slíkt í
Fossvogi í gær og vilja nú ná sambandi við Sigga
og Anton, sendendur skeytisins, til þess að geta
þakkað fyrir sig, en einhverra hluta vegna fylgdi
hvorki heimilisfang, síma-
númer né netfang.
Í Suðurhlíðarskóla er
lögð áhersla á útinám.
Fjara, skógur og mói eru í
grennd við skólann og
kennarar leitast við að
nýta sér umhverfið við
kennslu hinna ýmsu
greina með það að mark-
miði að nemendur læri að
kynnast sköpunarverkinu
og að virða náttúruna.
Sveinbjörg Björnsdóttir
kennari segir að hvert
tækifæri sem gefist sé
notað til þess að læra í umhverfinu og af því. „Við
búum svo vel hérna úti í náttúrunni,“ segir hún.
Hún bendir á að umhverfið sé meðal annars notað
í heimilisfræði til þess að baka og steikja úti.
Börnunum sé kennt að grisja og varðveita skóg,
planta og passa vel greinar og tré. Bera umhyggju
fyrir trjám og öðrum gróðri. Í stærðfræði séu
ýmsir fletir skólans mældir og meðal annars hafi
nemendur byggt hús. „Við blöndum þessu öllu
saman,“ segir hún.
Upplifun í umhverfi
Í Suðurhlíðarskóla eru rúmlega 40 nemendur í
1.-10. bekk. Eitt verkefni gærdagsins hjá 10 og 11
ára krökkum skólans var að skrifa um upplifun í
umhverfi. Nemendur gengu frá skólanum að
Nauthólsvík og skoðuðu það sem á vegi þeirra
varð í þeim tilgangi að viða að sér hugmyndum og
virkja ímyndunaraflið í ritunarverkefnið. „Þeir
áttu að ímynda sér ævintýri eða upplifa umhverfið
til þess að geta svo skrifað frá ferðinni,“ segir
Sveinbjörg. Hún segir að margt hafi borið fyrir
augu, þar á meðal lifandi og dauðir krossfiskar.
„Krakkarnir björguðu einum en þetta var stutt
vettvangsferð,“ heldur hún áfram. Á heimleiðinni
hafi þrjár stelpur notað tækifærið og dýft fæti í
sjó og þá fundið flöskuskeyti. „Margir finna aldrei
flöskuskeyti á lífsleiðinni og því fannst okkur
þetta mjög merkilegt,“ segir hún. „Hópurinn var
að vonum ánægður eftir ferðina með efnið í rit-
unina í hendi.“
Skeytið var í Torres-hvítvínsflösku með kork-
tappa. Textinn var á ensku: Good day. Our names
are Siggi and Anton. We live in Iceland. Have a
nice day!
Sveinbjörg segir að vissulega hefði verið
skemmtilegra að fá flöskuskeyti frá öðru landi en
engu að síður vilji hópurinn vita hvaðan skeytið
hafi verið sent. „Krakkarnir eru mjög forvitnir,
vilja vita hverjir þetta eru,“ segir hún.
Flöskuskeyti í Fossvogi
Nemendur í Suður-
hlíðarskóla leita að
sendendum skeytisins
Ljósmynd/Sveinbjörg Björnsdóttir
Flöskuskeyti Nemendur með skeytið. Í efri röð frá vinstri eru Sigga, Þura, Bára, Weronika, Elísa og
Elín. Í neðri röð frá vinstri eru Einir, Jón Steinar, Daníel og Eysteinn.
Á ensku Flöskuskeytið.