Morgunblaðið - 15.05.2012, Síða 2

Morgunblaðið - 15.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Vorhretið sem nú gengur yfir landið hefur skilið eftir sig hvíta vegi og nokkra hálku á vegum fyrir norðan að sögn Birgis Guðmundssonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Ak- ureyri. „Sólin er komin hátt á loft og þetta festir ekki svo á vegum en þó er nokkur hálka og sumir vegir eru enn hvítir.“ Flestir vegir eru þó opn- ir en vel hefur gengið að moka og hreinsa. „Við vorum vel undir þetta búnir og það var búið að taka til öll tæki og bíla í verkefnið enda vissum við af þessu hreti með nokkrum fyrirvara.“ Vegurinn í Hamarsfirði frá Djúpa- vogi og suður að Höfn er enn lokaður og hefur verið lokaður síðan í gær en að sögn Birgis er það ekki vegna snjókomu heldur veðurofsa sem gengur yfir svæðið. „Það fóru vindhviður upp í 56 m/sek. og enn er 21 m/sek. og vindhviður upp í 48 m/sek. svo þar er ekki spurning um snjó heldur veðurofsann og grjótfok sem getur skemmt bíla.“ Lítið tjón virðist hafa hlotist af vorhretinu samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni bæði á Suðurlandi og fyrir norðan. Björgunarsveitir hafa þó verið kall- aðar út á þremur stöðum vegna ófærðar en víða sat fólk fast í bílum sínum, t.d. á Klettshálsi rétt hjá Reykhólum og á Fjarðarheiði við Seyðisfjörð. Margir ökumenn eru illa búnir og biður Landsbjörg öku- menn að fara varlega og vera vel búnir til ferða. Í dag er spáð áfram- haldandi éljagangi og á morgun er útlit fyrir að það verði einhver él við ströndina en annars bjartviðri og því ætti eitthvað að taka upp af snjónum sem fallið hefur víða um land í hret- inu undanfarna daga. Þá fer að hlýna á fimmtudaginn og því ætti snjórinn ekki að liggja lengi samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofunni. Hvítir vegir og hálka víða um land  Viðbúnaður vegna veðursins eins og best verður á kosið Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur vakið athygli á því hversu nákvæmar langtímaspár eru orðnar en að hans sögn er það farið að gerast oftar að fjögurra til fimm daga spár séu nokkuð nákvæmar. „Ætli þessar lang- tímaspár séu ekki jafngóðar núna og eins til tveggja daga spár voru fyrir rúmum 30 árum.“ Trausti segir þetta helgast af því að í dag sé tölvuafl miklu meira og athuganir séu þéttari og reiknikúnstir orðnar betri. „Það munar líka mikið um gervihnattamælingar en ég treysti mér ekki til þess að segja til um hvaða þáttur ræður mestu í þessari þróun. Þetta helst allt saman í hendur.“ Langtímaspá Veðurstofunnar varð til þess að bæði Vegagerðin og bændur um allt land voru vel viðbúnir veðrinu og gátu gert ráðstafanir sem eflaust hafa dregið úr tjóni sem ella hefði getað orðið af veðrinu. Nákvæmari langtímaspár VEÐURSPÁR DRAGA ÚR TJÓNI Trausti Jónsson Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þingflokkur Hreyfingarinnar átti í gær viðræður við oddvita ríkis- stjórnarflokkanna um ýmis mál og segir í yfirlýsingu að takist samning- ar um lausn ákveðinna mála sé flokk- urinn reiðubúinn að „verja ríkis- stjórnina vantrausti komi til þess“. Margrét Tryggvadóttir, varafor- maður þingflokks Hreyfingarinnar, segir hana setja sem skilyrði fyrir samningi um stuðning að gerð verði tímasett áætlun í vikunni um skulda- niðurfellingu og afnám verðtrygg- ingar. „Við erum ekki tilbúin að skrifa undir að stofnuð verði einhver nefnd sem eigi að vinna í sumar,“ segir Margrét. „Það er búið að skoða þetta aftur og aftur, endalausir vinnuhópar og stjórnin kaupir sér tíma í nokkra mánuði og við erum ekki spennt fyrir að taka þátt í því. Ef það á ekki að fara í aðgerðir vilj- um við bara kosningar.“ – Ef ekkert gerist munuð þið þá styðja vantrauststillögu? „Þá hljótum við að gera það sama og við gerðum síðast, þá studdum við vantrauststillögu.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, segir ljóst að ríkis- stjórnin telji þörf á auknum stuðn- ingi á þingi. Stjórnarliðar hafi frá því að Hreyf- ingin fundaði með forystu ríkis- stjórnarinnar milli jóla og nýárs lagt allt kapp á tvö hjartans mál Hreyfingarinnar: að ljúka lands- dómsmálinu á þingi og þjóðar- atkvæðagreiðslu um tillögur stjórn- lagaráðs. „Við erum kannski að sjá núna hvers vegna þetta var, kannski var líf stjórnarinnar undir.“ Gunnar Bragi Sveinsson, formað- ur þingflokks Framsóknarflokksins, segir stjórnina ætla að tryggja sér stuðning Hreyfingarinnar með þjóðaratkvæði um eitt helsta kosningamál Hreyfingarinn- ar: stjórnarskrárbreytingar. Atkvæðagreiðslan muni kosta um 250 milljónir króna. „Sé þetta rétt hjá mér eru þetta einhver dýrustu þrjú atkvæði sem sögur fara af,“ segir Gunnar. Setja skilyrði fyrir hjálp  Hreyfingin býðst til að verja ríkisstjórn vinstriflokkanna falli en krefst m.a. tímasettrar áætlunar um skuldaniðurfellingu og afnám verðtryggingar Margrét Tryggvadóttir Hulda Þórisdóttir, lektor í sál- fræði, var meðal höfunda hrun- skýrslunnar 2010. Hreyfingin mælist varla í könnunum, gæti hún rétt hlut sinn með áherslu á stjórnarskrármálið? „Það fer auðvitað eftir því hvernig það mál endar en það lofar ekkert góðu núna,“ segir Hulda. „Það hefur stundum ver- ið farið af meira kappi en forsjá í þessu máli og sjá má afleiðingar þess m.a. í áhugaleysi almennings. En auðvitað er Hreyfingin að stíla inn á hóp sem finnst þetta mál mikilvægt.“ Von í stjórn- arskrártillögu HREYFINGIN Í VÖRN Hulda Þórisdóttir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, fagnaði 69 ára afmæli sínu í gær en þar að auki áttu hann og Dorrit Moussaieff forsetafrú brúð- kaupsafmæli. Af því tilefni héldu stuðnings- menn forsetans veislu handa for- setahjónunum í Salthúsinu í Grindavík síðdegis í gær. Á meðal gesta í veislunni var hinn 96 ára gamli Þórhallur Gíslason, fyrrver- andi skipstjóri úr Sandgerði, en hann átti einnig afmæli í gær. Forsetahjónin höfðu fyrr um daginn heimsótt fjölda vinnustaða í bænum. „Frábærar viðtökur á fjölda vinnustaða sem við heimsótt- um í Grindavík. Góður andi og mik- ill kraftur í fólkinu í fiskvinnslu og sjávarútvegi,“ segir á framboðsvef Ólafs Ragnars um heimsókn for- setahjónanna til Grindavíkurbæjar. skulih@mbl.isMorgunblaðið/Kristinn Forsetinn fagnaði afmæli sínu Jarðskjálfti upp á 3,4 stig mældist 3,5 km vestsuðvestur af Herðu- breið kl. 12.45 í gær, samkvæmt því sem kemur fram á vefsvæði Veðurstofu Íslands. Skjálftinn var fremur grunnur, en hann mældist á 0,6 km dýpi. Fleiri skjálftar urðu á svæðinu í gær en allir minni. „Svona hrina er ekkert óvenjuleg, þarna verða oft litlir skjálftar og stundum nokkrir tugir sama daginn,“ sagði Gunnar B. Guðmundsson, jarðeðlis- fræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir ekkert benda til að gos sé í vænd- um en að sjálfsögðu séu ýmis afar virk svæði í grennd við Herðu- breið. Jarðskjálftar nálægt Herðubreið www.golfkortid.is Einstaklingskort 9.000 kr. Fjölskyldukort 14.000 kr. golfvöllur - eitt kort31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.