Morgunblaðið - 15.05.2012, Page 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
Í þessari grein ætla
ég að fjalla um kostn-
að þann sem íbúar á
dvalar- og hjúkr-
unarheimilum þurfa að
greiða sjálfir fyrir dvöl
sína en þar finnst mér
pottur brotinn eins og
í skattheimtu gagn-
vart allt of mörgum en
ég ætla að skrifa um
þennan hóp því þar
þekki ég best til.
Mér finnst ekki óeðlilegt að íbúar
sem eiga stóra sjóði og miklar eign-
ir taki einhvern þátt í kostnaði en
þegar um er að ræða fólk sem fær
greiðslur sem ná ekki lágmarks-
launum sem nú eru
193.000 kr. á mánuði
gegnir öðru máli.
Á vefsíðu Trygg-
ingastofnunar stendur
skrifað um þátttöku í
dvalarkostnaði:
„Íbúar geta þurft að
taka þátt í dval-
arkostnaði sínum
vegna varanlegrar bú-
setu á dvalar- eða
hjúkrunarheimili.
Þátttakan er tekju-
tengd og er reiknuð út
á grundvelli tekjuáætl-
unar. Á árinu 2012 gildir að ef mán-
aðartekjur íbúa eru yfir 65.005 kr. á
mánuði, eftir skatta tekur hann þátt
í dvalarkostnaði með þeim tekjum
sem umfram eru. Greiðsluþátttaka
verður þó aldrei meiri en 311.741
kr. á mánuði.“
Þessi upphæð, 65.005 kr. krónur,
hefur ekkert hækkað a.m.k. frá
árinu 2009 en allar neysluvörur
hafa hækkað gífurlega á þessum
þremur árum.
Nú kann einhver að spyrja:
„Dugar þessi upphæð ekki, greiðir
dvalarheimilið ekki allt fyrir fólk-
ið?“
Nei, það er alls ekki svo, íbúar
greiða til dæmis: Allan fatnað, gler-
augu, heyrnartæki, hársnyrtingu,
fótsnyrtingu, nudd, hreinlætis- og
snyrtivörur, áskriftir, hann-
yrðavörur, kaffi og smá veitingar til
að eiga „inni hjá sér“. Sumir eiga
bíla og allir vita að dýrt er að reka
þá þó að ekki sé um að ræða Hum-
mera eða háglansandi Range Ro-
vera, sumir fara í ferðalög utan
lands og innan, sækja tónleika, leik-
hús, gefa jóla,- fermingar- og af-
mælisgjafir.
Hvar og hvenær þessi upphæð
var ákveðin veit ég ekki, en hún er
langt undir neysluviðmiði ein-
staklings á mánuði sem gefið er upp
á vefsíðu velferðarráðuneytis en
þar stendur:
Föt og skór 13.412 kr.
Tómstundir 36.055 kr.
Ökutæki 76.478 kr.
Annar ferðakostn. 10.393 kr.
Sími og fjarskipti 11.321 kr.
Samtals 147.659 kr.
Þarna vantar 82.654 kr. upp á að
65 þúsund kallinn dugi. Þó að bíll-
inn sé tekinn út vantar enn upp á. Í
neysluviðmiðið vantar líka ýmsa
liði, sem taldir voru upp hér að of-
an.
Þeir sem sækja um vist á dval-
arheimilum eru margir hverjir að
sækja í öryggið, sem þar er að
finna, eftir makamissi, veikindi eða
önnur áföll, en það er ekki þar með
sagt að ætlunin sé að steinhætta að
lifa lífinu.
Sumir hafa borgað lengi í lífeyr-
issjóð og hugsa sér gott til glóð-
arinnar að njóta lífsins og dekra dá-
lítið við sig svo lengi sem heilsan
leyfir.
Hvað kemur svo á daginn? Ríkið
hefur ákveðið að íbúar fái einungis
65.005 kr. á mánuði af sínum eig-
in peningum og þeir verða að sætta
sig við það því það er nið-
urskurður.
Það er höggvið þar sem hlífa
skyldi. Ég efast um að þetta stand-
ist mannréttindalög og það er pott-
þétt að þetta er siðlaust.
Háttvirtir alþingismenn, ég
minni á kosningar eftir ár og spyr:
„Finnst ykkur þetta allt í lagi?“
Þátttaka í kostnaði á dvalar-
og hjúkrunarheimilum
Eftir Ingibjörgu
Marmundsdóttur »Háttvirtir alþing-
ismenn! Ég minni á
kosningar eftir ár og
spyr: „Finnst ykkur
þetta allt í lagi?“
Ingibjörg
Marmundsdóttir
Höfundur er félagsliði
og býr á Hvolsvelli.
Í húsi númer ellefu
við Sléttuveg, SEM-
hús, er heimili mitt.
Þar hefur mér liðið
bæði vel og illa. Að
vera lamaður frá hálsi
er eiginlega ekki hægt
að skýra fyrir þeim
sem ekki þekkja það af
eigin reynd. Ég er
áttatíu ára og átta
mánuðum betur. Af
þessum tíma hef ég
verið tuttugu og tvö ár háður hjóla-
stól. Ófrelsið sem fylgir því er
óskaplegt og reynir verulega á. En
það má aldrei gefast upp því þá er
fjandinn laus sé hann á annað borð
til. Við slíkar aðstæður reynir á fólk.
Þá fæst tækifæri, að vísu óvelkomið,
til að kljást við eitthvað nýtt og
framandi. Berjast við stöðug óþæg-
indi og fjölbreytilegu verkina sem
stundum ætla að æra mann.
Við slíkar aðstæður er nauðsyn-
legt að þau sem ráðin eru til forystu
í málum sem varða þjónustu búi yfir
stjórnendahæfileikum með skilning
á verkefninu og hafi vilja og velferð
íbúanna að leiðarljósi. Núverandi
forstöðukona breytti starfsreglum
flestum til ama. Eins og margir vita
á fólk misvel saman. Eftir að hún
vissi hvaða starfsfólk mér finnst
þægilegast hefur hún haldið því frá
mér. Stundum er asísk
kona sem veit ekki mun
á fæti og hendi. Ég
gafst upp á að fá hana
til að laga til sokkana
svo mér liði betur. Nú
er svo komið að flestir,
ef ekki allir, vilja losna
við Sofíu forstöðukonu
úr húsinu. Augljóst er
að hún ræður ekki við
starfið í SEM-húsi.
Eitt af því besta sem
gert var fyrir fólk sem
háð er hjólastólum var stofnun
Ferðaþjónustu fatlaðra. Með hjálp
þáverandi borgarstjóra, Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar, voru sæti bílanna
færð til svo hjólastólar kæmust sem
fremst. Þannig valda misfellur veg-
arins farþegum minni óþægindum.
Bílstjórarnir eru velviljaðir, þægi-
legir og þekkja akkilesarhæla far-
þeganna. Uppbyggingarstarfið hef-
ur tekið tíma. Nú skilar það góðum
árangri og friður ríkir um gott fyr-
irtæki. Þá kemur Björk Vilhelms-
dóttir eins og skrattinn úr sauð-
arleggnum og fær borgarráð til að
samþykkja tillögu um að leggja
Ferðaþjónustu fatlaðra niður og
bjóða starfsemina út. Hafi hún með
þessu ætlað að koma sér í sviðsljósið
var verr farið en heima setið.
Best til árangurs í þeim efnum
sem öðrum er að láta gott af sér
leiða. Sé hún að leita sparnaðar fyrir
borgina vinnst ekkert með að gera
erfitt líf hjólastólafólks verra en það
er. Ekki heldur að leggja vinsæla
starfsstétt niður með öllum þeim
kostnaði og vandræðum sem því
fylgja. Stjórnvöld og einstakir
stjórnendur ættu ekki að gleyma
eða vanmeta þann fjölda sem stend-
ur að baki hjólastólafólkinu og
starfsliðinu. Það er vanhugsun að
rífa niður svo vel uppbyggt mann-
úðarfyrirtæki sem Ferðaþjónusta
fatlaðra er.
Þegar ég var að skrifa þetta komu
óvænt í huga minn orð Gísla Súrs-
sonar, Nú er seiðskrattinn kominn í
málið. Ég vona sannarlega að sú
samlíking eigi ekki við og Björk leiti
betur í hugarfylgsnum sínum.
Mögulegt að þá kæmu fleiri fletir á
málið. Sá sem eyðileggur Ferða-
þjónustu fatlaðra reisir sér níð-
stöng.
Stjórnendur þurfa
að vera hæfir
Eftir Albert Jensen
Albert Jensen
» Það er vanhugsun að
rífa niður svo vel
uppbyggt mannúðarfyr-
irtæki sem Ferðaþjón-
usta fatlaðra er.
Höfundur er trésmiður.
Álnabær veitir alhliðaþjónustu er lýtur að gardínum.
Máltaka, uppsetning og ráðleggingar.
N Ý T T Á Í S L A N D I
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Þú stjórnar birtunni heima hjá þér
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
MJÓLKURÍS
GAMLI ÍSINN
Skalli • Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 - 23