Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert tilbúin/n til að láta þínar eigin þarfir víkja fyrir æðri tilgangi. Gættu þess að missa ekki yfirsýnina, því þá missir þú allt út úr höndunum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér verður óvenjumikið úr verki þessa dagana og afköstin eru eftir því. Gefðu þér góðan tíma til þess að velta málunum fyrir þér, ekki rasa um ráð fram. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þín á tilhneigingunni að sanka að þér fallegum, verðmætum og alger- lega óþörfum hlutum. Flestum líður illa af og til. Vertu sanngjarn við alla. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ættir að njóta lífsins með vinum þínum í dag. Allt sem þú gerir í dag mun bæta heimilislífið og samband þitt við fjölskylduna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fólk er of tilfinningaríkt og tekur hlut- unum of persónulega. Reyndu af hafa létt- leikann í fyrirrúmi þegar áhyggjurnar eru að sliga þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er hægt að leiða öðrum sannleik- ann fyrir sjónir án þess að beita ofbeldi. Það er þarflaust með öllu að tilkynna brottför þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hreinskilnar og innilegar samræður við fjölskyldumeðlim skipta sköpum fyrir friðinn á heimilinu. Komdu öllu frá þér svo þú getir farið yfir það sem þú átt eftir að ganga frá. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ástæður þess að þú ert svo gleymin/n þessa dagana er að þú ert með of mörg járn í eldinum. Vertu viðbúin/n því að eitthvað óvænt komi í ljós. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú verður yfir þig hrifin/n, allt of fljótt. Allt of oft sættum við okkur við erfiðar aðstæður fremur en að halda á vit þess óþekkta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vilji er allt sem þarf og hálfnað er verk þá hafið er. Slepptu engu tækifæri til að njóta samvista við vini og vandamenn. Vinnu- skipti og fjárfestingar geta fært þér aukna velsæld. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gáski er eiginleiki sem þú býrð yfir þegar vel viðrar. Ykkur ætti að reynast auð- velt að telja aðra á ykkar band. Gefðu þér góðan tíma; það er ekkert sem rekur á eftir þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Áhrif einhvers af hinu kyninu rugla þig í ríminu í dag. Ekki fara fyrr en þú ert viss um að vera með allt sem þú komst með. Ingibjörg R. Magnúsdóttir sendiVísnahorninu skemmtilega kveðju: „Ég hef alltaf gaman af vísna- horninu þínu og datt í hug að senda þér eittlítið korn. Eitt sinn er ég var á göngu minni um Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri sá ég hvar Bjarni frá Gröf, úrsmiður og ágætur hagyrðingur, sat og beið eftir viðtali. Ég gekk til hans og sagði: „Þú ert svo sposkur á svip- inn Bjarni, hvað ertu nú að hugsa?“ Ekki stóð á svarinu hjá Bjarna, hann svaraði ósköp hóg- vær: „Ég var nú bara að horfa á sjúkraliðana þína og datt þá í hug: Mér finnst orðinn meyjum hjá mikill ástargassinn. Pilsin á þeim naumast ná niður fyrir rassinn.““ Á dögunum birtist zetu-vísa um Sverri Hermannsson, sem var and- vígur því að fella hana út á sínum tíma. Hermann Jóhannesson orti: Það var gott þegar landsfeður létu okkur losna við hvimleiða zetu því við skrifum öll rétt bara ef regla er sett sem er miðuð við minimal getu. En mín hugsun er hreint ekki verri. Ég vil hætta að skrifa með erri. Ekkert hálfkák og sút bara henda því út og sjá þá hvað verður úr Sverri. Ásmundur Jónsson skáld frá Skúfsstöðum var mikill aðdáandi Einars Benediktssonar, bjó hjá honum og var kallaður butler hans. Af því tilefni ortu þeir sam- an vísu Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi, Haraldur Á. Sig- urðsson leikari og Morten Otte- sen: Í skáldskap við aðra ég sting mjög í stúf af stórbrotnu skáldjöfrakyni; ég er undarlegt sambland af Ásmundi Skúf og Einari Benediktssyni. Pétri Stefánssyni leist ekkert á veðrið í gær: Vekja kvíða veðrin stríð, og varpi gríðar tjóni. Úti er víða illskuhríð að ergja lýð á Fróni. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af pilsum, zetu, Bjarna frá Gröf og ástargassa Valgeir Guðjónsson tónlistar-maður lét hafa eftir sér í út- varpsviðtali á dögunum að tónlistar- húsið Harpa væri eitt það besta sem út úr hruninu hefði komið. Víkverji er Valgeiri hjartanlega sammála. Eftir að hafa farið á nokkra tónleika í Eldborg og fleiri sölum, og notið landsins fremstu matargerðarlistar á Kolabrautinni, hefur Víkverji kom- ist að því að Íslendingar búa yfir gríðarlegum mannauði þegar lista- menn eru annars vegar, hvort sem það eru söngvarar, hljóðfæraleik- arar, dansarar eða matreiðslumeist- arar. x x x Raggi Bjarna sýndi það vel umhelgina, ásamt góðum gestum á Vorkvöldi í Reykjavík, að það þarf engan Tom Jones til að fylla Eld- borgina í tvígang. Þessi síungi og sí- káti söngvari, kominn á 78. aldursár, leiddi fram hvern listamanninn á fætur öðrum fyrir fullu húsi og sýndi vel sjálfur að hann hefur engu gleymt, þó að einstaka textalína gleymist hér og þar. Eldborgin og stórsveit Jóns Ólafssonar laðaði fram það besta hjá söngvurum eins og Eivöru Páls, Diddú, Guðrúnu Gunnars, Bjarna Ara og Gosp- elkórnum, Birni Jörundi og Álfta- gerðisbræðrunum skagfirsku. Víkverji efast t.d. um að hafa nokkru sinni heyrt Rósina hans Friðriks Jónssonar flutta betur og fallegar en Sigfús og þeir bræður gerðu þetta vorkvöld. Raggi slóst í hópinn, líkt og í fleiri lögum, og sam- an slógu þeir líka á létta strengi. x x x Nokkrar sögur fengu að fjúka, semRaggi hafði lært af þeim bræðr- um, m.a. ein af ónefndum manni sem kenndi hundinum sínum að tala. Einu sinni sendi hann hundinn út í búð að kaupa Moggann. Hundurinn bað um pening, sem hann og fékk. Síðan leið og beið og ekkert bólaði á hvutta. Húsbóndinn fór að leita og fann hundinn skömmu síðar, þar sem hann var að hamast á tík í húsa- sundi. „Hvað ertu að gera?“ spurði maðurinn undrandi, „þetta hef ég aldrei séð þig gera áður.“ „Nei,“ sagði hundurinn, „ég hef líka aldrei fengið pening áður.“ Víkverji Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) G æ sa m am m a o g G rí m ur G re tt ir S m áf ól k H ró lfu r hr æ ði le gi F er di n an d GRETTIR... ÞAÐ ER MATUR! ÉG ER ALLTAF EINU SKREFI Á UNDAN ÞÉR HVERSU VEL ÞEKKJUM VIÐ HANN? ÞEFUM VIÐ AF RASSINUM EÐA DILLUM VIÐ BARA RÓFUNNI? VIÐ VORUM SKÖPUÐ FYRIR HVORT ANNAÐ VIÐ EIGUM SVO MARGT SAMEIGINLEGT EINS OG HVAÐ? TIL DÆMIS... ...ERUM VIÐ BÆÐI NÍU ÁRA... KÆRI KENNARI, ÉG VONA AÐ ÞÉR LÍÐI BETUR... ÉG SKIL VEL AÐ ÞÚ HAFIR MISST VITIÐ ÞARNA UM DAGINN ÞÚ HLJÓPST EFTIR GÖNGUNUM OG HENTIR UMSLÖGUM Í ALLAR ÁTTIR REYNDU BARA AÐ HVÍLA ÞIG OG EKKI HAFA ÁHYGGJUR AF OKKUR PIPA R \ TBW A  SÍA  111896 | 105 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.