Morgunblaðið - 15.05.2012, Side 30

Morgunblaðið - 15.05.2012, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Leikrit Shakespeares umrómversku stríðshetjunaKajus Marsíus, sem færviðurnefnið Kóríólanus eftir að hann vinnur borgina Kóríólí, hefur síður en svo glatað gildi sínu í aldanna rás. Kóríólanus er mikil kempa en vonlaus stjórnmálamaður. Í upphafi leikritsins neitar hann al- menningi um aðgang að kornbirgð- um Rómar. Það kemur honum í koll þegar hann snýr aftur eftir að hafa sigrað Túllus Áfidíus, hershöfðingja Volska, sem eiga í erjum við Róm- verja, og sækist eftir hylli lýðsins til að verða ræðismaður. Hvikult fólkið styður hann í fyrstu en snýst svo gegn honum fyrir áeggjan fénda hans, Sisiníusar og Brútusar. Í raun er Kóríólanus leiksoppur. Hann er gereyðingarvopn Rómverja gegn Volskum og nýtist til að hræða almenning heima fyrir til hlýðni. Hann er líka leikfang stjórnmála- manna sem ýmist ætla að nota sigra hans sér til pólitísks framdráttar eða ná hylli fólksins með því að steypa honum af stalli. Ráðabruggið snýst hins vegar í höndum þeirra. Kóríó- lanus gengur í niðurlægingu sinni til liðs við Volska og sinn svarnasta fjandmann, Áfidíus, og þeir eru við að leggja Róm undir sig þegar móðir hans, eiginkona og sonur koma og biðja hann að hlífa móðurjörð sinni. Kóríólanus og Hitler Mikið hefur verið gert úr hinum póli- tíska þætti leikritsins. Á fyrri hluta 20. aldar þegar fasismi ruddi sér til rúms ásamt öðrum hugmyndum um hið sterka vald varð Kóríólanus að bitbeini. Uppfærsla Comedie Fran- caise árið 1934 leiddi til óeirða kon- ungssinna og fasista. Lögregla stöðv- aði sýningar á leikritinu í mánuð vegna þess hvernig franskir fasistar gerðu Kóríólanus að táknmynd alls þess, sem þeir vildu koma á í Frakk- landi. Í Þýskalandi nýttu nasistar sér leikritið. Í skólabókum var Hitler líkt við Kóríólanus. Hans Rothe, sem þýddi leikritið á þýsku, skrifaði að Kóríólanus „gnæfði yfir þjóð, sem byggi við falsstjórn í falslýðræði og byði að leiða hana til heilbrigðara samfélags líkt og Adolf Hitler á okk- ar tímum vill leiða okkar elskaða, þýska föðurland“. Eftir seinni heims- styrjöld bönnuðu bandarísk her- námsyfirvöld sýningar á Kóríólanusi í Vestur-Þýskalandi. Í Austur-Þýskalandi tók Bertold Brecht sig til og hugðist setja Kóríól- anus upp í marxískri túlkun líkt og gert hafði verið í Moskvu á fjórða áratugnum, en vildi bæta um betur og endurskrifa leikritið. Hann tók meðal annars út hluta þar sem Shakespeare virtist styðja álit Kórí- ólanusar á múgnum í viðleitni sinni til að laga að boðskapnum. Brecht hafði ekki lokið við breytingarnar þegar hann lést 1956, en hans útgáfa var sett upp í Austur-Berlín 1963. Valdatafl og fjölskylduharmur Ralph Fiennes gefur tóninn í kvik- mynd sinni eftir leikritinu með því að færa það til nútímans og taka mynd- ina í Belgrað og víðar í Serbíu auk Svartfjallalands og skapa umgjörð, sem um margt minnir á átökin á Balkanskaga í lok 20. aldarinnar. Fi- ennes er ógnvekjandi sem Kóríól- anus. Áhorfandinn fær enga samúð með þessum manni, sem er eins og illa gerður hlutur þegar hann þarf að vera meðal fólksins og kaldur og frá- hrindandi með fjölskyldu sinni, en í essinu sínu í blóðugum bardaga. Fiennes, sem bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið, notar texta Shakespeares, en sleppir þó ýmsu og breytir, meðal annars með því að færa lýsingu á framvindu átaka í sjónvarpsfréttir þar sem þulurinn talar í bundnu máli. Það stuðar örlít- ið í fyrstu að heyra texta Shake- speares fluttan í stríðsgnýnum miðjum, en það gleymist þegar myndin kemst á skrið. Sýnendur myndarinnar eiga heiður skilinn fyr- ir að nota þýðingu Helga Hálfdan- arsonar í textann með myndinni. En Kóríólanus er ekki bara póli- tískt leikrit, heldur einnig fjöl- skyldudrama þar sem samband son- ar og móður tekur nánast á sig ödipusarmynd. Þegar Virgilía, kona Kóríólanusar, hefur áhyggjur af manni sínum svarar móðirin Vól- úmnía: „Ef hann sonur minn væri minn eiginmaður, þá skyldi ég frem- ur gleðjast af fjarvist hans, sem aflar honum sæmdar, en af faðmlögum hans á beði, sem bera fram ást hans.“ Vanessa Redgrave er frábær sem Vólúmnía og samleikur hennar og Fiennes þegar hún biður Róm griða leiftrandi. Kóríólanus er ekki auðmelt mynd, en hún verðlaunar ríkulega þann, sem leggur á sig að sökkva sér í hana. Ógn Leikarinn og leikstjórinn Ralph Fiennes er ógnvekjandi sem Kóríólanus. Myndin er ekki auðmelt en verð- launar ríkulega þann, sem leggur á sig að sökkva sér í hana, segir m.a. í gagnrýni um kvikmyndina Coriolanus. Stríðshetja og leiksoppur Bíó Paradís Coriolanus bbbbn Leikstjóri: Ralph Fiennes. Aðalhlutverk: Ralph Fiennes, Gerard Butler, Brian Cox og Vanessa Redgrave. Bretland, 2012. 122 mín. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Maður er aldrei of gamall til að læra á hljóðfæri og það geta allir lært að spila. Þetta er eins og læra nýtt tungumál að kynnast tónlist- inni og þetta tungumál opnar manni undraheim með tilheyrandi lífsfyllingu og fegurð,“ segir Mar- grét Hjaltested, víóluleikari og kennari, sem býr og starfar í New York. Leið hennar lá til Bandaríkj- anna í nám fyrir 23 árum en hún lærði fyrst við Juilliard og svo við Mannesskólann. Síðan hefur hún ílengst vestanhafs. Síðastliðin átta ár hefur Margrét kennt á sumarnámskeiðum undir merkjum SummerKeys þar sem fólk á öllum aldri getur einbeitt sér að tónlistarnámi. „SummerKeys- námskeiðin eru öllum opin og þátt- takendur þurfa ekki að hafa neina lágmarkstónlistarkunnáttu. Þeir þurfa aðeins að hafa áhuga á tón- listarnáminu og mæta með hljóð- færi til að leika á,“ segir Margrét. Að sögn Margrétar hófu Sum- merKeys-námskeiðin göngu sína fyrir tuttugu árum þegar Bruce Potterton, stofnandi og stjórnandi SummerKeys, ákvað að bjóða upp á vikulangt píanónámskeið í húsi sínu í bænum Lubec í Maine í Banda- ríkjunum. Síðan þá hefur hug- myndin undið upp á sig, því í dag er kennt á fjölda hljóðfæra í allt að tíu vikur yfir sumartímann. Um 250 nemendur leggja leið sína þangað á hverju sumri og fjölmargir koma ár eftir ár. Minnir á Siglufjörð „Lubec er lítið fiskiþorp, nyrst á austurströnd Bandaríkjanna við landamæri Kanada, og það tekur ríflega 12 klst. að aka þangað frá New York. Þetta er ákaflega fal- legur staður í miðjum þjóðgarði, en mjög afskekktur. Í bænum búa að jafnaði um 1.600 manns. Að sumu Kammerkór Reykjavíkur heldur upp á tíu ára afmæli sitt með hátíð- artónleikum í Háteigskirkju í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru verk eftir m.a. Igor Stravinsky, Edvard Elgar, Zoltán Kodály, Georges Bizet, Ant- on Bruckner, Ariel Ramiriez, Björgvin Þ. Valdimarsson og Eyþór Stefánsson. Auk þess verður flutt nýtt verk eftir Sigurð Bragason, stjórnanda kórsins, sem nefnist Á fótskör þinni og samið er við ljóð Valdimars Lárussonar. Jafnframt verður frumflutt hér á landi Le Sette Parole di Nostro Signore sem er verk fyrir kór og einsöngv- ara eftir Pietro Allori. Einsöngv- ari í verkinu er sópransöng- konan Þóra Gylfadóttir. Þess má geta að Barnakór Hvaleyrarskóla verður sérstakur gestur Kammerkórs Reykjavíkur á tónleikunum. Fagna 10 ára afmæli Háteigskirkja  Margrét Hjalte- sted hefur kennt hjá SummerKeys sl. átta sumur „Eins og PINNAMATUR Skútan FYRIR ÚTSKRIFTINA Við val á veitingum þarf að hafa í hu ga á hvaða tíma dags móttakan er og hve rsu lengi hún á að standa. Í “standandi” v eislum er vinsælt að bjóða upp á t.d fimm til sjö rétta pinnaborð. Hlaðborð Tapas Pinnamatur www.veislulist.is Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Pinna og Tapas borð eru afgreidd í ö skjum þar sem kaupandi sér sjálfur u m að raða þeim á föt eða tilbúnir á á bo rð á einnota veislufötum. Sé veislan 1 50 manna eða meira eru allar veitingar afhentar á einnota veislufötum. Þú getur lesið allt um pinnamat og aðra rétti á heimasíðu okkar Verð frá 2.258 pr. mann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.