Morgunblaðið - 15.05.2012, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012
leyti minnir hann á Siglufjörð, því í
byrjun 20. aldar var þetta blómlegt
og öflugt fiskimannasamfélag þar
sem meginuppistaðan var sard-
ínuveiðar. Með minnkandi fisk-
vinnslu fór að halla undan fæti og í
dag er Lubec fábreytt fiskimanna-
samfélag. SummerKeys-námskeiðin
hafa hins vegar reynst mikil lyfti-
stöng fyrir bæinn, því hann bók-
staflega fyllist af hljóðfæraleikurum
yfir sumartímann,“ segir Margrét.
„Hugmyndin með SummerKeys
er að bjóða fólki upp á sumarfrí
sem uppfullt er af tónlist. Þannig
getur fólk látið sér líða vel á fal-
legum stað þar sem það hefur gott
næði til þess að æfa sig milli þess
sem það sækir tónlistartíma.
Kennslunni er þannig háttað að
dagurinn byrjar með hóptíma að
morgni þar sem farið er yfir til-
tekin tæknileg atriði. Þannig fer ég
t.d. yfir það hvernig skuli halda á
boganum og standa með hljóðfærið.
Undir lok hverrar viku eru síðan
haldnir nemendatónleikar þar sem
afrakstrinum er fagnað, en það er
ótrúlegt að heyra hvað fólk getur
spilað merkilega hluti með tak-
markaðri tækni. Bakgrunnur nem-
enda í hverjum hópi er oft mjög
ólíkur og getan mismunandi. Þann-
ig geta setið hlið við hlið ein-
staklingur sem aldrei hefur leikið á
hljóðfærið sem hann langar að læra
á og annar sem leikið hefur heilu
fiðlukonsertana fyrir mörgum árum
jafnvel áratugum. En það er þessi
breidd sem gerir kennsluna svo
spennandi og skemmtilega,“ segir
Margrét og bendir á að nemendur
noti tímann milli kennslustunda til
að æfa sig einir og jafnvel æfa verk
með öðrum.
Býr í Lubec allt sumarið
Spurð nánar um bakgrunn nem-
enda segir Margrét þá flesta vera á
miðjum aldri og upp úr. „Í mörgum
tilfellum er um að ræða fólk sem
komið er á eftirlaun sem loks hefur
tíma til að sinna hugðarefnum sín-
um í stað þess að sinna daglegu
amstri og barnauppeldi. Þetta er
fólk sem hefur jafnvel dreymt um
það áratugum saman að fá að læra
á hljóðfæri,“ segir Margrét og tek-
ur fram að nemendur komi víða að
og úr mörgum stéttum þjóðfélags-
ins, hún bætir við að reyndar séu
áberandi margir læknar og verk-
fræðingar í hópi nemenda. Eins og
fyrr segir byrjaði Margrét að
kenna hjá SummerKeys fyrir átta
árum. „Fyrstu árin kenndi ég bara
viku og viku í senn, en mér finnst
þetta svo merkilegt starf að núna
er ég farin að búa í Lubec allt sum-
arið. Í ár mun ég þannig kenna hjá
skólanum í um fimm vikur og í
framhaldinu vera með einkatíma og
kenna í kvartett-hópum á eigin veg-
um,“ segir Margrét að lokum.
Laufey Sig-
urðardóttir
fiðluleikari
mun um
hvítasunn-
una standa
fyrir hljóð-
færa-
námskeiði
fyrir full-
orðna í anda
Summer-
Keys-námskeiðanna í Mývatns-
sveit undir yfirskriftinni Streng-
leikar. Námskeiðið fer fram í
félagsheimilinu Skjólbrekku á
Skútustöðum dagana 24.-28.
maí. Inntökuskilyrði eru engin
nema áhugi á fiðluleik. Boðið
verður upp á bæði einkatíma og
hóptíma, en námskeiðinu lýkur
með tónleikum. Laufey hefur
áratuga reynslu af kennslu,
hvort heldur sem er fyrir algera
byrjendur, lengra komna eða at-
vinnumenn. Meðleikari nám-
skeiðsins er Aladár Rácz píanó-
leikari. Skráning og allar nánari
upplýsingar fara fram í gegnum
netfangið: fidley@simnet.is.
Einnig er hægt að finna Streng-
leika á Facebook.
Strengleikar í
Mývatnssveit
NÝTT FIÐLUNÁMSKEIÐ
Laufey
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kennsla Margrét segir fólk aldrei of gamalt til að læra að leika á hljóðfæri.
að læra nýtt tungumál“
Allar nánari upplýsingar um
SummerKeys-námskeiðin og
hugmyndafræðina má nálgast
á summerkeys.com.
Menningarnótt verður haldin í
sautjánda sinn hinn 18. ágúst nk.
Auglýst er eftir áhugasömum og
frumlegum hugmyndasmiðum til
þess að fylla inn í viðburðalandslag
Menningarnætur 2012. Á vefnum
www.menningarnott.is má bæði
skrá sig til almennrar þátttöku sem
og sækja um styrki. Opnað verður
fyrir styrkumsóknir mánudaginn
11. maí en umsóknarfrestur rennur
út mánudaginn 18. júní. Tekið
verður á móti almennum umsókn-
um um þátttöku fram til 23. júlí.
„Þemað í ár er „Gakktu í bæinn“
og vísar til þeirrar gömlu íslensku
venju að bjóða gesti sína velkomna
og gera vel við þá. Þó að þemað
megi gjarnan
speglast í við-
burðum hátíð-
arinnar þá er
það ekki skilyrði
þátttöku, tekið
verður vel á móti
öllum skraut-
legum og
skemmtilegum
hugmyndum,“
segir í tilkynn-
ingu. Veittir verða styrkir úr
Menningarnæturpottinum, á bilinu
50-200 þúsund kr. til einstaklinga
og hópa sem hafa hug á því að
skipuleggja fjölbreytta og áhuga-
verða viðburði á Menningarnótt.
Auglýst eftir hugmyndum
Mugison Menning-
arnótt í fyrra.
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–EB Fbl
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas
Mið 16/5 kl. 20:00 8.k Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k
Fim 17/5 kl. 20:00 9.k Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k
Fös 18/5 kl. 20:00 aukas Lau 26/5 kl. 20:00 aukas Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Lau 19/5 kl. 17:00 aukas Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Sun 20/5 kl. 20:00 10.k Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Þri 22/5 kl. 20:00 aukas Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Sun 10/6 kl. 20:00
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Fim 17/5 kl. 20:00 Fös 18/5 kl. 20:00 lokas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra svið)
Lau 19/5 kl. 20:00 lokas
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Mið 16/5 kl. 20:00 aukas Fös 18/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Fim 17/5 kl. 20:00 Fös 25/5 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bræður - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport, Malmö Stadsteater, Teater Får302. Sýnt á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Lau 19/5 kl. 20:00 4.k Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 9/6 kl. 20:00
Sun 20/5 kl. 20:00 5.k Fös 1/6 kl. 20:00
Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Lau 2/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 20/5 kl. 13:00
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 18/5 kl. 19:30 Fös 1/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 19/5 kl. 19:30 Lau 2/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Sun 20/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fös 25/5 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Fös 15/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 18/5 kl. 19:30 24.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 Sun 20/5 kl. 19:30 Síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Bliss (Stóra sviðið)
Mán 21/5 kl. 12:00
Myndbandsverk eftir Ragnar Kjartansson. Listahátíð 2012
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Sun 20/5 kl. 17:00
Frumsýn.
Þri 22/5 kl. 19:30
Mán 21/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 17:00
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00
Frumsýn.
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Danssýning eftir Sigríði Magnúsdóttur og Sigríði Soffíu Níelsdóttur á Listahátíð
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 19/5 kl. 16:00 Sun 20/5 kl. 16:00
Sigurður Skúlason fer á kostum. Aðeins tvær sýningar eftir.
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252 / 823 0303
þegar þú ætlar að selja bílinn