Morgunblaðið - 15.05.2012, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 136. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Lést af völdum veikinda
2. Egill Einarsson alvarlega veikur
3. Stakk af frá reikningnum
4. Fannst látinn á Kanaríeyjum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Hellvar hefur samið
við rafræna útgáfufyrirtækið Ching
Ching Bling Bling um rafræna dreif-
ingu á plötum hljómsveitarinnar, m.a.
á iTunes og LastFM. Plöturnar eru
Bat out of Hellvar og Stop that Noise.
Morgunblaðið/Ómar
Hellvar og Ching
Ching Bling Bling
Lokatónleikar
vortónleika-
dagskrár djass-
klúbbsins Múlans
verða haldnir ann-
að kvöld, 16. maí,
kl. 21 í Norræna
húsinu. Fram
kemur kvintett
Sigmars Þórs
Matthíassonar bassaleikara og leikur
frumsamin lög og standarda. Múlinn
heitir í höfuðið á djassgeggjaranum
Jóni Múla Árnasyni.
Kvintett Sigmars
Þórs á Múlanum
Heimildarmyndin Fjallkonan
hrópar á vægð eftir Herdísi Þor-
valdsdóttur leikkonu verður frum-
sýnd á heimildarmyndahátíðinni
Skjaldborg sem haldin verður 25.-
28. maí. Myndin fjallar um gróð-
ureyðingu og
stöðvun lausa-
göngu búfénaðar
á Íslandi.
Herdís fjár-
magnaði gerð
myndarinnar
sjálf.
Heimildarmynd eftir
Herdísi á Skjaldborg
Á miðvikudag Fremur hæg breytileg átt, en NV 8-13 m/s við
NA-ströndina. Hiti 2 til 7 stig að deginum. Víða næturfrost.
Á fimmtudag V 8-10 m/s á annesjum N-til. Hiti 1 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðanátt, 10-20 m/s, hvassast austast.
Snjókoma eða él fyrir norðan og frost 0 til 5 stig, en þurrt að
kalla syðra og hiti 1 til 6 stig.
VEÐUR
„Ég hef ekkert heyrt frá for-
ráðamönnum Potsdam eða
Kristianstad og veit ekki til
þess að neitt sé í gangi.
Fréttirnar um að ég sé að
fara til Svíþjóðar eru ekki á
neinum rökum reistar,“
sagði Margrét Lára Viðars-
dóttir, leikmaður Potsdam, í
samtali við Morgunblaðið í
gær. Kristianstadblaðið birti
í gær frétt um að líkur væru
á því að Margrét væri á leið
til Kristianstad á ný. »1
Margrét Lára
sefur alveg róleg
Lars Lagerbäck, þjálfari karlalands-
liðsins í knattspyrnu, bætir enn leik-
mönnum í landsliðshóp sinn. Hann
tilkynnti í gær hverjir yrðu með í
leikjunum við Frakka og Svía undir
lok þessa mánaðar og þar hefur hann
bætt við fimm leikmönnum
frá tveimur fyrstu leikjum
sínum með liðið í febrúar.
Samtals hefur hann
þá valið 42 leikmenn
fyrir fjóra fyrstu
leiki sína. »4
Lagerbäck kominn
með 42 leikmenn
Stjarnan úr Garðabæ vann sinn
fyrsta leik í Pepsídeild karla í knatt-
spyrnu á þessu sumri þegar liðið
sigraði Keflavík 1:0 suður með sjó í
fyrsta leik 3. umferðar í gærkvöldi.
Garðbæingar eru taplausir en þeir
höfðu áður gert jafntefli gegn KR og
Fylki. Keflvíkingar eru með fjögur
stig eftir að hafa gert jafntefli við
Fylki og unnið Grindavík. »2-3
Fyrsti sigur taplausra
Garðbæinga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Það voru ekki einungis Manchester-
búar sem fögnuðu þegar knatt-
spyrnuliðið Manchester City hamp-
aði Englandsmeistaratitlinum á
sunnudag. Hópur manna úr Man-
chester City-klúbbnum á Íslandi var
á vellinum og varð vitni að æsilegum
lokamínútum þegar liðið skoraði tví-
vegis í uppbótartíma og tryggði sér
sigur, 3-2, á Queens Park Rangers.
Magnús Ingvarsson er formaður
Manchester City-klúbbsins og hefur
verið stuðningsmaður liðsins frá
árinu 1969. „Geðshræringin og
gleðin var engu lík. Það gjörsamlega
brjálaðist allt. Eftir á að hyggja var
miklu skemmtilegra að vinna með
þessum hætti en ef liðið hefði verið
komið í 3-0 í hálfleik. Ég get við-
urkennt það að það var komið ákveð-
ið vonleysi í stuðningsmennina og
margir fúlir. Sumir voru farnir þegar
(Sergio) Aguero skoraði sigur-
markið,“ segir Magnús. Titillinn er
sá fyrsti sem Manchester City vinn-
ur síðan 1968.
Komið að þeim ljósbláu
Lokaandartökin voru æsispenn-
andi. „Ég náði að halda ró minni. Svo
bærðist smávon í brjósti þegar við
jöfnuðum. Þegar sigurmarkið kom
var eins og stúkan myndi hrynja. Allt
varð vitlaust. Ég sá það svo í sjón-
varpinu að þeir sem voru farnir af
vellinum voru að reyna að klifra
inn á hann aftur,“ segir Magnús.
Erkifjendurnir í Manchester
United hafa hampað Eng-
landsmeistaratitlinum
margsinnis á síðustu árum
en nú var komið að þeim
ljósbláu að gleðjast.
„Eftir leik þustu
stuðningsmenn út á götu
og enduðu flestir á City
square í
Manchester.
Maður sá
varla einn einasta stuðningsmann
Manchester United. Að vísu var einn
mættur í gleðina á pöbbnum sem við
fórum á um kvöldið. Hann fékk að
sjálfsögðu aðeins að finna fyrir því.
Hann tók því vel, lét þetta yfir sig
ganga og brosti. Það voru engin leið-
indi manna í milli.
Fóru í viðtal við arabísku Sky
Við lentum í viðtali á arabískri
sjónvarpsstöð sem Sky opnaði fyrir
um viku. Þar talaði arabískur frétta-
maður við myndatökuvélina á arab-
ísku og svo við okkur á ensku og
þýddi fyrir áhorfendur. Viðtalið var
um okkar upplifun sem stuðnings-
menn Manchester City. Stöðin nær
til um 50 milljóna manna. Það er
óhætt að segja að við höfum verið
landi og þjóð til sóma,“ segir Magn-
ús.
Geðshræring og gleði engu lík
Gleðistund hjá
stuðningsmönnum
Manchester City
Bláklæddir Hluti hópsins sem fór á vegum klúbbsins á leikinn. Þeir fögnuðu ákaft þegar liðið vann titilinn.
„Eftir leikinn sjálfan var gleðin
mikil. Menn á öllum aldri féll-
ust í faðma með tárin í aug-
unum. Maður upplifir þetta
bara einu sinni og við eigum
eftir að muna þetta þangað
til tærnar fara upp í loft,“
segir Magnús Ingvars-
son.
„Það verður ekki fyrr
en um næstu helgi sem
allir verða búnir að
greiða úr þessum tilfinn-
ingaflækjum sem fylgja
þessu. Enginn rithöfundur hefði
komist upp með að skrifa kvik-
myndahandrit eins og þetta.“
Með Magnúsi í för voru nokkrir
Íslendingar sem hafa fylgt félag-
inu í rúm 40 ár. Til umræðu hafði
komið að fara á leik Sunderland
og Manchester United sem var á
sama tíma en það var áður en
ljóst var að Manchester City gæti
tryggt sér titilinn á sunnudag.
„Sem betur fer völdum við þenn-
an leik. Guð er góður,“ segir
Magnús.
Guð góður við stuðningsmenn
TÁR OG TILFINNINGAFLÆKJUR SEM BÍÐA Í VIKU
Tilbúinn Magnús
Ingvarsson í
hátíðarbúningi á
leið á völlinn.