Morgunblaðið - 21.05.2012, Qupperneq 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2012
Teikningin er frumlæg tján-ing mannsins – öll börnteikna en fáir rækta teikni-þörfina fram á fullorðinsár.
Hún er þó ávallt nálæg í starfi mynd-
listarmannsins; hugmyndir eru riss-
aðar upp sem og drög að verkum eða
sýningum, skissubækur eru gjarnan
hafðar við höndina og oft er teikn-
ingin veigamikill byggingarþáttur
verka. Hún er vitaskuld einnig sjálf-
stæður miðill og á undanförnum
misserum hafa verið opnaðar tvær
metnaðarfullar yfirlitssýningar á
teikningum eftir íslenska listamenn.
Önnur þeirra stendur yfir í Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni, og ber hún
heitið „Í teikningunni er hugsunin um
teikninguna …“ og er þar vísað til
orða Kjarvals um að teikning sé leið
til hugsunar og tjáningar. Teikningin
lýtur öðrum lögmálum en tungu-
málið.
Gerðarsafn hýsir viðamikið safn
teikninga, m.a. stærsta safn Kjarvals-
teikninga í einkaeigu, sem og fjölda
teikninga eftir Barböru Árnason,
Valgerði Briem og Gerði Helgadóttur
myndhöggvara, sem safnið heitir eft-
ir. Gerður hafði ríka tilfinningu fyrir
virkni teikningarinnar í rými. Verk
hennar eru öðrum þræði þrívíðar
teikningar eins og undirstrikað er á
sýningunni með skúlptúr frá 1954 úr
járni og messing. Skammt þar frá eru
sýndar undirbúningsteikningar
Gerðar og standa þær raunar sem
sjálfstæð verk. Sýningin sam-
anstendur að miklu leyti af verkum
úr safneigninni en einnig eru þar
verk eftir ýmsa listamenn sem fengin
hafa verið að láni til að sýna breiddina
í miðlinum, hvað varðar myndefni,
tækni og efnistök. Má þar nefna
óhlutbundnar eða fantasíukenndar
stemningar í kolateikningu Ragn-
heiðar Jónsdóttur og í túskteikn-
ingum Kjarvals sem og teikningunni í
hluta af hinu stórbrotna verki hans
Lífshlaupið. Raunsæisleg og nákvæm
vinnubrögð sjást m.a. í blýants- og
krítarteikningum Barböru Árnason,
Birgis Andréssonar, Guðjóns Ketils-
sonar og Sverris Haraldssonar. Sum
verkin túlka hughrif og fanga hreyf-
ingar ungra barna, í öðrum er grafist
fyrir um fortíðina, minningar og eðli
myndrænnar framsetningar – í enn
öðrum birtast leggjalangar konur
með súrrealísku ívafi.
Á neðri hæð safnsins getur að líta
fjölda áhugaverðra myndverka (und-
ir sýningarstjórn Guðrúnar Veru
Hjartardóttur myndlistarmanns) eft-
ir barnunga nemendur í Myndlist-
arskóla Kópavogs, Myndlistaskól-
anum í Reykjavík og
Waldorf-skólanum í Lækjarbotnum.
Mikilsvert er að fá að sjá þessi verk á
listasafni, og í líflegri samræðu við
verkin á efri hæðinni. En þungamiðja
sýningarinnar felst í verkum eftir
Valgerði Briem en hún starfaði ein-
mitt sem teiknikennari af hugsjón og
ástríðu fyrir hinni eðlislægu tjáningu,
skynjun og skilningi hvers og eins.
Gildi myndrænnar tjáningar, og ekki
síst teikningarinnar, var Valgerði
hugleikið alla tíð og eru viðhorf henn-
ar vel kynnt á sýningunni. Myndir
Valgerðar – unnar í túsk, vax- og
vatnslit, gvass eða þrykk – eru gerðar
af næmri tilfinningu fyrir viðfangs-
efninu, hvort sem um ræðir andlits-
myndir, náttúruvísanir eða innimynd-
ir af heimili, tilfinningu sem birtist í
lífrænu og kviku flæði línu og lita.
Í heild er hér um fallega og fjöl-
breytta sýningu að ræða sem vekur
athygli á stöðu teikningarinnar í ís-
lenskri myndlist.
Morgunblaðið/Kristinn
Samsýning Þetta er falleg og fjölbreytt sýning „sem vekur athygli á stöðu teikningarinnar í íslenskri myndlist“.
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
„Í teikningunni er hugsunin um teikn-
inguna …“ – samsýning á eldri og
nýrri verkum
bbbmn
Til 26. maí 2012. Opið þri.-sun. kl. 11-17.
Aðgangur 500 kr., ókeypis fyrir börn
undir 18 ára aldri, aldraða, öryrkja og
námsmenn, og á miðvikudögum. Sýn-
ingarstjórar: Guðbjörg Kristjánsdóttir
og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Lína, þanki, lífshlaup
568 8000 | borgarleikhus.is
Svar við bréfi Helgu HHHH EB. Fbl
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Þri 22/5 kl. 20:00 aukas Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Þri 5/6 kl. 20:00 aukas
Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bræður - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport, Malmö Stadsteater, Teater Får302. Sýnt á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00
Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 2/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 24/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Sun 10/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fös 1/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Bliss (Stóra sviðið)
Mán 21/5 kl. 12:00
Myndbandsverk eftir Ragnar Kjartansson. Listahátíð 2012
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mán 21/5 kl. 19:30 Þri 22/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 17:00
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00
Frumsýn.
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Danssýning eftir Melkorku Sigr. Magnúsd. og Sigríði Soffíu Níelsd. Listahátíð
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is