Morgunblaðið - 11.06.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Vel yfir 400 þúsund krónur söfnuðust fyrir starf-
semi Skákakademíu Reykjavíkur á uppskeru-
hátíð í Ráðhúsinu í gær. Safnað var áheitum í
skákmaraþoni þar sem ungir skákmenn tefldu
við stórmeistara, forsetaframbjóðendur og fleiri.
Síðan fór fram uppboð á ýmsum skákmunum í
eigu Friðriks Ólafssonar og fleiri stórmeistara.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma stjórnaði upp-
boðinu af mikilli röggsemi.
Yfir 400 þúsund krónur söfnuðust
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Slegist um muni á „skákuppboði aldarinnar“ í Ráðhúsinu í gær
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Nei, ekkert sem hefur komið neinni
hreyfingu á hlutina,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, aðspurður hvort einhverj-
ar viðræður séu á milli manna um
þinglok.
Bjarni segir óhætt að segja að
sjávarútvegsmálin og rammaáætl-
unin séu mestu ágreiningsmálin í
þinginu. „Þau hafa kosið að hafa
veiðigjöldin á dagskrá núna í viku og
hafa ekki viljað ræða neitt annað.
Það sýnist mér hafa þjónað afskap-
lega litlum tilgangi svona upp á það
til að gera að ljúka þingstörfunum,“
segir Bjarni og bætir við: „Aðalvand-
inn er sá að þessi mál koma illa unn-
in, og seint, inn í þingið og þess
vegna er þessi staða uppi núna, það
er kominn 10. júní og stjórn fiskveiða
er ennþá inni í nefnd.“
Spurður hvort hann hafi rætt við
formenn ríkisstjórnarflokkanna um
hugsanleg þinglok segir Bjarni:
„Undanfarna daga höfum við átt
samtöl, formennirnir, og við höfum
lagt fram okkar hugmyndir um það
hvernig hægt væri að ljúka þessu
þingi. Það myndi t.d. þýða að þessi
mál myndu ekki öll ná fram að ganga
en það er nú stundum þannig að þeg-
ar menn koma svona seint með mál
fram og þau eru jafngölluð og hefur
komið á daginn þá kannski er það
niðurstaðan.“ Hann segist ekki trúa
öðru en að það takist samkomulag
um að fara að ljúka þessu þingi á ein-
hverjum skynsamlegum nótum.
Vill ljúka þingi en ekki fresta
„Nei, ekki að fresta því. Það er
frekar verið að reyna að tala saman
um það hvort við gætum ekki fundið
leiðir til þess að það lyki störfum
með einhverri lágmarksreisn,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags-
og viðskiptaráðherra og formaður
VG. Hann segir þetta ekki snúast um
að ná samkomulagi um að senda
þingið heim eða gefast upp og láta öll
málin bara liggja óafgreidd. „Það
verður auðvitað gríðarlegt tjón og
sóun ef Alþingi kemst ekki í þær
stellingar að ljúka afgreiðslu fjöl-
margra mála sem þar bíða og verða
margir saklausir þolendur þess ef
þau ósköp ætluðu að fara að gerast,“
segir Steingrímur og bætir við að
hann trúi því og treysti að vilji sé fyr-
ir hendi til þess a.m.k. að lágmarka
tjónið og afgreiða allt sem mögulegt
er.
„Auðvitað reyna menn að vera í
sambandi og við stungum saman
nefjum, þeir sem voru í þinghúsinu
eftir að fundi lauk á laugardag,“ seg-
ir Steingrímur aðspurður hvort
menn ættu í formlegum viðræðum
um þinglok. Aðspurður segist hann
ekki hafa stórar áhyggjur af því að
Alþingi sé að funda svona nálægt
forsetakosningunum, né að slíkt hafi
áhrif á athygli kjósenda.
Engin hreyfing á viðræðum
Formaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki trúa öðru en að það takist samkomu-
lag um þinglok Steingrímur J. Sigfússon segir menn hafa stungið saman nefjum
Bjarni
Benediktsson
Steingrímur J.
Sigfússon
„Það virðist vera meira líf í varpinu en í fyrra,“ segir
Freydís Vigfúsdóttir, doktorsnemi í dýravistfræði við
University of East Anglia á Englandi. Hún hefur ásamt
samstarfsmönnum sínum við Háskólasetur Snæfells-
ness og Náttúrufræðistofnun Íslands rannsakað kríu-
varp á Íslandi síðustu sumur.
„Ástandið í fyrra var verulega slæmt því þá fór varp-
ið þremur vikum seinna af stað en venja er. Svo veltur
það á því hvernig varpið gengur hvort nóg fæða verður
til staðar þegar ungarnir klekjast út,“ segir Freydís.
,,Ungarnir ættu að klekjast út um næstu mánaðamót og
þá kemur í raun fyrst í ljós hvort árangur verður af
varpinu. Oft hefur varp farið ágætlega af stað en eng-
inn árangur síðan verið vegna fæðuskorts þar sem ung-
arnir drápust úr hor.“
Kríustofninn var metinn á níunda áratugnum og
voru þá talin vera á milli 250 til 500 þúsund kríupör á
Íslandi. Kríustofninn hefur ekki verið metinn síðan.
aslaug@mbl.is
Kríuvarp er hafið og lítur
betur út núna en í fyrra
Morgunblaðið/Ómar
Kríuvarp Ungar hafa verið að drepast úr hor vegna
skorts á fæðu sem líklega tengist breytingum í lífríkinu.
Veltur allt á hvort næg
fæða verður fyrir ungana
„Staðan er mjög
góð og á svæðinu
er allt á fullu,“
segir Haraldur
Örn Gunnarsson,
framkvæmda-
stjóri Landsmóts
hestamanna, sem
hefst eftir tvær
vikur, hinn 25.
júní, í Víðidal í
Reykjavík.
„Framkvæmdir eru á áætlun og í
gær var verið að setja upp markaðs-
tjaldið við reiðhöllina. Næst á dag-
skrá er að setja upp þúsund manna
stúku, stjórnstöðvar, gólf í reiðhöll-
ina og girðingu utan um svæðið.“
Búist er við 12-16 þúsund manns á
svæðið, um þúsund hross keppa á
mótinu og tæplega sex hundruð
knapar. „Nú er lokaundirbúningur
hafinn, en undirbúningur hefur stað-
ið í tvö ár. Það eru bara loka-
handtökin eftir og mótssvæðið er
orðið hið glæsilegasta hjá Fáks-
mönnum,“ segir Haraldur Örn.
aslaug@mbl.is
Landsmót
hefst eftir
tvær vikur
Hópreið Frá lands-
mótinu 2011.
Björgunarsveitarmenn stóðu í
ströngu um helgina. Á höfuðborg-
arsvæðinu voru sveitir kallaðar út
tvisvar í gær, fyrst vegna konu sem
slasaðist í Helgafelli. Var hún sótt
með þyrlu. Síðan kom útkall vegna
skemmtibáts sem var í vandræðum
með vélina skammt frá Kjalarnesi. Í
gærmorgun aðstoðaði Björg-
unarfélag Hornafjarðar við að losa
rútu úr sandi við Stokknesvita. Á
laugardag aðstoðaði Hjálparsveit
skáta í Hveragerði konu sem komst
ekki af sjálfsdáðum niður úr göngu-
ferð í Gufudal.
Annríki hjá björg-
unarsveitunum
Þrír slösuðust í bílveltu á Snæfells-
nesi um sjöleytið í gærkvöldi.
Bílstjóri og tveir farþegar voru
fluttir á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar.
Slysið átti sér stað á Útnesvegi á
Snæfellsnesi, nálægt Hellnum. Öll
þrjú sem voru í bílnum slösuðust, en
mismikið. Tvö þeirra köstuðust út
úr bílnum.
Ekki er vitað um orsök slyssins,
en malbikaður vegur er á þessum
stað og veður var gott.
Þrír slösuðust og
fluttir með þyrlu