Morgunblaðið - 11.06.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Skömmu eftir bankahrunið haustið 2008 stöðv-
uðust framkvæmdir við ráðstefnu- og tónlistar-
húsið, er síðar fékk nafnið Harpa sem kunnugt
er. Hörpu hefur verið vel tekið og aðsóknin ver-
ið framar björtustu vonum, gestir hússins
komnir yfir eina milljón síðan í maí í fyrra. Er
það að mörgu leyti áhugavert í ljósi þess að eftir
hrunið kom sá möguleiki til alvarlegrar skoð-
unar hjá hinu opinbera, m.a. innan ráðuneyta og
hjá fjárlaganefnd Alþingis, að hætta alfarið
framkvæmdum og láta hreinlega rífa húsið.
Aðrir möguleikar voru að halda áfram eða að
loka byggingunni þannig að hægt yrði að hefja
framkvæmdir síðar, þegar kreppan væri af-
staðin.
Eftir nokkra krísufundi, þar sem listamenn
voru m.a. fengnir til að sannfæra embættis- og
bankamenn um þýðingu og hlutverk hússins
fyrir menningarlíf þjóðarinnar, ákváðu ríki og
borg að halda framkvæmdum áfram. Útreikn-
ingar sýndu að hagkvæmara væri að stoppa
ekki en þá var spurningin hvernig staðið yrði að
fjármögnun þar sem Portus, félagið sem átti að
byggja og reka húsið, var komið í þrot.
Mikil óvissa uppi
Beiðni um lán kom á síðustu stundu inn í
fjárlagaumræðu á Alþingi í desember 2008 og
þar á bæ ríkti ekki einhugur um að ríkið legði
aukið fé til verksins. Þetta var í miðri búsá-
haldabyltingu og óvissa mikil í stjórnmálum.
Með ríkisstjórnarskiptunum í byrjun febrúar
2009 minnkaði ekki óvissan um framtíð tónlist-
arhússins. Framkvæmdir höfðu þá legið niðri
síðan fyrir jól. Bakvið tjöldin var róið að því öll-
um árum að koma í veg fyrir að verkefnið stöðv-
aðist og að húsið yrði jafnvel rifið. Haft var eftir
hönnuði glerhjúpsins, Ólafi Elíassyni, í Morg-
unblaðinu í lok janúar 2009 að mikil óvissa væri
um framhaldið. „Í fyrsta sinn er raunveruleg
hætta á því að samningaviðræður um áfram-
haldandi byggingu hússins fari út um þúfur. Ég
óttast að það leiði til þess að við sitjum uppi með
rúst í miðborginni,“ sagði Ólafur.
En hann og aðrir aðstandendur hússins
gátu í febrúarmánuði andað léttar þrátt fyrir
stjórnarskiptin. Það kom í hlut nýs mennta-
málaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, að und-
irrita viljayfirlýsingu með þáverandi borg-
arstjóra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, í lok
febrúar um áframhaldandi byggingu tónlistar-
húss og ráðstefnumiðstöðvar. Nýju bankarnir,
sem reistir voru á rústum þeirra gömlu, tóku að
sér fjármögnunina en hvorki ríki né borg lögðu
meira fjármagn til hússins en þau höfðu áður
skuldbundið sig til að gera. Í febrúar 2009 var
talið að það kostaði 13,3 milljarða að ljúka verk-
inu, auk vaxta á samningstíma, en á núvirði eru
það tæpir 16 milljarðar. Heildarkostnaður við
Hörpu er í dag talinn vera 17-18 milljarðar
króna, en þar mætti bæta við um 10 milljörðum
sem voru afskrifaðir í hruninu vegna þrots Por-
tusar, sem var í eigu gamla Landsbankans og
Nýsis. Austurhöfn, sem er að 54% hluta í eigu
ríkisins og 46% í eigu Reykjavíkurborgar, tók
Portus yfir og systurfélögin Totus og Situs
fylgdu með í kaupunum, auk fleiri félaga.
Nýtt lán til 35 ára var tekið hjá nýja
Landsbanka, Íslandsbanka og Arion banka sem
ríki og borg greiða af, en lánið er á breytilegum
vöxtum. Unnið er í dag að endurfjármögnun
lánsins með skuldabréfaútboði á föstum vöxt-
um. Búist er við að lífeyrissjóðirnir verði helstu
eigendur þeirra skuldabréfa.
Flókið vandamál
Illugi Gunnarsson þingmaður átti sæti í
stjórn Austurhafnar, sem fulltrúi ríkisins, þegar
hrunið varð. Hann segir að vissulega hafi það
verið einn af möguleikunum í stöðunni að
hætta framkvæmdum alfarið og láta rífa
húsið, en fljótlega hafi komið í ljós að það
væri ekki fýsilegur kostur. Ofan á kostn-
að við húsrifið hefði bæst við annar
kostnaður vegna bindandi samninga
sem búið var að gera við verktaka.
„Þetta var gríðarlega flókið vanda-
mál en maður hafði alltaf sannfær-
ingu fyrir því að best væri að halda
áfram. Framkvæmdir voru líka
komnar það langt. Ef þetta hefði stöðvast hefði
það verið mjög vond niðurstaða fyrir alla. Enda
hefur Harpa sannað gildi sitt svo sannarlega,
þarna hefur gríðarlegur fjöldi fólks farið í gegn
og almenn ánægja ríkir með húsið,“ segir Illugi.
Mun dýrara að hætta
Stefán Hermannsson er nýlega hættur
sem framkvæmdastjóri Austurhafnar. Þó að
það geti vel hafa verið rætt innan stjórnsýsl-
unnar eða bankanna að rífa húsið segir Stefán
félagið aldrei hafa reiknað kostnað við þá leið,
hún hafi að þeirra mati verið fjarlægur mögu-
leiki.
Að sögn Stefáns lét Austurhöfn hins vegar
reikna út þrjá valmöguleika. Í fyrsta lagi að
halda áfram eins og ekkert hefði í skorist, en þá
var kostnaður við að klára dæmið metinn rúmar
13 milljarðar. Í öðru lagi að pakka „mjúklega
saman“, þannig að verktakar færu ekki á haus-
inn, og fresta framkvæmdum tímabundið. Það
var talið kosta sex milljörðum meira.
Þriðji kosturinn, sem Stefán segir hafa ver-
ið talinn verstan, var að stöðva verkið end-
anlega. Það var talið kosta 10 milljörðum meira
en að halda áfram. Stefán segir þetta hafa getað
þýtt gjaldþrot ÍAV, aðalverktakans, sem ekki
hefði getað greitt sínum undirverktökum. Er-
lendir verktakar voru með gilda samninga og
Stefán segir þá mundu hafa getað gengið á sín-
ar verktryggingar. „Ég held að menn sjái ekk-
ert eftir þeirri ákvörðun í dag að hafa haldið
áfram með húsið,“ segir Stefán.
Rætt í alvöru innan stjórnsýsl-
unnar að láta rífa tónlistarhúsið
Eftir krísufundi og óvissu var talið hagkvæmara að halda áfram 10 milljörðum dýrara að hætta
Morgunblaðið/Júlíus
Tónlistarhúsið Í desember 2008 stöðvuðust framkvæmdir við tónlistarhúsið og um tíma ríkti mikil óvissa um hvort haldið yrði áfram.
Stjórnendur Hörpu prísa sig sæla yfir því
að ákveðið var að halda áfram byggingu
tónlistarhússins. Pétur J. Eiríksson er einn
þeirra en hann kom til starfa við verkefnið
árið 2009, eftir að búið var að ákveða að
halda áfram. Pétur segir aðsóknina í
Hörpu sýna og sanna réttmæti þess að
hafa ekki látið verkið stöðvast. Ekki hafi
heldur staðið til annað en að halda áfram,
þó að einhverjir kunni vafalaust að hafa
frekar viljað rífa húsið á sínum tíma.
Vel yfir milljón gestir hafa komið í
Hörpu frá því að húsið var opnað almenn-
ingi í maí í fyrra. Er áhuginn ekki aðeins
bundinn við Ísland þar sem fjölmargir er-
lendir ferðamenn og tónleikagestir koma.
Þannig voru nærri 100 miðar settir í
sölu í Stokkhólmi á Töfraflautuna og
seldust þeir upp á tveimur dögum.
Einnig komu fjölmargir útlendingar
á tónleikana með Brian Ferry. „Við
höfum náð að koma okkur inn í
tónlistartúrismann,“ segir Pétur.
Til allrar hamingju
var haldið áfram
STJÓRNARFORMAÐUR Í HÖRPU
Pétur J. Eiríksson
Hinn árlegi blómadagur Skólavörðustígsins var hald-
inn á laugardaginn. Auk margvíslegra skemmtiatriða
voru vegfarendum afhent blóm og ávextir og er óhætt
að segja að uppátækið hafi vakið mikla ánægju.
Morgunblaðið/Júlíus
Kölluðu fram bros með blómum