Morgunblaðið - 11.06.2012, Qupperneq 11
Kvenlegt Hér gefur að líta sýnishorn frá nýju línunni hjá MÝR design.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Litagleðin ráðandi Helga Björg, hönnuður MÝR design, vill liti í fötin og kvenlega þætti eins og pífur og blúndur.
efni sem heilla mig.“ Helga Björg
fer einnig reglulega til Lúx-
emborgar og heldur sölusýningar en
það land þekkir hún einnig vel eftir
að hafa verið þar mörg sumur sem
barn.
Um þessar mundir er Helga
Björg að sýna sumarlínu sína, sem
er litskrúðug í meira lagi og hefur
fallið konum vel í geð í veðurblíðunni
sem ríkt hefur undanfarið. Hún
sagðist hafa fallið fyrir þessu efni
þegar hún sá það og þurfti að hafa
sig alla við til að hemja litagleðina.
Manni dettur í hug gömlu Hag-
kaupsslopparnir þegar maður lítur
yfir hönnunina. „Já, þetta eru áhrif
frá sloppunum. Það var sérstök
menning í kringum þessa sloppa,
konur notuðu þá yfir dagklæðnað
sinn til að vernda fötin við vinnuna
heimavið og vasarnir voru drjúg
geymsla.“ Helga Björg minnist
ömmu sinnar í svona slopp, en auð-
vitað eru kjólar MÝR design fágaðri
en slopparnir góðu og hverjum
þeirra fylgir undirkjóll. „Ég er líka
mjög hrifin af tísku eftirstríðs-
áranna, þannig að sumarhönnun mín
er einnig undir þeim áhrifum.“
Hönnunarskoðunarferðir
Fyrir viku blésu Heklan, At-
vinnuþróunarfélag Suðurnesja,
Menningarráð Suðurnesja og
SKASS, Samtök kraftmikilla alvöru
skapandi Suðurnesjakvenna, til við-
burðar í þróunarsetrinu Eldey, þar
sem hönnuðir og frumkvöðlar sýndu
vörur sínar á Heklugosi. Meiningin
er að gera Heklugos að árlegum við-
burði, hvort sem nafnið muni halda
sér eða ekki, enda tókst það vel og
aðstandendur voru himinlifandi.
Helga Björg var ein af þeim, enda
með vinnustofu í Eldey. „Við vorum
búin að ræða það okkar á milli að við
yrðum ofurglöð ef við fengjum 300
gesti. Þeir reyndust yfir 500 þannig
að við erum himinlifandi.“
Helga Björg er ekki síður sæl
yfir þeim nýja vinkli sem hönnunar-
þróunin hefur fengið. Fyrirtækið
Reykjavík Concierge býður upp á
hönnunarskoðunarferðir fyrir er-
lenda ferðamenn og segist Helga
Björg taka á móti þremur til fjórum
rútum í hverri viku. „Þetta eru mjög
skemmtilegar heimsóknir og skipta
mig miklu máli. Fólk er mjög áhuga-
samt um það sem verið er að hanna
hér og mér finnst þetta mikil lyfti-
stöng fyrir svæðið. Hér er líka svo
margt skemmtilegt í gangi sem vert
er að vekja athygli á.“
Vinsæll Þessi jakki frá MÝR design er vinsæll og kemur alltaf í nýjum lit.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
www.myrdesign.net
Ljósmynd/Anna Ósk Erlings
Ljósmynd/Anna Ósk Erlings
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Glæsilegir
sólskálar lengja
sumarið og gera
sælureitinn
ómótstæðilegan
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Gluggar og garðhús
Nánari
upplýsingar á
www.solskalar
.is Viðhaldsfríir
gluggar og hurðir