Morgunblaðið - 11.06.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
Sjósýni voru tekin í Hvalfirði í lok
síðustu viku til greiningar á eitr-
uðum þörungum. Í ljós kom að svo-
nefndir Dynophysis þörungar, sem
geta valdið DSP eitrun, voru yfir
viðmiðunarmörkum. Mat-
vælastofnun varar því við neyslu á
krækling sem safnað er í Hvalfirði.
Fram kemur á vef MAST, að
einnig sé varað við neyslu á kræk-
ling úr Eyjafirði. Alexandrium þör-
ungar sem valdi PSP eitrun hafi
verið yfir viðmiðunarmörkum í sjó-
sýni sem tekið var 3. júní s.l. við
Hrísey. PSP eitur í kræklingi var
einnig yfir viðmiðunarmörkum og
því er varasamt að neyta kræklings
frá svæðinu.
Óhætt í Breiðafirði
Óhætt er hins vegar að neyta
kræklings úr Breiðafirði þar sem
greiningar á sjósýnum og krækling
sem tekin voru við Kiðey í Breiða-
firði sýna að engin hætta er á þör-
ungaeitri í krækling þaðan.
Varasamur
kræklingur
við landið
Eitraðir þörungar
í Hval- og Eyjafirði
Ljósmynd/Anok margmiðlun
Kræklingur Neyslan varasöm úr
Hvalfirði og Eyjafirði.
Fimmtán námsmönnum var úthlut-
að námsstyrkjum úr Samfélagssjóði
Landsbankans. Styrkirnir voru
veittir í 23. sinn en aldrei áður hafa
borist jafn margar umsóknir, eða
1.250 talsins. Dómnefnd valdi úr um-
sóknum og var ákveðið að fjölga
styrkflokkum um einn og bæta við
styrkjum til nemenda í iðn- og verk-
námi. Heildarupphæð námsstyrkja
var einnig hækkuð, eða í 5,4 milljónir
króna, sem Landsbankinn segir í til-
kynningu að sé hæsti styrkur sem
banki veitir af þessu tagi hér á landi.
Styrkflokkarnir eru fimm, eða til
framhaldsskólanema, háskólanema,
háskólanema í framhaldsnámi, list-
nema og iðn- og verknema.
Dómnefndina skipuðu Runólfur
Smári Steinþórsson, formaður, Kol-
brún Halldórsdóttir, formaður
Bandalags íslenskra listamanna,
Ragnhildur Geirsdóttir, athafna-
kona, og Baldur G. Jónsson og El-
ínborg V. Kvaran frá Landsbankan-
um.
5,4 milljónir í styrki
úr samfélagssjóði
Styrkþegar Námsmennirnir sem fengu styrkina frá Landsbankanum, ásamt Steinþóri Pálssyni bankastjóra og
Runólfi Smára Steinþórssyni, prófessor við Háskóla Íslands og formanni dómnefndarinnar.
Oddný G. Harð-
ardóttir, fjár-
málaráðherra og
starfandi iðn-
aðarráðherra, og
Janne Sigurðs-
son, forstjóri Al-
coa Fjarðaáls,
opnuðu formlega
nýja kersmiðju
Alcoa Fjarðaáls á
Reyðarfirði á
laugardag að viðstöddum þingmönn-
um, sveitarstjórnarmönnum og fleiri
góðum gestum. Í kjölfarið hóf smiðj-
an starfsemi og lauk þar með end-
anlega byggingu álversins, sem
hófst árið 2004.
Kostnaður við nýju kersmiðjuna
nemur 36 milljónum dollara, eða
sem svarar 4,6 milljörðum íslenskra
króna miðað við gengi í dag. Fyrsta
skóflustungan var tekin að bygging-
unni í nóvember árið 2010 og var
hún eitt og hálft ár í byggingu.
4,6 milljarða
kersmiðja á
Reyðarfirði
Janne og Oddný
vígja kersmiðjuna.