Morgunblaðið - 11.06.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Rótgróið hreingerningarfyrirtæki með 40 starfsmenn. Ársvelta 150 mkr. og
hefur vaxið með hverju árinu. Góð EBIDTA.
• Glæsilegt íbúðahótel með 20 íbúðum. Góð afkoma.
• Heildverslun með vinsælar snyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr. Góð
afkoma.
• Rótgróið gólfefnafyrirtæki í mjög góðum rekstri. Ársvelta 200 mkr. EBITDA 20
mkr.
• Heildverslun með prjónagarn. Selur einnig mikið í gegnum heimasíðu á
netinu. Vandaðar og vinsælar vörur. Auðveld kaup.
• Stórt þvottahús og efnalaug. EBITDA 12 mkr. Hentugt fyrir dugleg og samhent
hjón.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með matvörur. Ársvelta 330 mkr.
• Stálsmiðja sem framleiðir staðlaðar vörur fyrir sjávarútveg. Stöðug velta og
vel tækjum búið. Hægt að flytja hvert á land sem er og hentar vel sem viðbót
við starfandi vélsmiðju.
• Öflugt hvalaskoðunarfyrirtæki í Reykjavík.
• Rótgróið bakarí með nokkrar verslanir.
• Verslun í Kringlunni með vinsælar sérvörur. Góð afkoma.
SUMARGLEÐI
Hefst í dag
mánudag
FIMM LITIR
VERÐ 93.800.-
NÆSTA SENDING 119.600.-
OPIÐ: MAN-FÖS 11-18
Sumarverð 75.000.-
Madríd. AFP. | „Ég er mjög ánægður
og tel okkur hafa tekið mjög mikil-
vægt skref. Í gær (laugardag) var
sigurdagur trúverðugleika evrunnar,
framtíðar hennar og ESB. Það var
enginn utanaðkomandi þrýstingur,
ég veit ekki hvort ég ætti að segja frá
því en það var ég sem þrýsti á um lán-
ið,“ sagði Mariano Rajoy, spænski
forsætisráðherrann, í kjölfar þess að
ESB samþykkti beiðni Spánverja um
fjárhagsaðstoð. Rajoy hafði fram að
því ávallt neitað að Spánverjar þyrftu
aðstoð ESB við að ráða fram úr efna-
hagserfiðleikum í landinu.
Rajoy tekur undir orð spænska
fjármálaráðherrans Guindos og
ítrekar að ekki sé um björgunarað-
gerðir að ræða, aðeins lán. Spænska
ríkisstjórnin hefur einnig lýst því yfir
að lánið bindi ekki hendur hennar,
engin ný skilyrt niðurskurðaráform
felist í samkomulaginu við ESB.
Samt sem áður segja fjármálaráð-
herrar evruríkjanna í sameiginlegri
yfirlýsingu að fylgst verði vel með
ástandinu og árangur samkomulags-
ins skoðaður reglulega. Einnig segir í
yfirlýsingunni að evruríkin séu þess
fullviss að Spánverjar muni standa
við skuldbindingar sínar er varða
minnkandi halla og enduruppbygg-
ingu.
Rajoy sagði að lánið staðfesti trú
ESB á áætlunum spænsku ríkis-
stjórnarinnar og tók fram að það
væri einmitt vegna aðgerða ríkis-
stjórnarinnar undanfarna mánuði
sem aðeins væri um lán frá ESB að
ræða en ekki allsherjar neyðarinn-
grip.
Skammgóður vermir?
„Hér er um nýja nálgun að ræða.
Væga neyðaraðstoð (e. „lite bailout“)
sem takmarkar ekki fullveldi viðkom-
andi ríkis heldur aðeins bankakerf-
isins. Hinsvegar er þetta ekki fram-
tíðarlausn, aðeins varnaraðgerð sem
miðar að því að halda bankakerfinu á
floti frekar en virkilega stuðla að
vexti,“ segir Charles Diebel, hag-
fræðingur hjá Lloyds Banking Gro-
up. „Ný leið í Brussel: Dregið úr
kröfum um niðurskurð í fyrsta
skipti,“ segir í spænska dagblaðinu
La Repubblica sem leggur áherslu á
að ESB hafi sýnt sveigjanleika, ekki
krafist allsherjarinngrips sem hefði
falið í sér kröfur um harðari niður-
skurðaráform.
Ekki er útséð með frekari þörf
Spánverja á aðstoð að mati Edward
Hugh, óháðs stjórnmálaskýranda í
Barcelona. Að hans sögn gætu
spænsk stjórnvöld þurft að sækja í
frekara skjól ESB með haustinu þeg-
ar þarlend stjórnvöld þurfa að taka á
skuldavanda borga og sveitarfélaga.
Rajoy skipti um skoðun og
þrýsti sjálfur á ESB um lán
Neitar að hafa verið undir utanaðkomandi þrýstingi
AFP
Umskipti Mariano Rajoy spænski forsætisráðherrann neitar að hafa látið
undan þrýstingi ráðamanna innan ESB og fjármálamarkaða.
Að minnsta kosti tveir létust og 41 slasaðist í sjálfs-
morðsárás á kirkju í nígerísku borginni Jos í gær. Í
annarri árás réðust byssumenn inn í kirkju, myrtu einn
og særðu tugi. Íslömsku öfgasamtökin Boko Haram
hafa lýst ódæðunum á hendur sér. Talið er að samtökin
hafi myrt meira en þúsund einstaklinga síðan vopnuð
barátta þeirra hófst um mitt ár 2009. Í yfirlýsingu sem
samtökin sendu frá sér í gær segir að árásir á nígeríska
ríkið og kirkjur þess muni halda áfram þar til takmark-
ið um stofnun íslamsks ríkis náist.
Liðsmenn íslömsku öfgasamtakanna Boko Haram ráðast á kirkjur
Áframhaldandi átök trúarhópa í Nígeríu
AFP
Eftir óeirðir á föstudag
og laugardag þar sem sjö
fórust og kveikt var í
heimilum hundraða hefur
forseti Búrma, Thein
Sein, lýst yfir neyðar-
ástandi í Rakhine-ríki.
Alda hefndaraðgerða hef-
ur gengið yfir Rakhine
eftir að múslimar nauðg-
uðu og myrtu konu í lok
síðasta mánaðar. Búdd-
istar hefndu í síðustu
viku með því að ráðast
inn í strætisvagn og berja tíu múslima til bana. Rík-
isstjórn landsins hefur að undanförnu reynt að ganga
til samninga við uppreisnarmenn eftir áratuga ófrið í
landinu.
BÚRMA
Lýsa yfir neyðarástandi
Thein Sein
Sósíalistaflokkur
Francois Hollande
Frakklandsforseta og
bandamenn hans í Græn-
ingjaflokknum ná meiri-
hluta í neðri deild
franska þingsins ef
marka má útgönguspár
sem gefnar voru út þeg-
ar kjörstöðum lokaði í
gærkvöldi. Ef út-
gönguspár standast mun
það auðvelda Hollande
að koma fyrirhuguðum
breytingum í skattamálum í framkvæmd. Kosn-
ingaþátttaka var mjög döpur, aðeins rúmlega helm-
ingur kjósenda mætti á kjörstað. Seinni umferð
þingkosninganna fer fram eftir helgi.
FRAKKLAND
Sósíalistar að ná meirihluta?
Francois Hollande