Morgunblaðið - 11.06.2012, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú reynir verulega á forystuhæfileika
þína. Reyndu að tala ekki stanslaust og ef þú
vilt frið skaltu biðja um hann hreint út. Aðrir
geta ekki annað en fylgt þér að málum.
20. apríl - 20. maí
Naut Gættu þess að fara vandlega ofan í
saumana á hverju máli, því minnstu mistök
geta reynst þér heldur betur dýrkeypt.
Hlustaðu á það sem aðrir hafa fram að færa
og sýndu skilning og ást.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur svo margt á þinni könnu
að þú þarft að gæta þess að lofa ekki upp í
ermina á þér. Gerðu samt ekkert vanhugsað
í þeim efnum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhverjir vilja pranga inn á þig hlut-
um sem þú hefur í raun og veru enga þörf
fyrir. Mundu að allir hafa eitthvað til síns
ágætis. Vertu viss um að hafa tíma til þess
að lyfta þér upp.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver verður á vegi þínum sem á eftir
að hafa mikil áhrif á líf þitt. Leyfðu öðrum að
njóta þíns góða skaps og þú munt ekki sjá
eftir því heldur þvert á móti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur ákaflega sterka eðlisávísun
til þess að fara eftir. Hafðu vakandi auga
með fjármálunum. Láttu það ekki fara í
skapið á þér þótt allt gangi ekki eins og þú
óskir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu með markmiðin á hreinu til að
koma í veg fyrir að fólk ýti þér inn á rangar
brautir. Láttu samt ekki glepjast af óþarfa
heldur sýndu fyrirhyggju og ráðdeild.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Líflegar samræður við vini og
ættingja eru líklegar til þess að eiga sér stað
í dag. Mundu að ganga hægt um gleðinnar
dyr svo ekki fari allt í vitleysu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt valkostir þínir séu margir
skiptir bara ein ákvörðun máli núna. Sá rétti
er hvorki augljós né auðveldur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður dagur til að ræða
við yfirmann þinn eða annan yfirboðara. Með
þínu skrefi fram á við ertu að breyta miklu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki hafa áhyggjur af öllu því sem
þú hefur komið af stað. Láttu samt ekki hug-
fallast en mundu að hver er sinnar gæfu
smiður og flas er ekki til fagnaðar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Samstarfsmennirnir eru glaðir í
bragði og þú kemur miklu til leiðar, einkum
vegna þess að allir vinna saman. Reyndu að
orða hlutina þannig að allir skilji þig.
Yfirskrift Vísnahorns á laug-ardaginn var „áðan duttu
átján mýs ofan af Súlnatindi“ og
varð mér heldur betur á í messunni
að fara með vísupartinn eins og ég
lærði hann en ekki eins og hann
stendur í Nýjum kvöldvökum, en
Gylfi Pálsson hefur bent mér á að
þar stendur „af Súlutindi“. Súlu-
tindur er á Ytri-Súlum. „Hann er
fallegur úr glugganum hjá mér í
glaðasólskini, skjóttur eins og vilj-
ugur hestur“, sagði gamall vinur,
Sverrir Pálsson, þegar ég hringdi í
hann í gær.
Guðmundur landlæknir orti um
Snæbjörn í Hergilsey:
Í þrautum reynir manninn mest.
Margur er stundarvoðinn.
Snæbjörn stýrir bragna best,
Breiðfirðingagoðinn.
Þegar yfir skeflir skafl,
skaflinn fárs og nauða,
hann við Ægi teflir tafl,
taflið lífs og dauða.
Því er þetta rifjað upp, að
uppskeruhátíð Skákakademíu
Reykjavíkur var í Ráðhúsinu í gær.
Persónugervingur hennar Hrafn
Jökulsson efndi þá til „skákuppboðs
aldarinnar“ þar sem ýmsir munir
voru boðnir upp, þám. tvö taflsett,
sem Friðrík Ólafsson lagði til, en
hann fékk þau að gjöf þegar hann
tefldi á hinu firnasterka Piati-
gorski-móti árið 1963 og var annað
þeirra slegið á 80 þús. kr. Allur
ágóði rennur til styrktar æskulýðs-
starfi Skákakademíunnar. Þar lagði
uppboðshaldarinn, Jóhannes Krist-
jánsson, þessa vísu í minn munn:
Fallega spillir frillan skollans öllu,
frúin sú, sem þú hefur nú að snúa,
heiman læmist hamin í slæmu skrumi,
hrók óklókan krókótt tók úr flóka,
riddarinn staddur, reiddur, leiddur,
hræddur
reiður veður með ógeð að peði
biskups háskínn blöskrar nískum húska
við bekkinn gekk svo hrekkinn þekkir
ekki.
Ég var spurður um þessa vísu.
Tvö elstu handritin eigna hana Stef-
áni Ólafssyni á Vallanesi, þótt aðrar
yngri heimildir telji Guðmund
Bergþórsson höfundinn. Hún á
auðsjáanlega að telja upp skákliðið
og hvað hver af því geri.
Jóhannes Friðlaugsson kennari
frá Hafralæk orti:
Ég hata náð, því náð er ekkert afl,
sem auðgar, græðir sálarlöndin mín,
og aleinn kýs að leika lífsins tafl,
því lönd ég eygi þar sem sólin skín..
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Súlutindur er skjóttur
eins og viljugur hestur
Víkverji hefur fyrir margt að þakkaí sínu lífi. Til dæmis góða heilsu,
yndislega fjölskyldu og fullnýtta yf-
irdráttarheimild.
Og svo auðvitað íslensk mannrétt-
indi.
x x x
Við gleymum því stundum, því viðerum of upptekin við að bölsót-
ast út í allt og ekkert, að Íslendingar
njóta ýmissa mannréttinda sem
þegnar annarra þjóða eru reiðubúnir
að láta lífið fyrir.
Við veltum okkur upp úr því hvort
kona með kornungt barn valdi emb-
ætti forseta Íslands og hvort það sé
ekki rándýrt fyrir ríkið að borga
henni fæðingarorlof. Í Egyptalandi
var hins vegar gengið til forsetakosn-
inga fyrir skemmstu, í fyrsta skipti í
sögu landsins. Aldrei áður höfðu
Egyptar upplifað annað eins frelsi og
það að geta valið á lýðræðislegan
hátt hver yrði forseti landsins. Ætli
þeim þætti kosningaumræðan á Ís-
landi ekki heldur léttvæg?
x x x
Víkverji þarf ekki að minna les-endur á búsáhaldabyltinguna
sem skilaði okkur núverandi rík-
isstjórn. Þó að það séu ekki allir
ánægðir með afraksturinn eigum við
að vera ánægð með réttinn til að mót-
mæla. Í Rússlandi voru í síðustu viku
samþykkt lög sem heimila yfirvöld-
um að sekta þegnana um jafngildi
rúmlega tveggja milljóna króna fyrir
að skipuleggja mótmæli. Þátttak-
endur í mótmælum sleppa betur,
með rúma milljón í sekt. Ætli það
hefðu margir mætt á Austurvöll með
slíkt hangandi yfir sér?
x x x
Ekki er það ætlun Víkverja að geralítið úr þeim vanda sem steðjar
að íslensku þjóðinni. Honum finnst
hins vegar Íslendingar þurfa að
kunna betur að meta það sem þeir þó
hafa.
Því það er gott að vera Íslend-
ingur. Hér má mótmæla, hér mega
allir gifta sig, mennta sig og kjósa.
Hér mega nýbakaðar mæður bjóða
sig fram til forseta, svo fremi þær
hafi náð 35 ára aldri, hafi óflekkað
mannorð … og séu ekki hæstarétt-
ardómarar. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Þegar sál mín örmagn-
aðist í mér, þá minntist ég Drottins, og
bæn mín kom til þín, í þitt heilaga
musteri. (Jónas 2, 8.)
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
4 VERÐ Á
UMGJÖRÐUM
19.900
14.900
9.900
4.900
Nú geta ALLIR keypt sér gleraugu
Sjónmælingar
á staðnum
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
ÉG ER BÚINN AÐ KOMAST AÐ
ÞVÍ AÐ ÉG ER EKKI LENGUR LÚÐI
ÉG Á
KÆRUSTU,
GÆLUDÝR...
...OG ALVEG
STÓRKOSTLEGT
SOKKASAFN LÚÐI
ÉG Á ALLTAF SÍÐASTA
„BLEAH-IД
ÉG SAGÐI VISSULEGA AÐ HVER SÁ SEM
HEFÐI LÖGMÆTA AFSÖKUN MÆTTI SLEPPA
ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT Í ORUSTUNNI...
...EN „ÉG MYNDI FREKAR VILJA
VERA HEIMA MEÐ KÆRUSTUNNI MINNI
EN AÐ BERJAST” ER EKKI
LÖGMÆT AFSÖKUN
NEI TAKK,
ÞAÐ ER BÚIÐ
AÐ VOTTA
MINN
JEHOVAH