Morgunblaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Vann 73 milljónir í lottó
2. Hollendingar í rugli og …
3. Hrikalega stoltur
4. Margir ósjálfbjarga sökum …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrstu skrefin í gerð minningar-
lundar vegna voðaverkanna í Noregi í
fyrra verða tekin við Norræna húsið á
miðvikudaginn kl. 17. Gróðursett verða
átta stór reynitré sem tákna Norð-
urlöndin ásamt Grænlandi, Færeyjum
og Álandseyjum. Eftir gróðursetn-
inguna verður bókin „Ég er á lífi
pabbi“ eftir feðginin Erik H. Sønstelie
og Siri Marie Sønstelie kynnt.
Morgunblaðið/Sverrir
Gróðursetja tré
í minningarlundi
Evrópumeist-
aramótið í knatt-
spyrnu hófst fyrir
helgi í Póllandi og
Úkraínu, bolta-
áhugafólki til mik-
illar gleði. Vert er
að benda á að dag-
lega verða leikir
sýndir í hágæðum
í Kamesinu á 5. hæð Borgarbóka-
safnsins í Tryggvagötu á afgreiðslu-
tíma safnsins. Í leiðinni er hægt að
lesa sér til um þátttökuþjóðirnar.
Sýnt frá EM á
Borgarbókasafninu
Snorri Helgason, Mr. Silla og Hug-
leikur Dagsson fara hringinn í kring-
um landið með skemmtunina Veislu-
fjör 2012. Mr. Silla leika lög af
væntanlegri plötu, Snorri
leikur safn laga af sóló-
plötum sínum auk nýrra
efnis og Hugleikur
Dagsson fer með gam-
anmál. Skemmt verður í
sjö bæjarfélögum á
jafnmörgum
dögum seinni-
part júní.
Veislufjör 2012 haldið
víðsvegar um landið
Á þriðjudag og miðvikudag Hæg breytileg átt og léttskýjað, en
sums staðar skýjað með ströndinni. Líkur á stöku síðdegisskúrum
á sunnanverðu landinu. Hiti víða 7 til 15 stig, hlýjast inn til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri víðast hvar eða hafgola, skýjað
austanlands og með suðurströndinni, en bjartviðri víðast annars
staðar. Hiti 4 til 17 stig, hlýjast vestanlands.
VEÐUR
Ísland getur bókað sæti í
úrslitakeppni heimsmeist-
aramóts karla í hand-
knattleik í janúar 2013
eftir fjórtán marka sigur
á Hollendingum í Laug-
ardalshöllinni í gær-
kvöld. Íslenska liðið
skoraði 20 mörk á síð-
ustu 20 mínútum leiks-
ins. Þar með er seinni leikur
liðanna í Hollandi um næstu
helgi nánast orðinn að
formsatriði. »4-5
Gerðu seinni leik-
inn að formsatriði
Einar Daði Lárusson náði magnaðri
tugþraut í Tékklandi um helgina þar
sem hann var
fimmti í baráttu
við fræga kappa,
sló Íslandsmet 22
ára og yngri
rækilega og
var örskammt
frá ólympíu-
lágmarkinu.
„Þetta eru
miklu fleiri
stig en maður
hefur fengið
hingað til
þannig að
maður er
kominn á ann-
an stall,“
sagði Einar
Daði við Morg-
unblaðið. »1
Einar Daði á annan stall
eftir þraut í Tékklandi
Króatar eru efstir í C-riðli Evr-
ópukeppninnar í knattspyrnu eftir
öruggan sigur á Írum í gærkvöld,
3:1, og eiga nú fyrir höndum bar-
áttu við stórveldin Spán og Ítalíu
um að komast í átta liða úrslitin.
Þau gerðu jafntefli, 1:1, í gær og þar
vöktu Spánverjar athygli fyrir að
stilla ekki upp neinum framherja í
byrjunarliði sínu. »3
Króatar slást við stór-
veldin í C-riðlinum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Jón H. Sigurmundsson
jon@olfus.is
„Ég er nú búinn að standa í þessu
jafn lengi og Elísabet Englands-
drottning. Ég fæ að vísu enga tón-
leika en heiðurshjónin í Hafnarnesi
héldu mér veglega lokaveislu á sjó-
mannadaginn og ég fékk
viðurkenningarskjal og hvað eina,“
segir Gísli Anton Guðmundsson,
netagerðarmeistari í Þorlákshöfn,
sem lét af störfum nýlega eftir 60
ára starf í greininni.
Gísli er fæddur þann 8. ágúst 1936
að Bræðraborg á Stokkseyri. Þrett-
án ára gamall byrjaði hann fyrst að
vinna í netum hjá Karli Karlssyni,
skipstjóra á mb. Ægi á Stokkseyri.
Þar vann hann við það að fella net og
gera að fiski. Árið 1950 fór Gísli með
föður sínum, Guðmundi Gestssyni,
til Þorlákshafnar til að skoða að-
stæður en þá hafði Guðmundur unn-
ið hjá Meitlinum frá því hann var
stofnaður 1949. Fjölskyldan flutti þá
til Þorlákshafnar og byggði þar hús
að A-götu 10. Sjálfur byggði Gísli
sér síðan hús þegar hann stofnaði
fjölskyldu, að A-götu 28. Gísli vann í
20 ár hjá Meitlinum og var með allt
upp í sex manns í vinnu hjá sér á
netaverkstæðinu. Þegar Karl Karls-
son flutti til Þorlákshafnar vildi
hann endilega fá Gísla sem neta-
mann til sín og vann Gísli hjá honum
eftir vinnu hjá Meitlinum, oft ekki
fyrr en eftir klukkan 10 og 11 á
kvöldin og allt til klukkan tvö á
nóttunni og svo um helgar.
Lærði hjá Reykdal
Gísli lærði hjá Reykdal í Kópavogi
og fór með troll frá Meitlinum og
vann þau þar. Reykdal flutti síðan
niður á Granda. „Ég setti upp mitt
fyrsta troll þegar ég vann hjá Meitl-
inum, það var humartroll og var
kallað Skjóna sökum þess að það var
svo skrautlegt á litinn. Ég bað svo
Jón Ólafsson, sem þá var skipstjóri
hjá Meitlinum, að prufukeyra trollið.
Jón kom einum degi of snemma úr
róðrinum og var ég þá skíthræddur
um að eitthvað væri að. Ég spurði
Jón hvort ég ætti ekki að taka trollið
og hvað væri að því. Hann sagði:
„Nei, takk, góði minn, trollið færðu
aldrei. Þetta er besta humartroll
sem ég hef fengið.“ Eftir það varð ég
að breyta öllum trollum á flota
Meitilsins.“
Gísli hannaði og smíðaði sjálfur
fyrsta fellingarstólinn sem var not-
aður hér á landi svo vitað sé. Áður
höfðu menn staðið við að fella netin.
Stóllinn er geymdur á Byggðasafni
Þorlákshafnar. Í dag eru komnar
vélar sem notaðar eru við fellinguna
og gera þær alla vinnu mikið
þægilegri.
Fékk enga kveðjutónleika
Lætur af störf-
um eftir 60 ár í
netagerðinni
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Starfslok Gísli Guðmundsson netagerðarmaður og kona hans, Helga Kristinsdóttir, á milli hjónanna Hannesar
Sigurðssonar og Þórhildar Ólafsdóttur, eigenda Hafnarness, en þau héldu Gísla veislu á sjómannadaginn.
Þegar halla fór undan fæti hjá
Meitlinum og erfiðlega gekk að
fá útborgað stofnaði Gísli sitt
eigið netaverkstæði og vann
sjálfstætt í nokkur ár, var með
verkefni víða að, bæði frá Vest-
mannaeyjum og Austfjörðum.
Það var svo 1980 að Guð-
mundur Friðriksson skipstjóri og
eigandi Hafnarness kom til hans
og vildi fá hann í vinnu til sín.
„Ég spurði hvað hann vildi
borga og það var þvílíkt gylliboð
að ég gat ekki hafnað því.
Þegar Hannes Sigurðsson og
Þórhildur Ólafsdóttir keyptu
Hafnarnes buðu þau mér að
halda áfram hjá sér og það er
nú meðal annars ástæða þess
hvað ég hef haldið lengi áfram í
þessu. Þetta eru þvílík öndveg-
ishjón að það hefur tekið mig
langan tíma að hætta,“ segir
Gísli.
Tók langan tíma að hætta
HEFUR UNNIÐ HJÁ ÖNDVEGISHJÓNUM SÍÐUSTU ÁRIN