Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 4

Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 4
Undirbúningur fyrir tökur á er- lendri kvikmynd stendur nú yfir í gígnum Hrossaborg í Mývatns- sveit. Að sögn Þórs Kjartanssonar, tökustaðastjóra íslenska fyrirtæk- isins True North sem annast und- irbúninginn, munu margir íslensk- ir kvikmyndagerðarmenn koma að verkefninu en hátt í 150 manns koma til með að starfa við tökur á myndinni þegar mest lætur. Tök- urnar hefjast síðar í sumar og fara fram víðar um landið. Ekki er gefið upp hvaða kvikmynd er um að ræða. Minniháttar tilfærslur hafa ver- ið gerðar í gígnum við undirbún- ing á sviðsmynd fyrir kvikmynd- ina en að sögn Þórs hafa allir viðeigandi aðilar verið upplýstir um það og allt rask verði lagað aftur. „Þetta verður örugglega fróðleg Íslandskynning síðar meir eins og Dettifoss í Prómeþeifi [kvikmynd Ridleys Scotts sem tekin var upp að hluta til hér á landi] var í fyrra. Þetta er bara gríðarlega spennandi,“ segir Þór. kjartan@mbl.is Taka upp erlenda kvik- mynd í Mývatnssveit  Hefja tökur í Hrossaborg í sumar Ljósmynd/Birkir Fanndal Hrossaborg Búðir við gíginn Hrossaborg í Mývatnssveit þar sem verið er að undirbúa sviðsmynd fyrir erlenda kvikmynd þessa dagana. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fulltrúar í umhverfis- og samgöngu- nefnd hafa lagt fram breytingar- tillögur í mörgum liðum við þings- ályktunartillögur um samgöngu- áætlanir 2011-2014 og 2011-2022 sem nú eru í meðförum Alþingis. Meðal verkefna sem meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á er að bæta tengivegi landsins og að samgöngu- mannvirkjum verði haldið við. Hann telur ljóst að viðhald núverandi vegakerfis hafi liðið fyrir of ríka áherslu á nýframkvæmdir. Tengivegir malbikaðir Meirihlutinn leggur til að 900 milljónum króna á ári verði varið til að leggja bundið slitlag á tengivegi vítt og breitt um landið í stað 500 milljóna eins og lagt er til í sam- gönguáætlun. Margir vegir í dreif- býli, utan hringvegar, flokkast sem tengivegir þ. á m. vegir innan þjóð- garða og vegir að fjölsóttum ferða- mannastöðum. Til að gefa hugmynd um hve tengivegir eru stór hluti vegakerfisins þá voru þeir 2.920 km þann 1. desember 2010 en stofnvegir 4.430 km og héraðsvegir 3.104 km. Meirihlutinn telur einboðið að litið sé til atvinnusköpunar við forgangs- röðun samgönguframkvæmda. Þess vegna leggur hann til að mann- aflsfrekum verkefnum verði flýtt. Þar á meðal er smíði brúa sem skap- ar meiri atvinnu en gerð flestra ann- arra samgöngumannvirkja. Lögð er m.a. til fjárveiting upp á 100 millj- ónir króna á ári til breikkunar ein- breiðra brúa og eins að fram- kvæmdum við gerð nýrrar brúar á Ölfusá verði flýtt um 3-4 ár. Í sam- gönguáætlun er gert ráð fyrir fram- kvæmdinni á 3. tímabili, það er 2019- 2022. Ekki er rúm til að gera grein fyrir öllum breytingartillögunum en hvað varðar vegaframkvæmdir á höfuð- borgarsvæðinu leggur meirihlutinn m.a. til að gerð Arnarnesvegar frá Rjúpnaheiði að Breiðholtsbraut verði flýtt um a.m.k. eitt ár. Í áætluninni er lagt til að kaflinn frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi verði á 1. tímabili (2011-2014) og 2. tímabili (2015-2018). Kaflinn frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut verði á 3. tímabili og síðar eða eftir árið 2019. Einnig er lagt til að gerð 2+1 vegar frá Þingvallavegi að mynni Kollafjarðar verði flýtt um 2-3 ár en hún er áætluð eftir árið 2019 í þings- ályktunartillögunni. Vill ganga lengra Minnihluti nefndarinnar hefur einnig lagt fram nefndarálit með breytingartillögum. Þær eru m.a. að gengið verði lengra í því að flýta brýnum samgöngubótum og við- haldi. Aukið fjármagn verði sett í tengivegi þegar á 1. og 2. tímabili samgönguáætlunar. Eins að fram- kvæmdum við breikkun einbreiðra brúa verði flýtt enn frekar, enda sé þar um að ræða mikilvæga örygg- isráðstöfun. Þá er lagt til að framkvæmdum við Hornafjarðarfljót verði flýtt og að þær hefjist árið 2014. Þar er gert ráð fyrir að breyta legu hringveg- arins til samræmis við aðalskipulag Hornafjarðar sem mun stytta hring- veginn um 11 km. Betri tengivegir og aukið viðhald  Fulltrúar í umhverfis- og samgöngunefnd hafa lagt fram tvö nefndarálit um samgönguáætlanir  Í þeim eru margar breytingartillögur um flýtingu ýmissa samgönguframkvæmda Morgunblaðið/RAX Hornafjarðarfljót Framkvæmdir við hringveginn við Hornafjarðarfljót eru með þeim stærstu á samgönguáætlun 2011-2012. Lagt er til að flýta þeim. Stefnumarkandi samgöngu- áætlun áranna 2011-2022 og verkefnaáætlun áranna 2011- 2014 í samgöngum voru kynnt- ar 14. desember 2011. Þá voru kynntar nýjar áherslur um að líta á sam- göngur á landi, í lofti og á sjó sem eina heild. Einnig aukin áhersla á almennings- samgöngur jafnt milli lands- hluta og innan þeirra. Þá á að leggja áherslu á samgöngu- verkefni á landsvæðum sem nú búa við lakastar samgöngur. Sett eru markmið um greiðar samgöngur sem m.a. felast í því að ferðatími til næsta atvinnu- og þjónustukjarna verði styttur. Þá á að greiða samgöngur þar sem þær eru nú ógreiðastar, t.d. á sunnanverðum Vestfjörðum. Nýjar áherslur VERKEFNAÁÆTLUN OG STEFNUMÖRKUN Atli Vigfússon Þingeyjarsýsla | Foksandur er mik- ið vandamál í Laxá í Aðaldal enda hefur nokkuð verið rætt um áhrif sandsins á búsvæði fiska og þau talin mjög neikvæð. Hins vegar hefur sandurinn líka mjög mikil áhrif á bú- svæði fugla sem lifa við ána en margir hólmar hafa hækkað mikið vegna sandfoks og síðan byrjað að brotna í vatnavöxtum og vindum. Neðst í Laxá hafa sex varphólmar horfið með öllu á síðustu áratugum og þrír til viðbótar eru í mikilli hættu. Kemur þar til mikið sandfok í suð- vestanáttum sem oft eru hvassar. Gróðurþekjan vestan Laxár neðst í Aðaldal er rýr og þar er mikil sandur á ferðinni þó svo að þar sé melgresi sem heldur aðeins í við sandinn, en þar er við ramman reip að draga. Landgræðsla ríkisins hefur sáð í landið og borið á það en hefur nú orð- ið að minnka áburðarskammt sinn vegna minni fjárhagsgetu. Þetta land er mjög víðfeðmt og þyrfti mun meiri aðhlynningu en nú er. Bændur og fuglaáhugamenn sem áhuga hafa á málinu hafa velt því fyrir sér hvað sé til ráða en nokkuð erfitt er að finna út hvað sé best að gera en sennilega eru allar björgunaraðgerðir hólmanna mjög kostnaðarsamar. Ljóst er að leita þarf til sérfræð- inga í málinu og hugað er nú að því að greina vandann og bjarga hólmunum frá þeirri eyðingu sem nú herjar á þá. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Varphólmi Þessi hólmi man sinn fífil fegri enda var hann mjög stór og þar var mikið af hreiðrum andfugla. Varphólmar hverfa og búsvæði fugla rýrna Ljúffengar uppskriftir með matreiðslurjóma er að finna á www.gottimatinn.is Rjómi með tappa endist lengur! ATH! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.