Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þarna verða byggð einbýlishús,
tvíbýlishús og þríbýlishús, ekkert
hærra en þrjár hæðir,“ segir Ás-
gerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri
Seltjarnarnesbæjar.
Til stendur að byggja nýtt íbúð-
arhverfi á Bygggarðasvæðinu á Sel-
tjarnarnesi. Lóðin er í eigu Land-
eyjar en nú stendur þar iðnaðar-
hverfi sem mun víkja fyrir íbúðar-
húsnæði. Ásgerður segist ekki hafa
heyrt annað en íbúar Seltjarnar-
ness séu almennt ánægðir með
breytingarnar og segir mikla eft-
irspurn eftir húsnæði á viðkomandi
svæði.
„Það hefur verið stefnt að því í
nokkur ár að byggja íbúðarbyggð á
þessu svæði. Ungt fólk sækist mik-
ið eftir því að flytja á Nesið vegna
þeirrar þjónustu sem þar býðst og
má þar nefna skólakerfið og ná-
lægðina við íþróttahreyfinguna. Svo
er það eldra fólk sem meðal annars
vill minnka við sig,“ segir Ásgerður.
Norðurpóllinn verður rifinn
Ingi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Landeyjar, segir
endanlega mynd ekki komna á mál-
ið. Leikhúsið og menningar-
miðstöðin Norðurpóllinn er til húsa
í iðnaðarhverfinu og mun það hús-
næði víkja ásamt öðru að sögn
Inga.
„Það skiptir ekki máli hvaða hús
er rifið, það sér alltaf einhver eftir
því. Það verður bara að hugsa um
heildarhagsmuni hverfisins.“ Ingi
segir að enginn sé þó farinn að
hugsa svo langt að ákveða hvenær
framkvæmdir hefjist.
„Það er langur vegur í að þetta
verði að veruleika, það er í raun
bara verið að fara í gegnum skipu-
lagsmálin núna,“ segir Ingi að lok-
um.
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Seltjarnarnes Hér má sjá iðnaðarhverfið á Seltjarnarnesi sem mun víkja fyrir íbúðarbyggð samkvæmt áætlunum.
Nýtt íbúðarhverfi
á Seltjarnarnesinu
Leikhúsið og listamiðstöðin Norðurpóllinn mun víkja
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Frásögn Marcins Tomasz Lechs af
skipulagningu úraránsins sem fram-
ið var hjá Michelsen úrsmiðum 17.
október sl. hefur tekið breytingum
frá því hann gaf skýrslu fyrir dómi í
febrúar. Lech, sem dæmdur var í
fimm ára fangelsi, kom sem vitni fyr-
ir dóminn í gær þegar aðalmeðferð
fór fram í máli gegn tveimur mönn-
um til viðbótar sem játað hafa aðild
að ráninu.
Í febrúar sagðist Lech ekki hafa
komið að skipulagningu ránsins á
nokkurn hátt en hinir þrír hefðu
ákveðið allt saman. Fyrir dómi í gær
bað hann þá Grzegorz Marcin Nowak
og Pawel Jerzy Podburaczynski af-
sökunar á þeim framburði og sagðist
sjálfur hafa verið milliliður á milli
ónefnds höfuðpaurs í Póllandi og
hinna þriggja.
Höfuðpaurinn vildi Lech hins veg-
ar ekki nefna og sagðist óttast hefnd-
araðgerðir sem bitna myndu á fjöl-
skyldu hans. Hann staðfesti þó
aðspurður að umræddur maður
tengdist pólskum glæpasamtökum.
Upplýst var að Lech hefði fengið
þá Nowak og Podburaczynski til far-
arinnar. Fjórði maðurinn, sem enn
gengur laus, Pawel Artur Tyminski,
hefði komið inn í skipulagninguna á
lokastigum að beiðni höfuðpaursins,
sem vildi hafa sinn mann í hópnum.
Saksóknari í málinu fór fram á að
Nowak og Podburaczynski yrðu að
minnsta kosti dæmdir til sömu refs-
ingar og Lech hlaut en tiltók nokkrar
ástæður sem gætu orðið til refsi-
aukningar, þar á meðal sakaferil
mannanna í Póllandi.
Við flutning málsins sagði sak-
sóknari að allir hefðu mennirnir tekið
þátt í ráninu af fúsum og frjálsum
vilja, um gríðarlega fjármuni hefði
verið að ræða, mennirnir hefðu verið
vopnaði eftirlíkingum af byssum og
hefðu hótanir þeirra í garð starfs-
fólks Michelsens haft alvarlegar af-
leiðingar sem ekki sæi enn fyrir end-
ann á.
Innbrot sem varð að ráni
Verjendur mannanna fóru hins
vegar fram á vægustu refsingu og
báru við að þeir hefðu verið fengnir
til Íslands til að brjótast inn í versl-
unina í skjóli nætur. Þegar það hefði
ekki gengið eftir hefðu þeir verið
þvingaðir til að fremja innbrotið.
Óbeinar hótanir Lechs um að illt biði
þeirra í Póllandi ef þeir kæmu ekki
með úrin hefðu orðið til þess að þeir
létu tilleiðast. Þeir hefðu því framið
ránið af ótta við hvað biði þeirra ann-
ars. Verjandi Nowaks sagði um að
ræða anga af skipulagðri glæpastarf-
semi og málið væri nokkuð líkt fíkni-
efnamáli þar sem Nowak og Podbu-
raczynski væru burðardýr.
Gætu ekki fjármagnað
Nowak og Podburaczynski játuðu
aðild að ráninu en höfnuðu því alfarið
að hafa komið að skipulagningu eða
fjármögnun. Þeir hefðu ákveðið að
fara í ferðina vegna bágrar fjárhags-
stöðu og hefðu því tæplega sjálfir
getað fjármagnað hana. „Ákæruvald-
inu hefur ekki tekist að sýna fram á
annað en að hann hafi verið peð í
verknaðinum og ber að miða refsingu
hans við það,“ sagði verjandi Podbu-
raczynskis.
Saksóknari hafnaði rökum verj-
enda í seinni ræðu, sagði mennina
hafa verið með af fúsum og frjálsum
vilja og benti á að Lech hefði verið
sakfelldur fyrir tiltölulega lítinn þátt
í málinu, en hann fór ekki með í Mich-
elsen. Hann hefði hlotið fimm ára
dóm sem ákæruvaldið teldi eðlilegt.
Sögðu vopnað rán framið af ótta
Saksóknari krefst þess að tveir úraræningjar verði dæmdir í að minnsta kosti fimm ára fangelsi
Segjast sjálfir hafa verið fengnir til að brjótast inn en á endanum þvingaðir til að fremja vopnað rán
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Vel klæddir Lögmennirnir Sigmundur Hannesson og Inga Lillý Brynjólfs-
dóttir ásamt Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski.
„Við vissum í rauninni af því allan tímann að til stæði að rífa húsnæðið,“
segir Búi Bjarmar Aðalsteinsson, stjórnarformaður Norðurpólsins.
„Hugmyndin er að Norðurpóllinn sé ekki bundinn við neitt húsnæði.
Norðurpóllinn snýst um það að bjóða upp á leikhús á sem lægstu verði
fyrir sem flesta. Við höfum verið heimili fyrir heimilislausa leikhópa sem
hafa ekki fengið inn hjá stóru leikhúsunum,“ bætir hann við.
Búi Bjarmar segir að það muni ekki breytast og að Norðurpóllinn muni
finna sér nýjan samastað.
Norðurpóllinn flytur annað
ÁÆTLUN UM AÐ RÍFA SVÆÐIÐ VAR ÁKVEÐIN FYRIR LÖNGU
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mán. - fös. 11-18:30 lau. 10-18, sun. 12-18
einfaldlega betri kostur
útsala
1. júní - 5. júlí
SPARAÐU
20-70%
AF YFIR 1500
VÖRULIÐUM
SPARAÐU
30%
AF SOHO
BORÐLAMPA
SPARAÐU
30%
AF LIFT
GRJÓNAPÚÐA
LIFT
Grjónapúði. Ø60, H40 cm. Ým
sir litir.
Verð 12.900,- NÚ 8.900,-
SOHO
Borðlampi. H51 cm.
Verð 9.995,- NÚ 6.995,-
NUD
3m leiðsla m/ljósatæði. Ýmsir
litir.
Verð 7.995,- NÚ 5.995,- Pera seld
sér.
Verðin gilda til 5. júlí
www.ILVA.is
Bjóðum uppá
vaxtalaust
lán til 6 mánaða sendum um allt land
MATI Stóll,
endurunnið leður.
Verð 16.900,- NÚ 9.900,-
JUPITER Stóll, formaður
krossviður og krómfætur.
Verð 6.900,- NÚ 4.900,-
SPARAÐU
40%
AF MATI
SPARAÐU
25%
AF NUD
JUPITER
4.900,-
SPARAÐU 2.000,-
NÝTT KORTATÍMABIL
SKOÐAÐU
NÝJAN
BÆKLING Á
www.ILVA.is
KOMDU
OG GERÐU
FRÁBÆR
KAUP
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hefur orðið töluverð lækkun á
þorski síðan snemma á árinu. Ég á
ekki von á því að verðið lækki frekar.
Þorskverð ætti frekar að hækka en
hitt. Verðið er orðið það lágt í saman-
burði við til dæmis karfa og ufsa og
annan fisk sem kemur frá Asíu,“ seg-
ir Valdimar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Ocean Fish í Wagen-
ingen í Hollandi, um útlitið á
fiskmörkuðum í Evrópu.
„Það er hins vegar ekki útilokað
að verð á karfa lækki enda hefur það
verið hátt. Sama má segja um ufsa.
Framboðið er þó ekki mikið. Það er
því óvíst hvað verður. Ég tek fram að
ég á þá við frosinn fisk en t.d. ekki
saltfisk. Þar þekki ég ekki stöðuna.
Áhrif kreppunnar í Evrópu birtast
fyrst og fremst í því að trygginga-
félög eru hætt að leggja fram trygg-
ingar fyrir reikningum á Grikk-
landi.“ Staðan á Spáni og Ítalíu hafi
einnig áhrif á tryggingafélögin.
Friðleifur Friðleifsson, deildar-
stjóri frosinna afurða hjá Iceland
Seafood, segir að þrátt fyrir óróann í
Evrópu sé útlitið alls ekki slæmt.
„Menn hafa verið að horfa á nýja
möguleika ef staðan verður áfram
erfið í Suður-Evrópu. Umræða um
að fiskverð kunni að lækka vegna
evrukreppunnar á rétt á sér en ég
held að það sé óþarft að hafa meiri-
háttar áhyggjur,“ segir Friðleifur
sem telur að vel muni ganga að finna
markaði fyrir þá aukningu í þorski
sem fyrirhuguð sé með haustinu.
Verð á þorski
kann að hækka
Óvissa um áhrif evrukreppunnar
Friðleifur
Friðleifsson
Valdimar
Kristjánsson