Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Stjórnvöld neita því að unnið séað aðlögun Íslands að ESB þrátt fyrir að sú vinna standi yfir. Dæmi um aðlögunina er lagasetn- ing, en ráð- herrar rík- isstjórnarinnar hafa lagt mikla áherslu á að koma í gegn breytingum á lögum sem sagð- ar eru vegna EES en skyndi- legur ákafi er vitaskuld vegna aðlögunarviðræðnanna við ESB.    Dæmi eru líka um að ráðherrarvilji lauma aðlöguninni í gegn í almennum lögum sem við fyrstu sýn virðast alls ótengd að- löguninni, en eru það ekki ef bet- ur er að gáð.    Gagnrýni hefur komið fram áþað að í frumvarpi til laga um velferð dýra sem Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra með meiru, lagði fram er ákvæði sem heimilar geldingar ungra grísa án deyfingar eða svæfingar.    Þetta þykir gagnrýnendum ekkinema hæfilega mannúðlegt og eiga illa heima í frumvarpi til laga „um velferð dýra“.    En nú er skýringin á þessukomin fram. Fulltrúi ráðu- neytisins upplýsti í útvarpsviðtali í gær að ákvæðin um geldingu grís- anna væri verið að færa „til sam- ræmis við löggjöf Evrópusam- bandsins“.    Nái Steingrímur frumvarpinu ígegnum þingið verða ís- lenskir grísir eftir það geltir með fullum sársauka í nafni aðlögunar að ESB. En þar sem aðlögunin er ímyndun ein, hlýtur sársaukinn að verða það einnig. Grísir geltir að hætti ESB STAKSTEINAR Veður víða um heim 13.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 10 léttskýjað Akureyri 11 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 10 skýjað Vestmannaeyjar 11 heiðskírt Nuuk 6 skýjað Þórshöfn 9 heiðskírt Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 20 léttskýjað Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 12 skýjað Brussel 12 skýjað Dublin 13 skýjað Glasgow 16 heiðskírt London 17 heiðskírt París 17 léttskýjað Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 15 skýjað Berlín 18 skýjað Vín 15 skúrir Moskva 17 skúrir Algarve 22 heiðskírt Madríd 27 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 17 skýjað Montreal 17 skýjað New York 20 alskýjað Chicago 20 skýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:58 23:59 ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34 SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17 DJÚPIVOGUR 2:13 23:43 „Við höfðum lengi verið spurðir að því hvers vegna við byðum ekki upp á hvítan líkbíl,“ segir Rúnar Geirmundsson, en hann er útfararstjóri hjá Útfararþjónustunni ehf. Útfararþjónustan ákvað á dögunum að fjárfesta í hvítum líkbíl, en hvítur líkbíll hefur ekki sést á götunum síðan Líkkistuvinnustofa Tryggva Árna- sonar bauð upp á líkbíl framleiddan árið 1932. „Ég fylgdist með bílum á netinu og fann svo einn sem var ódýr og vel með farinn,“ segir Rún- ar, en ekki er það óþekkt úti í heimi að sjá hvítan líkbíl. Margir Íslendingar tengja frekar svartan lit við sorg og finnst því sumum skrítið að sjá hvítan lit á líkbíl. „Hvítur er litur hreinleikans og fram að 1930 voru allar kistur svartar, nú eru þær flestar hvítar,“ segir Rúnar, en hann á von á því að sumir eigi eftir að reka upp stór augu þegar þeir sjá bíl- inn keyrandi um göturnar. Eins og fyrr kom fram var Rúnar oft spurður að því hvers vegna hann byði ekki upp á fleiri liti á líkbílum. ,,Þetta er bara spurning um að bjóða við- skiptavinum okkar upp á fjölbreyttara val,“ segir Rúnar. Þetta verður ekki eini bíllinn sem Útfararþjón- ustan býður upp á, en þeir eru einnig með tvo svarta bíla af gerðinni Cadillac og Lincoln. pfe@mbl.is Hefur ekki sést á götunum í áratugi Hreinleiki Boðið verður upp á hvítan líkbíl. Frá og með 14. júní 2012 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps og er það gert í samræmi við reglugerð um strand- veiðar fiskveiðiárið 2011/2012. Að sögn Jóhanns Guðmunds- sonar, skrifstofustjóra í sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneyt- inu, var heimilt að veiða 8.600 tonn á öllum svæðum þetta árið, mest- megnis þorsk og ufsa. Það sé t.d. um 2.600 tonnum meira en 2010. „Mér sýnist sem tímabilinu á svæði A sé að ljúka á svipuðum tíma og síðustu ár,“ segir Jóhann. Samkvæmt reglum um strand- veiðar geta menn hafið veiðar hve- nær sem er mánudaginn eftir sjó- mannadag. Strandveiðar hafa gengið vel þetta árið og aflabrögð verið með ágætum. Strandveiðar bannaðar á svæði A Morgunblaðið/RAX Góð aflabrögð Strandveiðar hafa gengið ágætlega þetta árið. Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | sími 568 2870 | www.friendtex.is Kíkið við á meðan við höfum úrvalið ÚTSALAN ER HAFIN Á VOR- OG SUMARVÖRUM FRIENDTEX 2012 OPNUNARTÍMI mánudag - föstudag 11:00-18:00 LOKAÐ á laugardögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.