Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 11
Vafningur Renata Valcik hnýtir vafning úr bláu reipi fyrir Ástarsögu sína,
en hún segist vera undir áhrifum frá prjónandi íslenskum konum.
Þegar blaðamann bar að garði
stóð myndhöggvarinn Jón Adolf
Steinólfsson næst Garðbrautinni og
skóp andlit manns sem hann sagði
búa í steininum, en hann var sóttur til
Helguvíkur eins og allir hinir.
„Ég tók strax eftir nefinu og
ákvað að vinna út frá því, brjóta burt
dótið í kring, eins og Michelangelo
orðaði það,“ sagði Jón Adolf.
Listamaðurinn Amanullah So-
obhany, Manou, frá Máritíus hefur
höggvið ensku orðin ME og WE í tvo
steina við innkomuna á tjaldstæðið.
„ÉG og VIÐ eru til í öllum sam-
félögum. Ég sem einstaklingur er
hluti af okkur í samfélaginu, hvort
sem það er samfélagið hér á tjald-
stæðinu eða samfélag þjóðar. Orðin
ME og WE eru líka spegilmyndir og
falla saman þegar steinarnir eru sett-
ir saman. Ég er líka að skilja eftir
hluta af mér í þessu listaverki í sam-
félaginu hér í Garði,“ sagði Manou
um sitt listaverk.
Í nágrenninu hafa Mireya Sam-
per og Víðir Árnason komið fyrir
sínu listaverki, Næturdögg, sem Mir-
eya útskýrði á ljóðrænan hátt sem
hvíld tungls að næturlagi áður en
dagur rís og döggin bráir enn á.
Áhrif frá prjónandi konum
Listakonan Renata Valcik frá
Litháen var með ástarsögu í huga
þegar hún spyrti saman tvo steina og
hyggst vefja utan um þá vafningi
gerðum úr reipum. „Þetta er stefnu-
mótastaður tjaldstæðisins,“ sagði
Renata kímin. Verkið er innblásið af
íslenskri náttúru og menningu þjóð-
arinnar. „Hér er allt krökkt af stein-
um og reipin eru notuð við fiskveiðar.
Blái litur reipisins er litur sjávarins
og handverk mitt með þeim efnivið
minnir á hversu duglegar íslenskar
konur eru að prjóna.“ Steinsnar frá
hafði indverska listakonan Megha
Joshi búið til sólarmusteri til þess að
dýrka sólina. „Þið hafið sólina allan
sólarhringinn á þessum tíma árs og
þið eigið að dýrka hana,“ sagði
Megha. Hún tók þó skýrt fram að hér
væri ekki um trúarbrögð að ræða,
heldur væri meiningin að sýna sólinni
þakklæti.
Sól og skuggar breyta
Innar í grjótgarðinum var Vyt-
enis Lingys frá Litháen að störfum
en hann er þekktur teiknari í heima-
landi sínu. Hann hafði hins vegar
aldrei unnið með grjót en tók þessari
nýju reynslu fagnandi og naut leið-
sagnar Viðis Árnasonar fyrstu skref-
in. Hann segir verkin sín teikningar
þótt þau séu unnin í grjót í stað papp-
írs. „Sól og skuggar breyta teikning-
unum svo þær eru aldrei eins. Þetta
samspil gerir það líka að verkum að
það sér enginn það sama úr mynd-
unum og sama fólkið sér jafnvel nýj-
ar myndir í hvert sinn,“ sagði Vyten-
is. Það sem í fyrstu sýndist þrjú fjöll
reynist kannski liggjandi kona. Og
hjarta sem konuandlit myndaði verð-
ur kannski fugl eða jafnvel hestur.
„Myndirnar sýna hvernig ég sé lífið á
Íslandi og Ísland í heiminum.“
Hvalaveisla og ánægt fólk
Hið einstaka átti hug lista-
mannsins Saulius Valius sem einnig
er frá Litháen. Hann heillaðist af völ-
undarhúsi sem kom upp við leit á ver-
aldarvefnum að einhverju einstöku
frá Íslandi. Völundarhúsið var sagt
hafa fundist í jarðvegi á ókunnum
stað við sjávarsíðuna á 19. öld og
varðveitt í teikningu á safni í Dan-
mörku. Mynd af teikningunni er hins
vegar að finna í bók um völundarhús
víðsvegar um heiminn, að sögn Sau-
lius, sem kom til landsins með ljósrit
úr bókinni. Það heyrist á máli hans
að honum finnst Íslendingar ekki síð-
ur einstakir fyrir það hugrekki sem
þeir sýndu í sjálfstæðisbaráttu
Litháens á sínum tíma. Saulius sagði
það ekki síður krefjast hugrekkis að
fara inn í völundarhús en það væri
lærdómsríkt. „Þegar þér finnst þú
vera að nálgast miðjuna, þá fjarlæg-
istu aftur og þarft að finna nýja leið.“
Að loknu góðu dagsverki héldu
ánægðir listamenn á samastaðinn í
samkomuhúsinu þar sem beið þeirra
hvalaveisla að hætti Úlfars Eysteins-
sonar, matreiðslumanns á Þremur
frökkum. Hann er einn fjölmargra
sem koma að listaveislunni með
vinnuframlagi og gjöfum.
Nánar: www. freshwinds.com og
á Facebook.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Toyota Aygo
Árgerð 2006, bensín
Ekinn 60.000 km, beinsk.
Honda Civic 1,8i SE
Árgerð 2009, bensín
Ekinn 61.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
1.090.000,-
Mitsubishi Colt
Rally Art, Árg. 2010, bensín
Ekinn 20.000 km, beinsk.
VW Golf Trendline 1,6
Árgerð 2006, bensín
Ekinn 113.000 km, beinsk.
Ásett verð
2.290.000,-
Ásett verð
1.490.000,-
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
VW Polo Basic 1,2
Árgerð 2005, bensín
Ekinn 63.000 km, beinskiptur
Ásett verð
870.000,-
GOTT ÚRVAL
AF NÝLEGUM
GÆÐABÍLUM
Ásett verð
2.590.000,-
Næstkomandi sunnudag, 17. júní,
verður opnuð sumarsýning Slátur-
hússins á Egilsstöðum. Þetta er sam-
sýning sem ber yfirskriftina Feðgar,
Mæðgin. Þar leiða saman list sína
feðgarnir Þór Vigfússon og Helgi
Þórsson og mæðginin Ólöf Birna
Blöndal og Sveinn Snorri Sveinsson.
Á sýningunni blandast saman mynd-
list, ljóðlist í formi innsetningar, verk
sem eru á mörkum þess að vera mál-
verk og skúlptúrar úr margskonar
efniviði og fundnum hlutum. Sýning-
in verður opnuð formlega á sunnudag
kl. 17 en hún stendur yfir í allt sumar.
Nánar um sýninguna á vefslóðinni
www.slaturhusid.is og á facebook.
Sumarsýning í Sláturhúsinu
List Verk eftir Helga Þórsson.
Feðgar, Mæðgin
á Egilsstöðum
Hugmyndina að tjaldstæðinu
átti Garðmaðurinn Jens Sævar
Guðbergsson sem lést árið
2010 en Ásmundur Friðriksson,
fyrrverandi bæjarstjóri, kom
henni áleiðis. Tjaldstæðið á að
vera sjálfstætt listaverk, bæði
hleðslan og verkin sem eru
unnin í hana og á.
Staðsetningin í nálægð við
íþróttamiðstöðina og grunn-
skóla bæjarins auðveldar gest-
um að nýta aðstöðuna sem þar
er í boði, m.a. sundlaug og
leiksvæði, og hleypa lífi í bæ-
inn yfir sumarið.
Væri Jens Sævar á lífi gæti
hann horft yfir listaverkatjald-
stæðið frá heimili sínu.
Sá hluti sem nú er í vinnslu
er aðeins brot af fyrirhuguðu
tjaldstæði eins og Stanislas
Bohic teiknaði það. Stefnt er
að frekari framkvæmdum í
næstu listaveislu eftir tvö ár
og koll af kolli á tveggja ára
fresti.
Ferskir
vindar
SVÆÐIÐ VEX MEÐ HVERJU ÁRI
Lífið á Íslandi og Ísland í heiminum Vytenis Lingys túlkar hvort tveggja í
teikningum sínum á steina, en sólarljósið og skuggarnir breyta þeim.
Í tilefni aldarafmælis skátahreyfing-
arinnar á Íslandi munu Skátarnir og
Landsvirkjun standa fyrir afmælis-
sýningu í Ljósafossvirkjun.
Sýningin sem heitir Undraland –
minningar frá Úlfljótsvatni, verður
opnuð næsta laugardag kl. 14 í Ljósa-
fosstöð. Þar verður hægt að kíkja inn
í ævintýraheim skáta við Úlfljótsvatn.
Minningar frá Úlfljótsvatni
Morgunblaðið/Þorkell
Landsmót Skátar við Úlfljótsvatn.
Undraland