Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég harðneita því að hreindýraveiði-
menn hafi valdið stórkostlegum
landspjöllum eins og haldið er fram í
Morgunblaðinu,“ sagði Þórhallur
Borgarsson, formaður Félags leið-
sögumanna með hreindýraveiðum
(FLH). Í Morgunblaðinu í gær var
talað um svöðusár eftir akstur jeppa
og sexhjól veiðimanna o.fl. á svæðinu
norðan Vatnajökuls. Haft var eftir
stjórnarmanni í Ferðafélagi Fljóts-
dalshéraðs að sveitarstjórn og undir-
nefndir hennar hlustuðu meira á
hreindýraveiðimenn en aðra.
„Ég fer fram á að þeir bendi okkur
á slóð sem veiðimenn hafa búið til,“
sagði Þórhallur. Hann sagði að mynd
af útlendum trukki í flagi sem birtist
með fréttinni hefði verið tekin á línu-
slóða sem liggur frá Fljótsdal yfir í
Stuðlafoss á Jökuldal.
„Þessi slóði er eftir RARIK. Þetta
er ófært, bara forarvilpa,“ sagði Þór-
hallur. „Við ætlum að nota slóðana
sem við notum aftur á næsta ári og
árið þar eftir. Það er okkar hagur að
þeir séu sem bestir.“
Þórhallur hafnaði því einnig að
sexhjól, sem eru notuð til að sækja
bráð, hefðu valdið landspjöllum.
Hann benti á að sexhjól vægju rúm
400 kg og kæmu því um 70 kg á hvert
hjól. Miðað við flöt dekkjanna ylli
það minna álagi en gangandi maður
að því tilskildu að ekið væri skyn-
samlega. Hann sagði að hreindýra-
veiðar væru arðsöm ferðaþjónusta
sem skilaði um 180 milljónum kr. inn
á svæðið á ári. Þórhallur vill að meira
fé sé varið til viðhalds slóða og merk-
inga.
„Ég keyri um 3.000 km á ári á
þessum slóðum og nota 300-400 lítra
af olíu til þess. Ríkið fær af því tekjur
sem eiga að fara í vegabætur en þær
eru klárlega ekki að skila sér í þessa
slóða,“ sagði Þórhallur. Hann sagði
skort á merkingum einnig til mikils
baga. Ekki væri óalgengt að útlend-
ingar á þungum torfærubílum lentu í
ógöngum utan slóða með tilheyrandi
landskemmdum. Þórhallur taldi
koma til greina að flokka slóða í al-
menna slóða og sérstaka smala- og
veiðislóða með takmarkaðri umferð.
Aðalfundur FLH 2012 samþykkti
ályktun um að sveitarfélög á veiði-
svæðum hreindýra „hafi forgöngu
um að skrá og skilgreina slóða með
það að markmiði að tryggja eðlilegt
og löglegt aðgengi leiðsögumanna og
hreindýraveiðimanna að veiðislóð“.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, hafnar því að
sveitarstjórn og undirnefndir hlusti
meira á hreindýraveiðimenn en aðra
hópa þegar kemur að vega- og slóða-
málum í sveitarfélaginu.
Hygla ekki einum hópi
„Ég veit að umhverfis- og héraðs-
nefnd sem hefur með þessi mál að
gera af hálfu sveitarfélagsins er alls
ekki að horfa á þetta með einhverj-
um sérstökum gleraugum,“ sagði
Björn. Hann sagðist ekki hafa orðið
var við að nefndin hyglaði einhverj-
um hópum umfram aðra.
Í aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs
eru merktir viðurkenndir slóðar og
er lögð áhersla á að halda þeim við,
að sögn Björns. Sveitarfélagið fær
fjármuni af vegafé til svonefndra
styrkvega og þeir peningar fara m.a.
til viðhalds á þessum vegum. Björn
sagði fjárhæðina misháa frá ári til
árs og oft væri komið fram á sumar
þegar ljóst yrði hvað mikið fé yrði til
ráðstöfunar í þennan málaflokk.
Björn benti á að utanvegaakstur
væri bannaður með lögum og það
þyrfti að taka á slíku með viðeigandi
hætti.
Hafnar ásökunum
um landspjöll
FLH vill að sveitarfélögin skrái og skilgreini vegslóðana
Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson
Línuvegur Framkvæmdum hefur fylgt mikið rask eins og mátti sjá við Kröflulínu á Fljótsdalsheiði.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
„Ég vil bara að ferðaskrifstofurnar
svari fyrir það, hvað svona fram-
koma við gamalt fólk eigi að þýða.
Mér bara hreinlega blöskrar hvern-
ig komið er fram við eldri borgara
landsins,“ segir Eiríkur Sigfússon á
Akureyri og segist kominn með nóg
af hneykslanlegri verðlagningu
ferðaskrifstofa á ferðum til útlanda,
og þá sérstaklega til Kanaríeyja.
Eiríkur fer á hverju ári til Kanarí-
eyja, stundum oftar en einu sinni, og
hefur gert það í langan tíma. „Það
skiptir engu máli hvar drepið er nið-
ur, þeir eru allir með gífurlega há
verð,“ segir Eiríkur.
Hafa hækkað gríðarlega
Eiríkur segir að mikil hækkun
hafi orðið á ferðum hjá ferðaskrif-
stofum landsins í kjölfar efnahags-
hruns Íslendinga, og vill hann meina
að verðið sé allt of hátt. Eiríkur seg-
ist hafa orðið var við mikla óánægju
hjá eldra fólki og tekur sem dæmi að
fyrir fimm árum hafi verið hægt að
kaupa ferðir til Kanaríeyja fyrir
tæplega 36.000 krónur báðar leiðir,
en nú kosti báðar leiðir allt að
135.000 krónur. Eiríkur botnar ekk-
ert í þessu og segist hafa rekist á
auglýsingu á netinu sem auglýsi flug
frá Íslandi til Minneapolis fyrir
35.000 krónur, aðra leið. „Hvernig er
hægt að útskýra það? Við erum að
tala um 100% mun á verði,“ segir
Eiríkur.
Hugsar um gamla fólkið
„Ég stend ekki í þessu bara fyrir
mig, ég er líka að hugsa um gamla
fólkið í landinu,“ segir Eiríkur, en
fátt var um svör þegar Eiríkur setti
sig í samband við eina af ferðaskrif-
stofum landsins og spurði hvort þeir
ætluðu virkilega að verðsetja sig út
af markaði.
Eiríkur hefur átt mikil viðskipti
við ákveðna ferðaskrifstofu og segist
oft hafa orðið fyrir vonbrigðum með
framkomu hennar. Eiríkur segir
hana einnig oft hafa svikið loforð um
aðbúnað í flugvélum. Hann hafi
t.a.m. lent í því að hún hafi sagt að
flogið verði með vélum frá
Icelandair, en svo komi á daginn að
ferðaskrifstofan noti gripaflutninga-
vélar með lélegum sætum, og bjóði
svo fólkinu samlokur og gos í
miskabætur.
„Þetta eru svo lélegar flugvélar að
það er ekki einu sinni hægt að
hreyfa armana og plássleysið er svo
þvílíkt að menn eru orðnir vel stirðir
og þungir í lok flugs,“ segir Eiríkur
og vill meina að það bæti nú ekki úr
skák að fyrir sé heilsan oft ekki góð
hjá eldra fólki. Það sé því einfaldlega
ekki boðlegt hvernig ferðaskrifstof-
urnar hagi sér.
„Þetta er vegna þess að Íslend-
ingar eru farnir að leigja sér sjálfir
íbúðir á Kanaríeyjum,“ segir
Eiríkur, en hann telur að útskýringu
hækkana ferðaskrifstofa landsins
megi rekja til þess að Íslendingar
eru í auknum mæli farnir að leigja
sér sjálfir íbúðir, og ferðaskrifstofur
landsins skrúfi þá bara upp verðið til
að fá til baka tapið á þeim íbúðum
sem þær leigja út.
Talaði við Samkeppniseftirlitið
„Yngra fólkið í landinu lætur ekki
koma svona fram við sig. Það fer allt
í gegnum London eða Amsterdam,“
segir Eiríkur, en hann segir þessar
verðhækkanir helst koma niður á
eldri borgurum landsins, þar sem
þeir noti helst ferðaskrifstofur til að
panta sér ferðir til útlanda. Eiríkur
hafði samband við félaga sinn og bað
hann um að bera þetta mál undir Fé-
lag eldri borgara, en hann vonar að
félagið eigi eftir að beita sér í þess-
um málum af fullri hörku, enda sé
löngu kominn tími til.
Eiríkur hafði á dögunum samband
við Samkeppniseftirlitið vegna þess
að honum finnst ekki eðlilegt að
ferðaskrifstofurnar passi sig allar á
því að hafa svipað verð. „Ég sagði
einfaldlega við þá að þeir þyrftu að
vakta þetta. Ferðaskrifstofurnar
væru búnar að vera ósvífnar í langan
tíma,“ segir Eiríkur, en Samkeppn-
iseftirlitið sagðist ætla að skoða mál-
ið.
Blöskrar fram-
koman í garð
eldri borgara
Farmiði til Kanarí kostar 135 þúsund
Morgunblaðið/Einar Falur
Kanarí Þúsundir Íslendinga sækja
eyjarnar heim á hverjum vetri.
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir)
Torino T2T
Sófinn þinn
útfærður eftir þínum óskum
Íslensk
framleiðsla
H Ú S G Ö G N
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík
Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga lokað
Sunnudaga lokað
Rín Hornsófi 2H2
Verð frá 285.900 kr
Roma sófasett 311
Verð frá 251.900 kr
Basel sófi
Verð frá 172.900 kr
Oslo stóll
Verð frá 52.900 kr
Áður 343.700 kr
Nú aðeins 274.960 kr