Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 14

Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Svarið við spurningu dagsins NÝ HEIMASÍÐA Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is Kíktu við og sjáðu rétti dagsins, finndu þér uppskrift eða veltu fyrir þér veislunni sem þú ætlar að halda í sumar BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is „Það er nú varla oft sem það koma svona margir farþegar í einu, allavega á skemmtiferðaskipum,“ segir Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóa- hafna, en næstkomandi mánudag munu fjögur erlend skemmti- ferðaskip sigla í höfn í Reykjavík. Að sögn Ágústs munu samtals um sex til sjö þúsund farþegar koma hingað á mánudaginn með skipunum fjórum. Skipin eru öll misstór en Ágúst segir að um 150 farþegar komi með því minnsta, Clipper Adventurer, og hinsvegar um 3100 farþegar með stærsta skipinu, Costa Pacifica. Rétt er að taka það fram að þessar tölur eru miðaðar við að einungis sé selt í neðri koju. „Það er oft efri og neðri koja í klefunum en þeir selja yfirleitt bara í lægri kojuna fyrir svona langa ferð,“ segir Ágúst. „Þau koma frá hinum og þessum höfnum í Evrópu,“ segir Gunnar Rafn Birgisson, framkvæmdastjóri ferða- skrifstofunnar Atlantik sem sér um þrjú af þeim fjórum skemmti- ferðaskipum sem koma hingað á mánudaginn, aðspurður hvaðan skip- in komi. U.þ.b. hundrað farartæki Að sögn Gunnars er Atlantik með ýmsar ferðir í boði fyrir farþega skip- anna. „Það er náttúrlega vinsælast að fara á þessa hefðbundnu ferða- mannastaði, gullhringinn, Bláa lónið og Reykjanesið,“ segir Gunnar og bætir við: „Það eru farþegar að fara í hvalaskoðun, í útsýnisflug, í jeppa- ferðir, bæði lengri og skemmri og þetta er svona öll flóran í raun og veru.“ Þegar svona mikill fjöldi far- þega kemur til landsins á einum degi og stór hluti þeirra fer í ferðir þá ligg- ur í augum uppi að mikil þörf er fyrir farartæki. „Við gerum ráð fyrir því að það verði ansi mikill fjöldi af bílum í gangi á þessum degi og við erum örugglega að nota um og yfir hundr- að farartæki,“ segir Gunnar og bætir við að um sé að ræða allskonar far- artæki, þ. á m. mikið af rútum og jeppum. Hann segir að sem betur fer komi skipin ekki öll á sama augnablikinu og því geti fyrirtækið notað rúturnar í fleiri en eina ferð. „Það er eitt að koma eftir hádegi og tvö um morg- uninn. Eitt skipið verður síðan yfir nótt og við erum að reyna að stýra þessu eins og við getum þannig að þeir sem séu hér yfir nótt, það verði meira að gera hjá þeim daginn eftir,“ segir Gunnar í samtali við blaða- mann. Að sögn Gunnars vinnur Atlantik mjög vel með sínum samtarfsaðilum og segir hann alla leggja sig fram um að láta þetta ganga upp. „Það sem er að gerast í heiminum almennt er það að skemmtiferðaskipin eru að stækka þannig að um borð í hverju skipi eru fleiri farþegar. Það koma svona dagar og við getum alveg átt von á því að það gerist áfram og kannski þá í auknum mæli,“ segir Gunnar. Um fjórtán þúsund farþegar koma til Íslands á mánudag  Um 100 farartæki verða notuð til þess að flytja skipsfarþega í ferðir um landið Morgunblaðið/Styrmir Kári Ventura Skemmtiferðaskipið Ventura sem kom til Reykjavíkur þann 8. júní sl. í jómfrúrferð sinni. Skipið lagðist að Skarfabakka í Sundahöfn. Skemmtiferðaskip » Skipið Artania er 44.588 brúttótonn og gert er ráð fyrir að með því komi um 1200 far- þegar. » Skipið Clipper Adventurer er 4.376 brúttótonn og ger er ráð fyrir að með því komi um 150 farþegar. » Skipið Costa Pacifica er 114.288 brúttótonn og gert er ráð fyrir að með því komi um 3100 farþegar. » Skipið Aidamar er 71.000 brúttótonn og gert er ráð fyrir að með því komi um 2200 far- þegar. » Samkvæmt upplýsingum frá Isavia munu um sjö þúsund flugfarþegar koma hingað til lands á mánudag. Hæstiréttur hefur vísað frá deilu- máli fyrrverandi hjóna um eign- arhald á ketti, en bæði segjast þau vera lögmætir eigendur kattarins. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að kötturinn yrði tekinn úr vörslum varnaraðila og fenginn lög- manni sóknaraðilans. Sá síðarnefndi kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Hann krafðist þess að Hæstiréttur myndi fella úrskurð héraðsdóms úr gildi og sín krafa yrði tekin til greina. Þrír dómarar Hæstaréttar vísuðu málinu frá. Þeir segja að þeg- ar málið var kært til Hæstaréttar hafi áfrýjunarfjárhæð, þ.e. lág- marksfjárhæð til að hægt sé að áfrýja máli, verið 705.325 krónur. Ekkert liggi hins vegar fyrir um verðgildi kattarins og því hafi ekki verið sýnt fram á að þessu skilyrði sé fullnægt. Því beri að vísa því sjálf- krafa frá Hæstarétti. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, að sóknaraðili segist vera lögmætur eigandi kattarins sbr. skráningarskírteini. Við sam- vistarslit málsaðila í nóvember 2011 hafi orðið að samkomulagi að kött- urinn yrði fyrst um sinn til heimilis hjá varnaraðila en sóknaraðili kæmi reglulega til að annast um hann. Þegar sóknaraðili hafi svo ætlað að taka köttinn með sér á sitt nýja heimili hafi varnaraðili neitað að af- henda hann. Síðan hafi sóknaraðili ekki fengið að annast köttinn. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að ekki þyki sýnt að skráning kattarins hjá dyra- audkenni.is veiti fullnægjandi sönn- ur fyrir því hver sé eigandi katt- arins. Þá þyki önnur gögn málsins heldur ekki veita sönnun fyrir því hver sé eigandi hans. Morgunblaðið/Kristinn Matur Hnoðri tengist ekki málinu. Köttur ekki nógu dýr fyrir Hæstarétt Íslenska landsliðið, sem keppir í opnum flokki á Evrópumótinu í brids, vann tvo leiki en tapaði einum leik á fyrsta keppnisdeg- inum í gær en mótið er haldið í Dublin á Írlandi. Íslendingar eru í 6.-8. sæti í sínum riðli eftir fyrsta keppn- isdaginn með 49 stig. 34 þjóðir taka þátt í mótinu og er þeim skipt í tvo riðla. Riðlakeppninni lýkur í næstu viku og þá keppa níu efstu þjóðirnar í hvorum riðli til úrslita. Fyrsti leikur Íslendinga á mótinu í gær var gegn Rúmenum og var ekki nægilega vel spilaður af hálfu íslenska liðsins. Rúmenar höfðu sigur, 21:9. Annar leikurinn var gegn liði Wales og þá var allt annað að sjá til Íslendinga, sem unnu öruggan sigur, 23:7. Þriðji og síðasti leikur dagsins var gegn Pólverjum en brids- landsleikir þessara þjóða hafa oft verið sögulegir. Leikurinn var vel spilaður en honum lauk með sigri Íslendinga, 17:13. Mótinu er haldið áfram í dag og þá spila Íslendingar við Frakkland, Lúxemborg og Króat- íu. Frakkar eru efstir í riðlinum með 64 stig eftir þrjá leiki og Lúxemborg er í 3. sæti með 54 stig ásamt liði Mónakó. Það lið hefur talsverða sérstöðu á mótinu því um er að ræða atvinnumanna- sveit og enginn liðsmannanna er búsettur þar. Í sveitinni spila meðal annars Norðmennirnir Tor Helness og Geir Helgemo sem margsinnis hafa spilað hér á landi en þeir hafa einnig unnið heims- og Evrópumeistaratitla fyrir Noreg. Íslenska liðið er skipað þeim Aðalsteini Jörgensen, Bjarna Ein- arssyni, Magnúsi Magnússyni, Jóni Baldurssyni, Þorláki Jóns- syni og Þresti Ingimarssyni en Björn Eysteinsson er fyrirliði. Tveir sigrar og eitt tap á EM í brids Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.