Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 17

Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Fjöldi fólks sækir Landsvirkjun heim ár hvert en sumarið 2011 heimsóttu rúmlega 19.000 manns gestastofur Landsvirkjunar og kynntu sér endurnýjanlega orku- gjafa á orkusýningum í aflstöðvum fyrirtækisins. Landsvirkjun er með opnar gestastofur í Kröflustöð á Norðausturlandi, í Végarði hjá Fljótsdalsstöð á Austurlandi og í Búrfellsstöð á Suðurlandi. Sumarið 2012 verður einnig opið í Ljósa- fossstöð en þar munu Skátarnir setja upp sýningu í tilefni 100 ára afmælis skátastarfs á Íslandi. Í Kröflustöð er fjölsóttasta gestastofa Landsvirkjunar en tæp- lega 8.000 manns sóttu stöðina heim árið 2011 og var því á síðasta ári ákveðið að ráðast í endurbætur á sýningunni fyrir sumarið 2012. Kraftar í iðrum jarðar Ný sýning í Kröflustöð varpar ljósi á þá krafta sem búa í iðrum jarðar og hvernig vinna má raf- orku úr jarðvarma. Boðið er upp á fræðslu um endurnýjanlega orku- gjafa sem og merkilega sögu Kröflustöðvar þar sem eldgos og beislun orkunnar fóru fram á sama tíma. Sýningin var hönnuð af Gag- arín, í samvinnu við Landsvirkjun. Einnig var endurgerð kvikmynd um Kröfluelda eftir nýju handriti Ara Trausta Guðmundssonar. Opið er alla daga vikunnar í júní, júlí og ágúst en nánar um sýningar og afgreiðslutíma hverr- ar stöðvar má lesa á gestir.lands- virkjun.is. Ný sýning sett upp í Kröflustöð  Gestastofur Lands- virkjunar vel sóttar Ljósmynd/Þorkell Krafla Þangað koma flestir sem sækja gestastofur Landsvirkjunar. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „27 félög munu koma með um 140 lið og við verðum með 18 knattspyrnuvelli í gangi í einu,“ segir Þórður Guð- jónsson, framkvæmdastjóri ÍA. Norðurálsmótið í knattspyrnu verður haldið dagana 15.-17. júní á Akranesi og er búist við miklum fjölda gesta. Mótið hefur verið haldið allt frá 1985. „Þetta hefst með mikilli vinnu foreldra iðkenda hérna á Akranesi og svo framlagi þeirra sem koma að stjórnun knattspyrnufélagsins. Í skólum bæjarins og á tjaldstæði mótsins erum við með eitthvað á bilinu 3.500 til 4.000 manns í gistingu,“ segir Þórður. Hann segir það jafnframt vinsælt að aðstandendur komi í dagsferðir til Akraness og búist sé við að hátt í átta þúsund manns leggi leið sína á mótið. Þórður segir margt annað í gangi í bænum yfir helgina. „Fyrirtæki og verslanir eru með fjölmarga viðburði í gangi. Svo eru sett upp leiksvæði í kringum Langasand- inn og í Garðalundi, skógi okkar Skagamanna. Sundlaug- in verður opin og frítt í sund alla helgina. Svo er hægt að fara í sjóinn og sturtuna á Langasandi,“ segir Þórður að lokum. Um 140 lið keppa á Skaganum Knattspyrnumót Norðurálsmótið verður haldið um helgina á Akranesi.  Búist er við að hátt í átta þúsund manns leggi leið sína á Norðurálsmótið sem haldið verður á Akranesi nú um helgina Laugardaginn 16. júní verður blás- ið til hverfishátíðar í Norðurmýri. Um er að ræða hátíð/flóamarkað og fer hún fram á milli kl. 13 og 17 á Bollagöturóló (við endann á Gunnarsbraut og Auðarstræti). Hátíðin er samvinnuverkefni hverfisbúa. Fólk er hvatt til þátt- töku, hvort sem það er til að losa geymsluna, kynnast krökkunum og foreldrunum í hverfinu eða koma fram. Nærsveitungar eru að sjálf- sögðu velkomnir. Hverfishátíð haldin í Norðurmýrinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.