Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 19

Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Góðu fréttirnar eru að barnadauði hefur dregist saman um 50% á 40 ár- um. Þegar Unicef var stofnað á Ís- landi 2004 var mjög algengt að sjá tölur yfir barnadauða sem voru vel yfir 200 á hverjar 1.000 fæðingar. Nú er ekkert ríki í heiminum með slíkar tölur,“ seg- ir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Unicef, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, á Íslandi, í tilefni af alþjóð- legri ráðstefnu um barna- og mæðra- dauða sem hefst í Washington í dag. „Barnadauði er mestur í Sómalíu eða 180 börn yngri en fimm ára á hverjar þúsund fæðingar. Mér er minnisstætt að fyrir nokkrum árum var barnadauði í Síerra Leóne yfir 270 börn á hverjar þúsund fæðingar. Núna er þessi tala komin niður í 174,“ segir Sigríður og víkur að or- sökunum fyrir barnadauða. Hægt að fyrirbyggja dauðsföll „Skýrsla sem Unicef gefur út í tengslum við fundinn í Washington fjallar um helstu orsakir barnadauða í heiminum og það er þyngra en tár- um taki að börn láta lífið á hverjum degi út af orsökum sem vel mætti koma í veg fyrir. Það er talað um að 60% dauðsfalla barna yngri en fimm ára í heiminum megi rekja til nokk- urra þátta þar sem lungnabólga trónir á toppnum sem mesti skað- valdurinn og niðurgangspestir fylgja þar á eftir. Síðan eru fleiri þættir eins og malaría. Þetta hlutfall er allt of hátt. Góðu fréttirnar eru að við vitum til dæmis vel hvernig hægt er að koma í veg fyrir að börn deyi af völdum niðurgangspesta.“ Setja markið enn hærra Að sögn Sigríðar Víðis á að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var með Þúsaldarmarkmiðum Samein- uðu þjóðanna og stefna að því að árið 2035 verði barnadauði að meðaltali farinn niður í 20 börn af hverjum þúsund fæðingum. Hún segir að barnadauði sé mestur í Afríku sunn- an Sahara. „Þar þurfum við að gera miklu betur. Margar aðgerðanna eru ekki svo flóknar. Með því að dreifa til dæmis moskítónetum má auðveld- lega bjarga mannslífum,“ segir hún. Barnadauði er á undanhaldi  Góðar fréttir af baráttu síðustu ára AFP Máltíð Ungur drengur í S-Afríku. Barnadauði er vandi í Afríku. Sigríður Víðis Jónsdóttir Hressótertan fæst hjá Reyni Bakara Hin eina sanna Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700 Opnunartími Dalvegi: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Bil ds hö fði 8 8 Breiðhöfði Bíldshöfði 8 Bíldshöfði 6 Bil ds hö fði 6 Bíldshöfða 8 Opið9 til 17 í dag Citroën Komdu hingað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.