Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 20

Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 20
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Fjöldi fólks streymir til bæjarins nú í vikulokin, bæði vegna Bíladaga og þjóðhátíðarinnar 17. júní. Þá mætast hér nýir og gamlir MA-ingar og halda hátíð, auk þess sem stúdentar eru brautskráðir frá skólanum að vanda (í sól og blíðu) á þjóðhátíð- ardaginn.    Gulur og blár páfagaukur fannst illa til reika við Hamar, félagsheimili íþróttafélagsins Þórs, í vikunni. „Þetta gæti verið njósnari frá KA, hann er þannig klæddur,“ sagði Sig- fús Ólafsson Helgason, fram- kvæmdastjóri Þórs, léttur í bragði.    Skyldu meðaltekjur ekki vera í hærri kantinum á Akureyri? Enn einn vinningsmiðinn í lottó var seld- ur í bænum um síðustu helgi og hinn heppni fær 73 milljónir. Vonandi var það ekki utanbæjarmaður …    Kaffihúsið Björk í Lystigarð- inum er mjög vel heppnað. Það var opnað um síðustu helgi í frábæru veðri, heimamenn fjölmenntu og ekki dró úr aðsókn að um morguninn lagði að bryggju skemmtiferðaskip með 3.000 farþega! Margir slíkir rölta alltaf í Lystigarðinn og skoða þann merkilega stað.    Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (ÚUA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að deiliskipulag fyrir Dalsbraut frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut hafi fengið lög- formlega rétta málsmeðferð sam- kvæmt skipulagslögum. Kæra þar að lútandi var því ekki tekin til greina og framkvæmdir hefjast þar af leiðandi fljótlega.    Í sumar verður hafist handa við þann hluta götunnar sem liggur frá Miðhúsabraut að Skógarlundi; frá verslun Bónuss norður að íþrótta- svæði KA, en framkvæmdir við norðurhlutann, frá Skógarlundi að Þingvallastræti, geta ekki hafist strax vegna þess að ÚUA komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið samræmi milli aðalskipulags og deiliskipulags, að því leyti að teng- ingar voru ekki sýndar á aðal- skipulagi við lóð Lundarskóla og íþróttasvæði KA.    Bæjaryfirvöld segjast munu bæta úr nefndu ósamræmi en það verður væntanlega til þess að fram- kvæmdum við brautina lýkur ekki fyrr en á næsta ári.    Kór Akureyrarkirkju kom á föstudaginn var úr vikulangri söng- ferð til Lahti og Helsinki í Finnlandi og Pétursborgar í Rússlandi. Í ferð- inni voru 67 kórfélagar, einsöngv- ararnir Elvý G. Hreinsdóttir og Hjalti Jónsson, organistinn Sigrún Magna Þórsteinsdótir, Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og kór- stjórinn Eyþór Ingi Jónsson. Nokkr- ir makar voru með í för þannig að hópurinn var milli 80 og 90 manns.    Í Lahti, vinabæ Akureyrar, var sungið í Kirkju krossins, sem var síðasta verk sem snillingurinn Alvar Aalto hannaði. Safnaðarnefndin tók kórnum tveim höndum og hélt hon- um vel að mat fyrir og eftir tónleika, en tónleikagestir voru næstum 300 talsins, segir í tilkynningu.    Í Helsinki var sungið í Temppeli- aukio Kirkko, sem sprengd var inn í klett nálægt miðbænum. Fjöldi ferðamanna leit inn og fylgdist með æfingum, en hljómurinn í kirkjunni var afar fagur og því fylgdi ólýsanleg stemning að lokum að syngja þar mjög vel heppnaða tónleika fyrir nærfellt 400 áheyrendur. Stundin í Klettakirkjunni líður kórfélögum seint úr minni, að sögn eins þeirra, Sverris Páls Erlendssonar.    Í Pétursborg söng kórinn í Finnsku kirkjunni, sem kennd er við Maríu. Á þessum lokatónleikum ferðarinnar voru nokkru færri áheyrendur en í Finnlandi en und- irtektir voru afar góðar. Heild- arfjöldi áheyrenda var sem næst 900 manns.    Ferðin öll tókst afar vel, að sögn Sverris Páls, og var fróðleg og skemmtileg, enda margt að sjá á þeim slóðum sem um var farið.    Spánný hljómsveit, Cheek Mountain Thief, er með tónleika á Græna hattinum í kvöld. Mike Lindsay (úr Tunng) fer fyrir sveit- inni og aðrir eiga rætur að rekja til Húsavíkur – undan Kinnarfjöll- um …    Von er á plötu frá sveitinni og framundan tónleikaferð til að kynna hana, bæði hérlendis og um Bret- land. Auk Lindsey eru í sveitinni Gunnar Illugi Sigurðsson, Lára Sól- ey Jóhannsdóttir, Leifur Björnsson, Birkir Ólafsson og Óskar Andri Ólafsson.    Langi Seli og Skuggarnir verða með tónleika á Græna hattinum á föstudagskvöld. Það er vel við hæfi í tilefni Bíladaga, segir Haukur vert á hattinum. „Óhætt er að fullyrða að engin hljómsveit á Íslandi hefur sungið jafnmikið um bifreiðar, vinnuvélar, pústflækjur og hedd!“    Helgi & Hljóðfæraleikararnir þjófstarta þjóðhátíðinni með „líf- rænum og þjóðleikum“ tónleikum, eins og segir í tilkynningu, á laug- ardagskvöldið. Þeir hefjast kl. 23. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Dalsbraut Gatan verður neðan við KA-vellina, sem eru áberandi á myndinni, og gegnum íbúðahverfið til hægri. Byrjað á Dalsbrautinni í sumar Ljósmynd/Andri Lárusson Í Klettakirkjunni Kór Akureyrarkirkju og einsöngvararinn Elvý G. Hreinsdóttir. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Hinir árlegu Bíladagar verða haldnir um næstu helgi á Akureyri, frá 14. til 17. júní. Þetta er mikil há- tíð áhugamanna um ökutæki og akstursíþróttir og má því búast við mikilli umferð til Akureyrar næstu daga fram að helgi. Þúsundir manna hafa sótt þessa árlegu hátíð. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Akureyri verður mikið um- ferðareftirlit nú sem fyrr. Umferðarstofa og Bílaklúbbur Akureyrar vilja hvetja þátttak- endur til að varpa ekki skugga á þessa annars ágætu hátíð með akst- ursmáta sem skapað getur hættu og óþægindi í almennri umferð eða truflun fyrir íbúa. „Það er ágætt að haft sé í huga að í akstursíþróttafélögum eru strangar siðareglur og hörð við- urlög við því ef menn gerast brot- legir við umferðarlög á leið til og frá keppni. Sama á við um brot á þeim reglum sem gilda á Bíladög- um. Mikil áhersla er lögð á að menn séu ekki að ástunda einhvern þann akstursmáta í almennri umferð sem aðeins á heima í keppnum eða á til þess gerðum æfingasvæðum,“ segir í tilkynningu. „Búið er að setja upp afmörkuð og örugg svæði þar sem gestir geta reynt aksturshæfni sína bæði í leik og keppni og mikilvægt er að slík iðja takmarkist við þau svæði. Það þarf ekki nema einn til að skemma ímynd alls hópsins og ábyrgðin er því mikil,“ segir í tilkynningunni. Mikill viðbúnaður vegna Bíladaga um helgina Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Spólað Þúsundir sækja Bíladagana og fylgjst með tilþrifum ökuþóranna. Sólarvörn fyrir alla fjölskylduna www.avon.is Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150 Derma-UV Plus Activi-D tæknin gefur hámarks vörn, er vatns- held og góð fyrir viðkvæma húð og hentar því einstaklega vel fyrir börn Verðu þig vel í sólinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.