Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd | Leikskólinn Barnaból á Skaga-
strönd er 35 ára um þessar mundir. Haldið var
upp á afmælið með því að hafa opið hús með
kaffiveitingum fyrir nemendur og gesti. Sýnd
var stuttmynd sem AnneMarie van Splunter
gerði um börnin á leikskólanum fyrr og nú og
síðan komu Skoppa og Skrítla í heimsókn í af-
mælið og vöktu þær stöllur mikla gleði meðal
nemenda Barnabóls.
Upphafið að Barnabóli var þannig að Lions-
klúbbur Skagastrandar stóð fyrir byggingu leik-
skólahúss á sínum tíma og afhenti það síðan
sveitarfélaginu til eignar og rekstrar. Síðar var
svo húsnæði skólans tvöfaldað með viðbyggingu
því eldra húsið var orðið alltof lítið fyrir starf-
semina. Nokkur fækkun hefur orðið á leikskól-
anum á undanförnum misserum en nú eru þar á
milli 30 og 40 börn í tveimur deildum. Leik-
skólastjóri Barnabóls er Þórunn Bernódusdóttir.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Stuttmynd sýnd á afmæli Barnabóls
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um að
karlmaður skuli sæta gæslu-
varðhaldi til föstudagsins 6. júlí
næstkomandi. Maðurinn er undir
sterkum grun um þjófnað, nytja-
stuld, bensíngripdeild og fíkniefna-
akstur. Maðurinn er einnig undir
rökstuddum grun um líkamsárás,
húsbrot og eignaspjöll.
Ný afbrotahrina hafin
Maðurinn var dæmdur 13. apríl sl.
og fékk þá 14 mánaða óskilorðs-
bundinn fangelsisdóm fyrir rán.
Hann hefur hlotið 11 refsidóma frá
árinu 2008 fyrir ýmis brot og lög-
reglan telur að ný afbrotahrina sé
hafin hjá honum og yfirgnæfandi lík-
ur séu á því að hann muni halda
áfram brotastarfsemi fari hann
frjáls ferða sinna. Nauðsynlegt sé
fyrir lögreglu að stöðva frekari af-
brot og reyna að ljúka málum
mannsins. Þá er það mat lögreglu að
maðurinn muni ekki fá skilorðs-
bundinn dóm vegna fjölda málanna
og alvöru brotanna.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur sagði að maðurinn væri undir
rökstuddum grun um að hafa gerst
sekur um háttsemi sem fangelsis-
refsing væri lögð við. Í því ljósi og
með hliðsjón af sakarferli mannsins
yrði að ætla að hann myndi halda
brotunum áfram ef hann yrði leystur
úr haldi.
Hlaut 11
refsidóma
frá 2008
Gæsluvarðhalds-
úrskurður staðfestur