Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 6

Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 „Skógarþrestir byrja að verpa í apríl, svo þetta er líklegast þriðja varp þessa pars,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur um myndina af skógarþrastarungunum sem tekin var í Grímsnesi um helgina. „Skógarþrestir verpa tvisvar til þrisvar á sumrin, eins og margir spörfuglar. Þeir verpa oftar en einu sinni, að minnsta kosti þegar sumarið er gott eins og það er búið að vera núna. Þetta varp er þó frekar seint, skógarþrestir eru stundum með unga fram í ágúst svo þetta er þekkt en þetta er samt mjög seint.“ Jóhann segir skógarþrestina verpa svona oft því varpið gengur svo hratt fyrir sig og þeir hafa því tíma í það yfir sumarið. Egg skóg- arþrasta eru 12 til 13 daga í hreiðrinu áður en þau klekjast út. Þá eru ungarnir þar í um tvær vik- ur. „Það er auðvitað mjög gott að þeir verpi svona oft því þeir eru mjög skammlífir. Meðallíftími skógarþrasta er fimm til sjö ár og því þarf að vera mikil viðkoma hjá þeim á hverju ári.“ Jóhann Óli telur þó líklegt að skógarþrastarungarnir lifi þetta af þótt þeir séu svona seint á ferðinni. Hann segir mikilvægt að tíðin haldist góð og þeir fái nóg að éta. Skógarþrestir gera oftast hreið- ur sín á jörðinni og þeir hafa orpið á jörðinni lengst af. „Á síðustu öld byrjuðu þó nokkrir að verpa í trjám í görðum. Ungarnir halda oft að þeir séu á jörðinni og hoppa út úr hreiðrinu áður en þeir verða fleygir. Það kemur oft fyrir að ungarnir detti úr hreiðrunum. Skógarþrösturinn á eftir að læra þetta betur,“ segir Jóhann Óli. „Sumarið er búið að vera mjög gott og fulgastofnarnir hafa flestir braggast vel. Sérstaklega hefur gengið vel hjá fuglum inn til lands- ins, bæði vatnafuglum og kríum sem lifa á hornsílum. Þá hefur súl- an braggast mjög vel, hún étur makríl og er eini fuglinn sem ræð- ur við það. Það er hætt við að makríllinn sé að aféta marga fulga og að mínu mati má veiða eins mikið og hægt er af honum.“ Bergljót Þorsteinsdóttir náði þessari mynd af skógarþrastarung- unum nálægt sumarbústað sínum í Grímsnesi um helgina. Ungarnir eru aðeins eins dags gamlir þar sem synir hennar höfðu vaktað hreiðrið og sáu eggin heil daginn áður. aslaug@mbl.is Spörfuglar verpa oft tvisvar til þrisvar á sumrin Skógarþrestir verpa ennþá Ljósmynd/Bergljót Þorsteinsdóttir Skógarþrestir Ungarnir þrír klöktust út í Grímsnesi um helgina og eru lík- lega þriðja varp parsins. Sumarið hefur verið gott fyrir smáfuglana. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipse kom til hafnar að Skarfa- bakka um hádegisbilið í gær, en þetta er í annað skiptið í sumar sem það kemur til landsins. Skipið er veglegt í alla staði en það er 300 metrar á lengd og um 122.000 brúttótonn. Skipið hefur vakið mikla athygli en á því eru hátt í 4.000 manns, þar af 1.200 manna áhöfn. Þetta er stærsta skemmtiferðar- skipið sem komið hefur til landsins í sumar. Skipið var smíðað í Þýskalandi en er nú í eigu amerísks fyrirtækis og sigldi frá Southampton á Englandi. Ferðin sem nú stendur yfir tekur 14 daga og stoppar það einnig í Noregi. Skipið er einstaklega glæsilegt en þar er allt til alls. Það er 14 hæðir og er þannig byggt að fremst er öll af- þreying, í miðjunni barir og opið svæði og síðan fyrir aftan eru allir veitingastaðirnir. Það sem skipið hefur framyfir önnur skip er alvörugras á efsta dekkinu og er það notað til ýmissa leikja líkt og minigolfs en þar er einnig mjög vinsælt að halda útibrúð- kaup. Einn starfsmaður á skipinu sér alfarið um að halda grasinu við. Þá hefur skipið fjöldann allan af veitingastöðum, stóran hátíðarveit- ingasal, hádegisverðarsal, grill á úti- svæðum, franskan og ítalskan veit- ingastað og nýtískulegan stað þar sem þú pantar mat með iPad. Í skipinu er einnig líkamsrækt, inni- og útisundlaugar og heilsulind þar sem hægt er að fara í nudd og ýmsar snyrtimeðferðir. Þar er einnig hægt að fara í fegrunaraðgerðir og meðal annars fá bótox. Þá er stór verslunargata sem er lokuð á meðan skipið er í höfn en opnuð eftir að komið er út fyrir landhelgi hvers lands. Einnig er á skipinu gríð- arstórt spilavíti ásamt leikhúsi og kvikmyndahúsi. Þá er bókasafn um borð og sérstakt Apple-svæði, sem er bæði búð og afþreyingarherbergi. Skipið lætur úr höfn í dag klukk- an 14 en margir farþegar fóru í ferð- ir í Bláa lónið eða Gullna hringinn. Mikil umferð var í Reykjavíkurhöfn í gær því einnig komu tvö minni skemmtiferðaskip. Morgunblaðið/Sighvatur Ómar Gras Celebrity Eclipse er eina skemmtiferðaskipið sem hefur alvöru gras um borð en á því er gjarnan farið í leiki. Barir Gríðarlega margir barir eru á skipinu, bæði úti og inni, með og án tónlist. Barirnir eru allir með sitthvoru sniðinu. Glæsileiki Skipið er stórt og þar er mikið um að vera alla daga. Mismunandi leiksýningar eru á hverju kvöldi. Veitingastaðir Margir mismunandi veitingastaðir eru um borð og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Skemmtiferðarskip Celebrity Eclipse er 300 metrar og 122.000 brúttótonn. Það tekur 4.000 manns. Bókasafn Gestir skipsins geta valið úr mörgum bókum og sest niður í fallegt bókasafn ásamt því að spila spil. Morgunblaðið/Björn Jóhann Celebrity Eclipse Skemmtiferðarskipið hefur vakið mikla athygli enda er það flennistórt og glæsilegt. Alvöru gras og glæsileiki á fjórtán hæðum  Stærsta skipið í sumar við bryggju MMeira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.