Morgunblaðið - 08.08.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.08.2012, Blaðsíða 16
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á dögunum veiddi Haukur Böðv- arsson stærsta urriða sem veiðst hefur á stöng í Veiðivötnum, en hann vó 8,2 kíló eða 16,4 pund. Fiskurinn var 83 cm langur og 50 cm að ummáli. Hann tók fluguna Svartan kött í Grænavatni. „Þetta er sá stærsti sem vitað er til að hafi veiðst á stöng, sá næsti var einu ensku pundi léttari og veiddist í Hraunvötnum,“ segir Örn Óskarsson sem heldur úti vefnum Veiðivötn.is. „Menn vita að það eru margir stórir í Græna- vatni, og örugglega enn stærri en þessi,“ bætir hann við. „Þegar maður sér þá stökkva þarna minn- ir það á sel, enda eru þetta afar feitir fiskar og vel haldnir, haus- litnir en skrokkmiklir.“ Örn segir að í klakveiði í Veiðivötnum á haustin hafi fengist enn stærri urr- iðar, og svo séu sagnir um fiska sem hafi vegið allt að 25 ensk pund sem hafi veiðst upp úr 1970 þegar starfsmenn Veiðimálastofnunar voru að rannsaka vötnin. Þarf að hræra upp í vötnunum Veiðin í Veiðivötnum fór rólega af stað í sumar, miðað við und- anfarin ár, en hinsvegar hefur hún batnað þegar liðið hefur á og að sögn Arnar var sjöunda veiðivik- an, sú sem nú var að ljúka, sú besta frá upphafi skráningar en þá komu 2.581 silungar á land. „Ég held að aðalástæðan fyrir því hvað veiðin var róleg í byrjun hafi verið að bitmýið klaktist óvenju snemma og fiskurinn var aftur kominn niður á botn í annað æti þegar veiðimenn komu upp eftir,“ segir Örn. Þá hafi Litlisjór, sem er helsta veiðivatnið, verið óvenju kaldur lengi fram eftir og það telur Örn stafa af sífelldu logni á fjöllum í sumar. „Það vant- ar að hræra upp í þessum miklu vötnum,“ segir hann, en í kjölfarið kemur urriðinn upp í gruggið að éta, bæði hornsíli og skötuorm en þá veiðist oft vel. „Nú hefur verið logn meira og minna í allt sumar og þegar svo er þá er Litlisjór ekki svipur hjá sjón, en hann tók þó við sér eftir lægðarskotið fyrir tveimur vikum,“ segir Örn. Hann bætir við að í sumar hafi verið feiknaveiði í Stóra Fossvatni, þar sem bara er veitt á flugu, og ekki síst nú í liðinni viku. Langmesta veiðin var einmitt þar, 1.017 fiskar í vikunni, en var um 1.300 eftir fyrstu sex. Um 560 fiskar veiddust í Litlasjó í vikuni, sem er ágætt, en nú er heildarveiðin í Veiðivötn- um komin í 16.276 fiska. Undanfarin ár hefur bleikju fjölgað mikið í nokkrum vatnanna og þegar hún er í tökustuði er „hún á í hverju kasti“ að sögn Arnar. En talsvert af bleikjunni er smátt og hann segir aðdráttarafl Veiðivatna fyrst og fremst vera urriðann, sem getur verið fádæma sterkur og er spennandi bráð fyrir veiðimenn. Meðalþungi veiddra fiska í sumar er um tvö pund. Ánægðir silungsveiðimenn Á sama tíma og fréttir um lax- veiði hafa í sumar mikið til snúist um niðursveiflu og lélegar göngur, hafa silungsveiðimenn víða veitt vel. Nú um helgina stóðu veiði- menn á nánast hverju nesi í þjóð- garðslandinu við Þingvallavatn í blíðunni og blaðamaður hefur aldrei séð jafn marga við Öf- ugsnáða; taldi þar á annan tug sveiflandi stöngum. Og sumir voru að lenda í góðum skotum. Við Nautatanga gekk einn að bíl sín- um með um tíu bleikjur í neta- poka, sagði þær hafa tekið á skömmum tíma, og annar sagðist hafa fengið „nokkrar vænar“. Einn og einn urriði hrifsar líka í flugur veiðimanna og þegar línur og hnútar halda tekst stundum að landa öflugum fiskum sem geta vegið á annan tug punda. Þá hafa veiðimenn lent í æv- intýrum í Hraunsfirði, þegar þeir finna hvað vandlát sjóbleikjan vill éta, en talsvert mun vera af henni. Bleikjan í Hlíðarvatni í Selvogi hefur verið dyntótt í sumar, og tekið illa, en einn og einn veiði- maður hefur lent í skoti og fengið nokkrar í beit. Tveir félagar reyndu fyrir sér í Botnavík í vik- unni, lönduðu tíu og sögðu mikið af bleikju þar. Venjulega dregur úr sókninni í Hlíðarvatn síðsum- ars en full ástæða er þó til að hvetja menn til að veiða á þessum tíma, því þá er hægt að lenda þar í ævintýrum. Bleikjuflekkir Þegar laxinn tekur illa, eins og verið hefur í ánum á Norðvest- urlandi í sumar, beina veiðimenn gjarnan athyglinni í auknum mæli að sjógengnum silungi. Og að sögn veiðimanna hefur til að mynda verið mikið af sjóbleikju í Vatns- dalsá og Víðidalsá. „Ég sá svarta flekki af bleikju á nokkrum stöðum og við fengum nokkrar mjög fallegar, um þrjú pund,“ sagði veiðimaður sem var í Vatnsdalsá. Sá stærsti á stöng í Veiðivötnum  Meturriðinn vó 8,2 kíló og var 83 cm langur  „Menn vita að það eru margir stórir í Grænavatni, og örugglega enn stærri en þessi“  Sjöunda veiðivika sumars var sú besta frá upphafi skráningar 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 Rauðagerði 25  108 Reykjavík  Sími 440 1800  kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Eigum til á lager gott úrval loftkælitækja. Leigjum einnig tæki til lengri eða skemmri tíma. Er heitt og þungt loft á þínum vinnustað eða í tölvurýminu? Loftkæling er þá svarið Verð frá kr. 187.932 m.vsk. Á dögunum var opnaður fisk- vegur við Steinbogann í Jöklu, þar sem fyrirstaða var fyrir lax- inn. Fiskur gekk greinilega strax upp fyrir og hefur nú numið þar land – og er tekinn að veiðast á nýjum veiðistöðum. Eftir að rennan var opnuð reyndu breskur veiðimaður og sonur hans fyrir sér ofan stigans og fengu strax þrjá laxa, þar á meðal maríulax sonarins. Þá reyndi íslenskur veiðimaður fyrir sér á ýmsum stöðum sem hon- um þótti líklegir og landaði fimm löxum. Laxar hafa sést á ýmsum stöðum og hafa því gengið greið- lega eftir hinum nýja fiskvegi. Maríulax of- an Steinboga FISKVEGUR Í JÖKLU VIRKAR Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Þrjár nauðganir voru kærðar um helgina á þjóðhátíð í Vestmannaeyj- um. 22 ára maður var handtekinn vegna nauðgunar sem átti sér stað á föstudagskvöld en honum var sleppt eftir skýrslutöku. Tvær nauðganir áttu sér stað á sunnudagskvöldið en árásarmennirnir hafa ekki fundist. Tvö fórnarlambanna eru á tvítugs- aldri en eitt á þrítugsaldri. Lögregl- an í Vestmannaeyjum er að ræða við vitni og vinna upp úr öðrum upplýs- ingum en gefur annars ekkert upp um gang rannsóknarinnar. „Eftir hverja þjóðhátíð förum við yfir alla verkferla, skoðum öll mál sem upp koma og setjum niður það sem við teljum að laga megi. Í dag er rannsóknarlögreglumaður sem situr yfir upptökum úr eftirlitsmyndavél- um og reynir að afla gagna um þessi kynferðisafbrotamál. Við vonumst til þess að myndavélarnar aðstoði við rannsókn á þessum málum,“ segir Tryggvi Már Sæmundsson, fram- kvæmdastjóri þjóðhátíðarnefndar, og bætir við að eftirlitsmyndavélar hafi sannað gildi sitt í ár og mikil- vægt sé að þeim verði fjölgað á næsta ári. Myndavélar og Bleiki fíllinn Á þjóðhátíð á síðasta ári komu upp fimm kynferðisafbrotamál sem þó voru ekki öll framin á hátíðarsvæð- inu. „Við tökum kynferðisofbeldi gríðarlega alvarlega og eftir hátíðina 2011 ákváð þjóðhátíðarnefnd að kaupa eftirlitsmyndavélar,“ segir Tryggvi. Jóhannes Ólafsson, yfirlög- regluþjónn í Vestmannaeyjum, stað- festir t.a.m. að eftirlitsmyndavélar hafi reynst afar hjálplegar við rann- sókn á líkamsárás í Herjólfsdal á föstudag. Þeir Jóhannes og Tryggvi eru á því að myndavélarnar eigi eftir að nýtast enn betur og nú taki við vinna við að greina hvort beita megi þeim enn betur m.t.t. fjölda og stað- setninga. Tryggvi segir að nokkur ár fyrir 2011 hafi fá kynferðisafbrotamál komið upp. „Þetta er mannleg mein- semd sem erfitt er að ráða við. Ef menn koma í þessum tilgangi er erf- itt að verjast slíku, jafnvel þótt við værum með þúsund gæslumenn.“ Í ár stóð þjóðhátíðarnefnd fyrir átaksverkefninu Bleiki fíllinn sem miðaði að því að berjast gegn kyn- ferðislegu ofbeldi. „Þetta var gríðar- lega öflugur forvarnarhópur sem vakti athygli á landsvísu og vann gott starf. Hópurinn var mjög sýnilegur í aðdraganda helgarinnar sem og á hátíðinni sjálfri. Við nýttum okkur risaskjáina við sviðið til að varpa upp skilaboðum í forvarnarskyni. Við teljum okkur hafa lagt okkur eins vel fram og nokkur var kostur.“ Þarf öflugri forvarnir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, samtaka sem berjast gegn kynferðisofbeldi, segir að alltaf megi gera betur. „Þar er ég fyrst og fremst að hugsa um öflugar forvarn- ir. Við sjáum frábær dæmi um að hægt sé að breyta hegðun með fræðslu og forvörnum. Samanber bætt umferðarmenning, reykingar og umhverfismál, í þessum mála- flokkum hefur verulegur árangur náðst. Þar þurfa stjórnvöld og sam- félagið í heild að koma saman,“ segir Guðrún. Hún hrósar Eyjamönnum fyrir Bleika fílinn og segir eftirlits- myndavélar af hinu góða en á meðan nauðganir eigi sér stað nægi það ekki til. „Hver nauðgun á útihátíð sem annars staðar er einni of mikið.“ Þjóðhátíðarnefnd fer yfir verkferlana  Þrjár nauðganir á þjóðhátíð  Tveir árásarmenn ófundnir Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Svartur blettur Þjóðhátíðarnefnd fer yfir öll kynferðisafbrotamál sem upp koma. Í ár var myndavélum komið upp til að auka eftirlit í Herjólfsdal. Þjóðhátíð » Þrár nauðganir voru kærðar á þjóðhátíð í ár. » 2011 komu upp fimm kyn- ferðisafbrotamál. » Fyrir hátíðina í ár keypti þjóðhátið öflugt eftirlits- myndavélakerfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.