Morgunblaðið - 08.08.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.08.2012, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 221. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Rekin í kjölfar myndbirtingar 2. Glæsilegt Íslandsmet Ásdísar 3. Íslendingur smitaðist af selapest 4. Varð bráðkvaddur í Eyjum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Jazzhátíð Reykjavíkur verður hald- in dagana 18. ágúst til 1. september og er miðasala hafin á heimasíðu há- tíðarinnar. Á síðunni má einnig finna glæsilega hátíðardagskrá og upplýs- ingar um helstu listamenn hennar. Morgunblaðið/Eggert Miðasala á Jazzhátíð Reykjavíkur hafin  Kammertón- leikar á Kirkju- bæjarklaustri bjóða upp á sann- kallaða sönghátíð um helgina en á henni koma meðal annars fram söngvarar úr ýms- um áttum og flytja verk íslenskra og erlendra tón- skálda. Allir tónleikarnir eru haldnir í félagsheimilinu Kirkjuhvoli og hefst hátíðin kl. 21 á föstudagskvöld. Mannsröddinni beitt á mismunandi vegu  Plötusnúðurinn og tónlistarmað- urinn Ívar Pétur Kjartansson mun standa fyrir þemakvöldunum Ívar Pétur undir áhrifum á Kaffibarnum öll þriðju- dagskvöld í ágúst- mánuði. Hvert kvöld verður helgað einum áhrifavaldi Ívars úr ís- lensku tónlistar- lífi og fær hann einnig til sín gesti á borð við Ghostigital. Ívar Pétur undir áhrifum í ágúst Á fimmtudag Suðvestan 8-13 m/s og rigning eða súld, en bjart með köflum um landið austanvert. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast á NA- og A-landi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13 m/s. Bjartviðri á austanverðu landinu, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil súld. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi. VEÐUR Helgi Már Magnússon, landsliðsmaður í körfu- knattleik, segir það hafa komið flatt upp á sig að vera boðið að vera spilandi þjálfari hjá KR í úrvals- deildinni á komandi tímabili. Helgi er rétt tæplega þrítugur að aldri en er nýkominn heim eftir þrjú ár í atvinnu- mennsku í Svíþjóð. Hann mun hafa Gunnar Sverr- isson sér til aðstoðar. » 1 Helgi hissa á að fá þjálfarastöðuna Fyrir hádegið í dag verður orðið ljóst hvort Ísland spilar til úrslita um verð- laun í handboltakeppninni á öðrum Ólympíuleikunum í röð. Ísland og Ungverjaland mætast í London klukkan 10. Sigurliðið heldur áfram keppni í undanúrslitunum á föstudaginn en tapliðið er á leiðinni heim. »2-3 Spilað um verðlaun á öðrum leikunum í röð? Stefán Jóhannsson, hinn reyndi þjálf- ari Ásdísar Hjálmsdóttur, segist allt eins hafa búist við því að hún næði að bæta Íslandsmet sitt í spjótkasti á Ólympíuleikunum í gær eins og raun- in varð. „Auðvitað er maður alsæll með þetta. Það var alveg frábært að gera þetta í fyrsta kasti,“ sagði Stef- án meðal annars við Morgunblaðið í gær. »1 „Það er frábært að gera þetta í fyrsta kasti“ ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is „Ég vil kalla þetta minningarreit um gróður og grjót sem var sökkt í Hálslóni,“ segir Völundur Jóhannsson, náttúruunnandi og hálendishöfðingi í Grágæsadal, norðaustan við Vatnajökul. Á hann þar við sérstaklega afmark- aðan reit á landi hans sem til- einkaður er gróðri sem fór undir vatn við gerð Kárahnjúkavirkj- unar. Rabarbari og fleira í um 640 metra hæð yfir sjávarmáli Undanfarin 17 ár hefur Völ- undur, sem er manna fróðastur um svæðið norðaustan Vatnajök- uls, ræktað upp fjölmargar plöntur á landi sínu í Grágæsa- dal. Liggur dalurinn í um 640 metra hæð yfir sjávarmáli og því ekki einsýnt að hægt sé að rækta þar allar plönturnar sem hann hefur flutt þangað í gegnum tíð- ina. „Ég geri þetta nú mest mér til skemmtunar en einnig til að sjá hvort þær þrífast hérna,“ seg- ir Völundur. „Að sumu leyti var ræktunin í upphafi reyndar líka gerð til að mótmæla virkjunar- framkvæmdum á svæðinu,“ bætir hann við. Þrífast plönturnar gríðarlega vel í Grágæsadal og kennir ým- issa grasa þar núorðið. Er þar m.a. að finna ýmsar trjátegundir á borð við reyni, birki, víði og furu, auk rabarbara og ýmissa annarra plantna og blóma á borð við baldursbrár, fjólur og hóf- sóleyjar. Fært frá maí og fram í nóvember Um þriggja klukkustunda akst- ur er frá Egilsstöðum, þar sem Völundur er búsettur, í Grágæsa- dal. Setur hann aksturinn ekki fyrir sig enda þaulkunnugur öræf- unum eftir yfir 50 ár á ferðalögum þar um. Sækir hann Grágæsadal nánast vikulega heim yfir sum- artímann en fært er á þessar slóð- ir frá lokum maí og jafnvel fram í nóvember. Hægt að biðja fyrir landinu Ferðamenn gera gjarnan hlé á akstrinum þegar gróðursæll hekt- ari Völundar birtist þeim eins og vin í hrjóstrugu landslaginu á leið um þessar slóðir. Auk gróðursins er einnig ýmislegt annað að sjá í dalnum en þar er m.a. að finna heimagert bænahús sem upp- haflega var reist sem áhaldahús o.fl. Segist Völundur kankvís m.a. hafa boðið virkjunarsinnum að leggjast þar á bæn á sínum tíma og biðja fyrir landinu. Gróðurvin í íslenskri eyðimörk  Hefur ræktað upp fjölda plantna í 640 metra hæð Ljósmynd/Broddi B. Bjarnason Vin í eyðimörk Ekki er annað að sjá en að plönturnar hans Völundar þrífist vel í öræfunum. Á myndinni má sjá Völund ásamt Sóleyju Guðmundsdóttur virða fyrir sér gróðurinn, með bænahúsið í baksýn. Hér til hliðar er vikið að sérafmörkuðum reit á landi Völundar í Grágæsadal sem sérstaklega er tileinkaður plöntum og grjóti sem fór undir Háls- lón við gerð Kárahnjúkavirkjunar. Að sögn Völundar, sem ötullega hefur mælt fyrir verndun öræfanna og hálendisins, viðaði hann smátt og smátt að sér jurtum og grjóti úr því sem verða átti lónsstæðið meðan á virkj- unarframkvæmdunum stóð. Er jurtunum og grjótinu nú haldið til haga í fyrrnefndum reit til minningar um svæðið sem fór undir vatn. Nefnir hann reitinn „Bjargað úr Hálslóni“. Var m.a. sagt frá því í fjölmiðlum á sínum tíma þegar Völundur flaggaði í hálfa stöng á ársafmæli samningsins um virkjun Kárahnjúka. „Bjargað úr Hálslóni“ PLÖNTUR OG GRJÓT ÚR LÓNSSTÆÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.