Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 11

Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 11
Arfleifð Stelpurnar prúðbúnar í íslenskri hönnun, roðið nýtur sín á breskri grundu. Anna Björk, Sigrún Bjarna- dóttir og Auður Hafstað Ármannsdóttir með drottningasvítuna í bakgrunni á fjölmennum veðreiðum. Um morguninn keyrir fólk fínu bílana sína inn á miðjan leikvanginn sem eru oftar en ekki af gerðinni Rolls Royce. Tjöldum er slegið upp, eins konar himni og þar er skálað í kampavíni og fengið sér snarl. Þegar drottningin mætir og hennar fylgd- arlið um tvö leytið hafa allir komið sér fyrir í stúkunum og bíða eftir að sjá hana aka inn leikvanginn. „Um sex leytið þegar veðreið- arnar eru búnar þá spilar lúðrasveit á palli og allir syngja saman, um 80 þúsund manns. Þjóðhátíð hvað!“ seg- ir Anna hlæjandi. Hún sagði að það sæist ekki mikið vín á fólki þrátt fyrir að það drykki yfir daginn. Ströngum reglum þarf að fylgja um klæðaburð Ekki þýðir að vera klæddur í hvað sem er á Ascot veðreiðunum. Pilsið verður að ná niður á hné, hlýr- arnir á kjólnum verða að vera að minnsta kosti tommu breiðir, höf- uðskrautið á höttunum verður að vera að lágmarki 10 sentimetrar á stysta veg. Það verður að vera alvöru skraut. Karlarnir verða að vera í kjól- fötum og með pípuhatta. Ákveðnar reglur gilda um hvenær þeir mega taka hattinn niður og það er þegar þeir sitja og borða. Íslensk hönnun Arfleifðar úr roði og skinni Þær Anna Björk, Sigrún Bjarnadóttir og Auður Hafstað voru að sjálfsögðu íklæddar íslenskri hönnun frá Arfleifð. „Ég fór með saumaklúbbnum mínum í fyrrahaust á Djúpavog að skoða fötin hjá Ágústu Margréti Arnardóttur hjá Arfleifð. Hún hannar úr fiskiroði, hrein- dýraleðri og fleira. Það barst í tal að ég ætlaði að fara aftur á Ascot og þá bauðst hún til að hanna fyrir okkur. Við vöktum mikla athygli. Ein kona var mjög hissa á því að það væri eng- in vond lykt af okkur þrátt fyrir að vera klæddar í roð.“ Hefur komið sér upp reglu hvernig eigi að veðja rétt „Í fyrra veðjaði ég 30 pundum og vann 11, nú veðjaði ég líka 30 og vann 50 og kom því út á sléttu. Núna er ég komin með reglu hvernig ég veðja þannig að á næsta ári ætti ég vonandi að koma út í plús. Þetta er rosalega gaman, ég þekki íslenska hestinn vel en ekki þessa veð- hlaupahesta. Maður þykist vera mik- ill spekingur og horfir á lendarnar og fæturna á hrossunum. Aðrir velja t.d. eftir litnum á treyju knapans. Töl- fræðin hjálpar manni mikið og ég lít einnig á hana.“ Anna Björk býr og starfar á Reyðarfirði. Hún vinnur í álverinu sem ferliseigandi og kappkostar við að hagræða innan fyrirtækisins. Unn- ustinn starfar eins og stendur í Nor- egi en á fimmtudaginn fara þau sam- an í hattabrúðkaup að breskum sið. Par Anna Björk Hjaltadóttir og Ben Cleugh prúðbúin að breskum sið. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 Á Krúsku færðu: heilsusamlegan mat, kjúklingarétti, grænmetisrétti, fersk salöt, heilsudrykki, súkkulaðiköku, gæðakaffi frá Kaffitár og fallega stemningu. Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI Næring fyrir líkama og sál Nestisgerð fyrir börnin getur reynt á ímyndunaraflið enda geta börnin allt eins fengið leið á sama nestinu eins og við. Smekkur barnanna er líka oft fljótur að breytast en til að matar- smekkur þeirra verði fjölbreyttur og heilbrigður er mikilvægt að fá þau til að smakka sem flest. Tilvalið er að nota afgang af ein- hverju sem barninu finnst mjög gott til að búa til nesti. Kaldur kjúklingur með grænmeti og sósu getur verið dæmi um slíkt. Ef barnið er sér- staklega hrifið af ákveðinni matar- gerð er tilvalið að brjóta upp vanann öðru hvoru með þema. Ef mexíkóskur matur er í uppáhaldi má búa til sam- lokur úr tortillakökum. Asíska mat- argerð má einnig nýta sér, sér- staklega fyrir þau eldri, og gera t.d. gott salat með satay sósu (hnetu- sósu). Kaldar núðlur með fullt af grænmeti og eggjum má líka setja í nestisboxið. Það er um að gera að prófa nýjar hugmyndir. Nesti fyrir börnin Morgunblaðið/Jim Smart Núðlur Ágætar sem öðruvísi nesti. Kjúklingur og núðlur » Veðhlaupið er staðsett í bænum Ascot í Berkshire í Englandi. » 11. ágúst 1711 fór fyrsta veð- hlaupið fram að undirlagi Önnu drottningar. Þá kepptu sjö hestar og báru 76 kg á bakinu. » Upp frá því hafa þær nánast ver- ið haldnar sleitulaust, þó í fyrstu eingöngu fyrir konungborna en seinna varð almúganum gert kleift að horfa á og taka þátt. Þó var tryggt að enginn samgangur milli stéttanna ætti sér stað. » Windsor kastali er stutt frá og lætur breska konungsfjölskyldan sig sjaldan vanta. » Konungsfjölskyldan og fatnaður þeirra sem eru á Royal Enclusure svæðinu vekur meiri athygli fjöl- miðla en sigurvegari veðreiðanna sjálfra. » Hlaupahestarnir eru oftast í eigu fjársterkra aðila og hluta- félaga. 300 ára gömul hefð ROYAL ASCOT VEÐREIÐARNAR Veðreiðar Sigrún, Auður og Ár- mann bíða eftir fyrsta hlaupinu. Svo ku vera að um einn af hverjum 12 notendum Facebook sé ekki til í raun og veru. Þýðir þetta að 83 milljónir af þeim 955 milljónum sem nota síðuna um heim séu ekki raunverulegir eða að þeir brjóti not- endareglur síðunnar. Telur tvöfaldur notendaaðgangur 4,8% af þessum notendum en aug- lýsendur sem skrá sig sem ein- staklinga 2,4%. Er talið að þetta dragi nokkuð úr aðdráttarafli þess að auglýsa á síðunni. Sérstaklega þegar fyrirtæki nýti sér að skýla sér á bak við notendaskráningu sem ein- staklingar. Grannt er fylgst með notkun síðunnar til að sjá hvort slíkir svikarar leynist innan um. Kemur þetta fram á vefsíðu Independent. Tölvur og tækni Óraunverulegir notendur Facebook Ekki er allt sem sýnist. Kokkarnir í hinum svokallaða Chef des Chefs klúbbi koma víða að og hafa eldað fyrir marga pólitíska stjórnendur. En til að bera saman bækur sínar og fá nýjar og frum- legar hugmyndir hittist hópurinn einu sinni á ári í einhverri af borg- um heimsins. Nú í júlí hittust þeir í París en brugðu sér einnig í sömu ferð nokkra daga til Berlínar og hittu þar meðal annars fyrir Angelu Merkel kanslara Þýskalands. Bera kokkarnir mikla ábyrgð enda getur matur haft áhrif á skap fólks og samningaviðræður þá t.d. gengið verr eða betur en ella. Á meðal kokka í hópnum voru Cristeta Comerford frá Hvíta húsinu, Mark Flanagan sem eldar fyrir Englands- drottningu og Hilton Little sem meðal annars hefur eldað fyrir Nelson Mandela. Kokkaþing í París Elda fyrir leiðtoga heimsins AFP Kálhausar Kokkarnir virtust skemmta sér vel á Rungis markaðinum í París.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.