Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 12

Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 Hádegisverðartilboð Tvíréttað í hádegi frá 1.890,- Fljót og góð þjónusta Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is Fylgstu með Ebbu útbúa einfalda og bragðgóða heilsurétti í mbl sjónvarpi á hverjum miðvikudegi. - heilsuréttir Helgi Bjarnason Skúli Hansen Deilur um hver ber ábyrgð á göllum í steypu nýju íþróttamiðstöðvarinnar á Patreksfirði eru ekki til lykta leiddar. Dómkvaddir mats- menn eru að meta ástand hússins. Ný og glæsileg íþróttamiðstöð, Bratta- hlíð, var tekin í notkun á Patreksfirði á árinu 2005. Fljótlega komu í ljós gallar í steypu sundlaugarinnar. Bæjaryfirvöld létu hönnuði, eftirlitsaðila og byggingarverktaka vita en deilur urðu um ábyrgð á tjóninu. Meðal ann- ars vísaði byggingastjórinn, sem er fram- kvæmdastjóri verktakafyrirtækisins og fram- leiðandi steypunnar, á eftirlitsmann bæjarins. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða fyrir fjórum árum tillögu þáverandi meirihluta bæjarstjórnar um að fá óháðan aðila til að taka út undirbúning, hönnun, eftirlit og framkvæmd við byggingu hússins. Úlfar Thoroddsen, sem þá var forseti bæjar- stjórnar, segir að niðurstaða athugunar hafi leitt í ljós að steypan hafi ekki verið af þeim styrk sem átti að vera. Þetta hafi verið tækni- leg athugun og henni vísað til byggingarfull- trúa til úrvinnslu. Málið hefur verið til umfjöllunar hjá Vesturbyggð á undanförnum mánuðum en ekki sést bókað um það í fundargerðum. Ást- hildur Sturludóttir bæjarstjóri segir að dóm- kvaddir matsmenn séu að meta ástand húss- ins og hvað valdi því að steypan sé að skemmast. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um það. Hafa varann á Framkvæmdir eru hafnar við endurbygg- ingu á gamla sláturhúsinu á Patreksfirði og að breyta því í hótel. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er sérstaklega hugsað til reynslunnar af sundlauginni við kaup á steypu til þess sem þar þarf að steypa. Matsmenn meta steypuskemmdir  Miklar steypuskemmdir komu fram í nýlegri íþróttamiðstöð á Patreksfirði  Deilur hafa verið um ábyrgð á tjóni sveitarfélagsins  Málið er nú rekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða Morgunblaðið/Sigurður Már Jónsson Skemmdir Sprungur sjást víða á veggjum sundlaugar íþróttamiðstöðvarinnar. Þeir Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar ÍBV í Vest- mannaeyjum, og Tryggvi Már Sæ- mundsson, framkvæmdastjóri fé- lagsins,munu ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu í nefndinni. Segjast tvímenningarnir efast um velvild og traust samfélagsins í Vest- mannaeyjum til að stýra hátíðinni áfram. „Hátíðin hefur farið í gegnum miklar breytingar síðan við tókum við. Breytingarnar hafa margar hverjar verið umdeildar en ákvarð- anir ávallt teknar með hagsmuni há- tíðarinnar að leiðarljósi. Okkar ákvörðun að hætta núna er einnig tekin af þeim ástæðum, við teljum mikilvægt að nefndin hafi traust og velvild mikils meirihluta samfélags- ins.“ segir Tryggvi Már. Áhrif á samfélagið og ÍBV Á undanförnum árum hefur þjóðhátíð stækkað að umfangi og gestum fjölgað, Tryggvi segir að hluti bæjarbúa sé ekki sáttur við þá þróun. „Við höfum talið það stolt okkar að fleiri vilji heimsækja okkur og upplifa hátíðina sem við teljum mjög sérstaka. Ekki má gleyma því að þetta styrkir ekki bara ÍBV held- ur alla verslun og þjónustu í bænum. Íbúafjöldinn hér rúmlega þrefald- ast, jafnvel í 4-5 daga. Tekjuflæð- ið gerir mörgum verslunar- og þjónustuaðilum í bænum kleift að hafa opið allan ársins hring og hefur því áhrif á þjónustustig við bæjarbúa.“ Að mati Tryggva þarf ÍBV sem heldur hátíðina að ræða við sam- félagið og ákveða í hvaða átt skal stefna. „En þá þarf að taka með í reikninginn áhrifin á ÍBV og sam- félagið allt. Ef ætti að draga úr um- fangi hátíðarinnar gæti það haft ým- is áhrif á félagið, t.d. hækkandi æfingagjöld yngri kynslóðarinnar og minni tekjur meistaraflokka félags- ins. Að mínu mati gengur ekki til lengdar að samfélagið standi ekki á bak við jafn mikilvæga hátíð og þjóðhátíð er fyrir bæjarfélagið.“ Tryggvi vill koma á framfæri þökk- um til allra samstarfsaðila þjóðhátíð- ar í gegnum tíðina og segir að án þeirra hefði hún ekki gengið jafn vel og raun ber vitni. heimirs@mbl.is Hætta störfum í þjóðhátíðarnefnd  Segja skorta á traust samfélagsins Tryggvi Már Sæmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.