Morgunblaðið - 08.08.2012, Qupperneq 17
Ljósmynd/Bryndís Magnúsdóttir
Sá stóri Haukur Böðvarsson hampar hér stærsta urriða sem veiðst hefur á
stöng í Veiðivötnum. Fiskurinn var 16,4 pund og 83 cm langur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Róbert Þórhallsson lagði í gær upp
í hringferð um landið á reiðhjóli til
að safna áheitum fyrir Styrkt-
arfélag krabbameinssjúkra barna
(SKB). Ferðalagið hófst hjá skrif-
stofu SKB í Hlíðasmára í Kópavogi
og fylgdust félagsmenn og aðrir
stuðningsmenn með Róberti halda
af stað. Baldvin Sigurðsson, félagi
Róberts, fylgir honum eftir á bifreið
sem Hjólað til góðs, en svo nefnist
átakið, hefur að láni en fjölmörg
fyrirtæki hafa styrkt framtakið með
ýmsum varningi og búnaði auk þess
sem fótboltakappinn Gylfi Sigurðs-
son gefur átakinu áritaða Totten-
ham-treyju.
Áhugasamir geta fylgst með ferð
Róberts á facebooksíðu ferðarinnar,
www.facebook.com/1332km.
Hægt er að styrkja átakið með
símtali eða sms-skilaboðum; 1.000
krónur í 903-3001 og 3.000 krónur í
903-3003.
Hjólar til góðs um landið
Safnar áheitum fyrir krabbameinssjúk börn í hringferð
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Góð brauð - betri heilsa
Handverk í 18 ár
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 10-18, LAUGARDAGA: LOKAÐ
MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM
SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR
TRAU
ST
OG G
ÓÐ
ÞJÓN
USTA
Í YFIR
15 ÁR
T I L B O Ð
GLERAUGU
FRÁ 19.900,-
DAGLINSUR
FRÁ 2.500,-
PAKKINN
Fimmtudaginn 9. ágúst kl. 22.00
stendur Samstarfshópur um frið
fyrir árlegri kertafleytingu við
Minjasafnstjörnina á Akureyri til
að minnast fórnarlamba kjarn-
orkusprenginganna í Japan 1945.
Ávarp flytur Þórarinn Hjartarson,
formaður Samtaka hernaðar-
andstæðinga á Norðurlandi. „Sam-
starfshópur um frið hvetur fólk til
að sýna hug sinn í verki og fjöl-
menna,“ segir í tilkynningu.
Kertafleyting
UÍA, í samstarfi við ferðaþjónustu-
fyrirtækið Austurför og með stuðn-
ingi Fljótsdalshéraðs og Fljótsdals-
hrepps, stendur fyrir
hjólreiðakeppninni Tour de Orm-
urinn sunnudaginn 12. ágúst næst-
komandi. Boðið verður upp á 68 og
103 kílómetra leiðir.
Keppendur verða ræstir úr Hall-
ormsstaðaskógi klukkan 9:00 að
morgni og hjólað verður þaðan út í
Egilsstaði, norður yfir Fljót, upp
Fellin og inn í Fljótsdal. Þar velja
menn um lengri eða styttri hring en
endamarkið verður í Hallorms-
staðaskógi.
Styttri leiðin, 68 km hringur,
verður bæði í boði fyrir ein-
staklinga eða lið.
Hörkutólahringurinn, sem er 103
kílómetrar, er aðeins fyrir ein-
staklinga.
Nánari upplýsingar veitir skrif-
stofa UÍA eða í gegnum tölvupóst
uia@uia.is Hægt er að fylgjast með
helstu fréttum af keppninni á
Facebook-síðu hennar.
Hjólreiðakeppnin
Tour de Ormurinn
Hinn árlegi sögudagur á Sturlungaslóð í Skagafirði
verður laugardaginn 11. ágúst nk. Í ár verður Björn Vig-
fússon, sögukennari í MA, með fyrirlestur um Guðmund
góða biskup í Hóladómkirkju og Laufey Guðmundsdóttir
syngur. Dagskráin er í samvinnu við Hólahátíð sem er
sama dag. Afþreying fyrir börn verður á sama tíma. Bú-
ið er að setja upp söguskilti við Víðines í Hjaltadal sem
verður kynnt til sögunnar af Sigríði Sigurðardóttur,
safnstjóra í Glaumbæ, eftir dagskrána í kirkjunni. Um
kvöldið verður Ásbirningablót haldið í gestamóttöku til-
vonandi Kakalaskála, sem Sigurður Hansen er að smíða
í Kringlumýri. Þar koma fram Björg Baldursdóttir, Kristín Halla Bergs-
dóttir, Agnar Gunnarsson, Jói í Stapa, Siggi á Ökrum og Sigurður Hansen
ásamt fleiru góðu fólki, segir í tilkynningu. Hótel Varmahlíð sér um veit-
ingarnar.
Sögudagur á Sturlungaslóð í Skagafirði
Hóladómkirkja
Hið árlega borgarskákmót fer fram
þriðjudaginn 14. ágúst n.k., og
hefst það kl. 16:00.
Mótið fer fram venju samkvæmt í
Ráðhúsi Reykjavíkur og standa
Reykjavíkurfélögin, Taflfélag
Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir,
að mótinu, eins og þau hafa gert
síðustu ár.
Gera má ráð fyrir að margir af
sterkustu skákmönnum þjóð-
arinnar taki þátt í því eins og und-
anfarin ár. Skákmenn eru hvattir
til að skrá sig sem fyrst eftir að
opnað verður fyrir skráningu, segir
í tilkynningu. Mótið er öllum opið
og er þátttaka ókeypis en skráning
fer fram á skák.is
Borgarskákmótið