Morgunblaðið - 08.08.2012, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012
Eldfjallið Tongariro á Nýja-
Sjálandi gaus í fyrrinótt eftir að
hafa legið í dvala í rúma öld. Fjallið
spúði ösku sem raskaði innanlands-
flugi, auk þess sem vegir lokuðust.
Tongariro er á Norðurey og gaus
síðast árið 1897. Eldfjallið var not-
að sem fyrirmynd að hinu illa
Dómsdagsfjalli í kvikmyndunum
um Hringadróttinssögu.
Lögreglan sagði að eldgosið
hefði hvorki valdið mannskaða né
eignatjóni. Askan frá eldfjallinu
var í um 20.000 feta hæð, eða 6.100
metra, og aflýsa þurfti tugum ferða
í innanlandsflugi. Hún raskaði þó
ekki flugi farþegaþotna í milli-
landaflugi þar sem þær fljúga yfir
20.000 fetum.
Enginn þurfti að flýja heimili sitt
en yfirvöld hvöttu fólk til að halda
kyrru fyrir heima hjá sér og þétta
glugga vegna öskufallsins.
Nýja-Sjáland er á flekamótum
umhverfis Kyrrahafið sem oft eru
kölluð „Eldhringurinn“. Þar eru
mörg virk eldfjöll og mikil skjálfta-
virkni.
Spúði ösku eftir að
hafa sofið í rúma öld
AFP
Öskufall Bóndi gefur hrossum hey á svæði sem þakið var ösku eftir gosið.
Tugir manna þurftu að flýja heimili
sín eftir miklar rigningar í Buske-
rudfylki í sunnanverðum Noregi í
fyrrinótt. Miklar skemmdir urðu á
húsum og mannvirkjum og víða
eyðilögðust vegir. Ekki er vitað til
þess að fólk hafi slasast.
Vatn flæddi inn í kjallara húsa og
er talin hætta á að hús hrynji ef
undirstöður þeirra gefa sig. Fólk er
varað við að vera á ferðinni á þess-
um slóðum og vegir eru víða lok-
aðir. Í bænum Mjøndalen flæddi inn
á lögreglustöð, íþróttamiðstöð,
fjölda verslana og íbúðir.
NOREGUR
Miklar skemmdir
vegna flóða
Aukin áfengisneysla í Danmörku
hefur orðið til þess að innlögnum á
sjúkrahús vegna lifrarsjúkdóma hef-
ur fjölgað um 50% á tíu árum.
„Það skýtur manni skelk í bringu
að sjá þessa tölu,“ hefur danska
blaðið JydskeVestkysten eftir Kar-
sten Lauritsen, yfirlækni á Háskóla-
sjúkrahúsinu í Óðinsvéum. „Þessi
mikla fjölgun stafar af því að
áfengisdrykkjan er alltaf að aukast.“
Lauritsen segir að skorpulifur sé
„lífshættuleg“ og dánarhlutfallið sé
hátt meðal þeirra sem fái skjúkdóm-
inn, einkum ef þeir halda áfram að
drekka áfengi. „Á ári hverju deyja
um 2.000 Danir af völdum sjúkdóma
sem tengjast áfengisdrykkju.“
Yfirlæknirinn telur að fjölgunin á
innlögnum sé þó „aðeins toppurinn á
ísjakanum“, að sögn JydskeVest-
kysten. „Sagan sýnir að útbreiðsla
sjúkdóma, sem tengjast áfengis-
drykkju, eykst í réttu hlutfalli við
aukna áfengisdrykkju. „Frá árinu
1960 til 1980 jókst áfengisneyslan í
Danmörku úr sex lítrum í tíu.“
bogi@mbl.is
Innlögnum fjölgaði
um 50% á tíu árum
Sífellt fleiri Danir með skorpulifur
Rússneskir saksóknarar kröfðust í
gær þriggja ára fangelsisdóms yfir
þremur konum í pönksveitinni Pussy
Riot fyrir mótmæli gegn Vladímír
Pútín Rússlandsforseta í dómkirkju
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í
Moskvu. Saksóknararnir sögðu að
konurnar hefðu gerst sekar um svo
alvarlegan glæp að ekki yrði hjá því
komist að einangra þær frá sam-
félaginu. Verjendur kvennanna
kröfðust þess að þær yrðu sýknaðar.
Konurnar voru ákærðar fyrir
óspektir vegna trúarhaturs og há-
marksrefsingin fyrir slík lögbrot er
sjö ára fangelsi.
Stuðningsmenn rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar kröfðust þess í
gær að fyrirhugaðir tónleikar banda-
rísku söngkonunnar Madonnu í
Moskvu og Pétursborg yrðu bann-
aðir eftir að hún lét í ljósi stuðning
við konurnar og kvaðst vona að þær
yrðu látnar lausar.
Krefjast þriggja ára
dóms yfir Pussy Riot
Vilja tónleikabann á Madonnu
AFP
Fyrir rétt Lögreglumenn færa eina kvennanna í Pussy Riot í dómhús í
Moskvu. Hljómsveitin var ákærð fyrir mótmæli gegn Pútín í kirkju.
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is
– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA :
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
20.ágúst.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út sérblað um
Heilsu og Lífstíl föstudaginn 24.ágúst.
• Ný og spennandi námskeið
í heilsuræktarstöðvum.
• Hreyfing og líkamsrækt.
• Hvað þarf að hafa í ræktina.
• CrossFit
• Þríþraut.
• Reiðhjól.
• Skokk og hlaup.
• Dans og heilsurækt.
• Andleg vellíðan.
• Svefn og þreyta.
• Skaðsemi reykinga.
• Fljótlegar og hollar uppskriftir.
• Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi efni.
SÉRBLAÐ
MEÐAL EFNIS:
Þetta er tíminn til að huga að heilsu
sinni og lífstíl og stefna í nýjar áttir á því
sviði. Í blaðinu Heilsa og lífsstíll verður
kynnt fullt af þeim möguleikum sem í
boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak
og bættan lífsstíl haustið 2012.