Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 27

Morgunblaðið - 08.08.2012, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2012 ✝ Guðrún Ólafs-dóttir fæddist í Reykjavík 21. jan- úar 1932. Hún lést í Reykjavík 26. júlí 2012. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Jó- hannsson, tré- smíðameistari frá Kirkjubóli í Múla- sveit, f. 15. sept- ember 1897, d. 1983, og Ingunn Eiríksdóttir, húsmóðir frá Eyrarbakka, f. 26. nóvember 1908, d. 1995. Systk- ini hennar: Svanhildur, f. 1930, d. 2001. Guðmundur Jóhann, f. 1941. Eiginmaður Guðrúnar var Ólafur Helgi Helgason, bifreiða- stjóri og sjómaður, f. 7. október 1925 í Kollsvík, Rauðasands- hreppi. Hann lést 21. maí 1986. Foreldrar hans voru Ásbjörn Helgi Árnason, f. 13. apríl 1889, d. 1965, og Sigrún Öss- urardóttir, f. 6. maí 1898, d. árið 1977. Guðrún og Ólafur eignuðust sex börn. 1) Halldór, f. 26. októ- ber 1952, kvæntur Gyðu Þór- isdóttur, f. 1959. Börn: a) Guð- rún Björg, f. 1982, maki Eyþór Jóhann, f. 13. október 1965, gift- ur Sigríði Einarsdóttur, f. 1964. Börn: a) Andrea Diljá, f. 1982, maki Hafþór Þórarinsson, f. 1976. b) Hrefna, f. 1991. c) Bragi, f. 1992. Dúnna, eins og Guðrún var ávallt kölluð, ólst upp á Óðins- götunni í Reykjavík og gekk í Miðbæjarskólann og lauk gagn- fræðaprófi frá Ingimarsskóla. Hún starfaði sem ung stúlka í Haraldarbúð í Reykjavík. Dúnna giftist Ólafi 24. janúar 1953. Dúnna sinnti húsmóður- störfum af elju og myndarskap. Stórt og barnmargt heimili og margir aufúsugestir komu á heimili Dúnnu og Óla. Samhliða húsmóðurstörfum vann Dúnna árin 1972-1987 við ræstingar hjá SÍF. Frá árinu 1986 starfaði hún hjá Bændasamtökum Íslands við símavörslu þar til hún lét af störfum árið 2002, sjötug að aldri. Dúnna og Ólafur bjuggu í Reykjavík. Þau hófu búskap í húsi foreldra hennar í Engihlíð 12, þar til þau fluttu í nýbyggða íbúð sína á Rauðalæk 53. Lengst af bjuggu þau með börnum sín- um í Fellsmúla 14 og síðar í Heiðnabergi 8. Síðustu ár bjó Dúnna í Lækjasmára 4, Kópa- vogi. Guðrún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 8. ágúst 2012, og hefst athöfnin kl. 15. Helgi Úlfarsson, f. 1983. Barn þeirra er Helga Lilja, f. 2007. b) Ragnheið- ur, f. 1986. c) Þórir Ólafur, f. 1990. 2) Inga, f. 23. janúar 1954, gift Guð- mundi Jónssyni, f. 1950. Börn: a) Jón, f. 1980. b) Ívar, f. 1983. c) Ólafur Helgi, f. 1989. 3) Sigrún, f. 27. maí 1956, gift Guð- mundi Inga Ásmundssyni, f. 1955. Börn: a) Ólafur, f. 1984, maki Vaka Kristín Sigurjóns- dóttir, f. 1984. b) Margrét, f. 1990, maki Ásbjörn Hagalín Pétursson, f. 1989. c) Ingi Steinn, f. 1996. 4) Ómar Örn, f. 17. ágúst 1957, kvæntur Sigur- björgu Öldu Guðmundsdóttur, f. 1956. Börn: a) Óskar, f. 1985, maki Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1986. b) Ingvar, f. 1989, maki Ið- unn Arna Björgvinsdóttir, f. 1989. c) Gunnar, f. 1995. 5) Gunnar, f. 9. október 1962, kvæntur Brynhildi Ásgeirs- dóttur, f. 1965. Börn: a) Hrannar Darri, f. 1993. b) Katrín Inga, f. 2004. c) Pétur Óli, f. 2007. d) Gunnar Ingi, f. 2008. 6) Ólafur Það er komið að kveðjustund. Dúnna tengdamóðir mín lést nokkuð óvænt hinn 26. júlí sl. Undanfarna daga hefur hugurinn reikað til baka um þann tíma sem við höfum þekkst. Samband okk- ar var alltaf gott og náið. Við átt- um margar góðar stundir þar sem oft var stutt í hlátur og glens. Eftir að Dúnna varð ekkja fór hún á hverju ári með okkur Hall- dóri vestur í Örlygshöfn. Þar fannst henni gott að koma og vera. Ekki var hún síður ánægð ef hægt var að koma við á Kirkju- bóli á leiðinni vestur. Ef það var ekki hægt var ávallt stoppað á Klettshálsinum og horft út eftir Kvígindisfirðinum í átt að Kirkjubóli. Dúnna hafði gaman af að ferðast og þurfti ekki mikinn fyr- irvara á ef henni var boðið í ein- hverja ferð. Sumarið 2006 fórum við tvær saman til Kaupmanna- hafnar til að heimsækja Guðrúnu og Eyþór. Sú ferð var afar vel heppnuð og gaf henni mikið. Kaupmannahöfn var í miklu uppáhaldi hjá Dúnnu og sagði hún oft söguna af því þegar hún fór ung með skipi þangað og dvaldi hjá Siggu frænku sinni. Dúnna átti stóran og fríðan hóp afkomenda. Hún fylgdist alltaf vel með hvernig gekk hjá barnabörnunum. Henni var um- hugað um að bæði börn og barna- börn næðu sér í menntun sem þeim gagnaðist og hefðu áhuga á. Dúnna var sjálfstæð kona. Hún vildi sjá um sig sjálf, ekki vera háð öðrum og geta búið í sinni íbúð sem lengst. Þrátt fyrir minna þrek og að minnið væri oft að angra hana átti hún marga góða daga núna í sumar. Hún naut sín fram á síð- asta dag Minning hennar lifir áfram meðal okkar um ókomin ár. Gyða Þórisdóttir. Þakklæti er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég minnist tengdamóður minnar. Hún var heilsteypt kona og trú sínum góðu gildum. Kona sem kom á legg sex börnum með já- kvæðni, iðjusemi og jafnaðar- geði. Þegar ég hitti hana fyrst tók á móti mér kona með innilegt bros og spurði mig hispurslaust um mína hagi. Brosið mætti mér alltaf þegar ég hitti hana. Það var hlutverk Dúnnu að sjá um heimilið og annast börnin á uppvaxtarárum þeirra. Það gerði hún af miklum myndarskap og alúð. Stórt heimilið var ávallt snyrtilegt. Þó hún nefndi það aldrei þá var það einhvern veginn eðlilegt að ganga vel um í nálægð hennar. Þannig var hennar hátt- ur. Bakkelsið aldrei langt undan og ófáar ömmupönnukökurnar sem afkomendurnir hafa þegið hjá henni. Það var Dúnnu eðlislægt að vera gefandi fremur en þiggj- andi. Hún var ævinlega tilbúin til þess að aðstoða og gera vel við sína samferðamenn en fannst að sama skapi alger óþarfi að vel væri gert við sig. Með tímanum lærðist mér þó hvernig ég gæti haft áhrif á hana. Hún var nefni- lega mjög jákvæð og viljug til að gera með okkur skemmtilega hluti eins og að ferðast. Á vorin stundaði Ólafur veiðar á grásleppu frá æskustöðvum sínum í Örlygshöfn og þar komu þau hjónin sér upp litlu húsi. Þó húsið hafi fyrst í stað verið tengt lífsviðurværi fjölskyldunnar og mikilli vinnu breyttist það síðar í griðastað fjölskyldunnar. Stað þar sem gott er að koma á og njóta einstakrar náttúru Vest- fjarða. Best var þó að koma þeg- ar Dúnna var heima því henni tókst ævinlega að töfra fram veislu og skapa skemmtilega stemmingu þótt þröngt væri set- ið. Sveitungarnir litu við í kaffi og spjall ef þeir vissu að Dúnna var á staðnum. Dúnna hafði yndi af því að ferðast og er mér sérstaklega minnisstæð haustferð sem við fórum með tengdaforeldrunum í Móseldalinn fyrir mörgum árum. Að ferðast um þetta svæði á upp- skerutíma í góðu veðri er í sjálfu sér einstakt en minnisstæðast er þó sýn þeirra á mannlífið á svæð- inu og tenging við sögu þeirra kynslóðar. Rósemi þeirra hjóna og einlægur áhugi á því sem fyrir augun bar var lærdómsríkt fyrir unga fólkið. Dúnnu leið afskaplega vel í hita og sól. Þegar við dvöldum í Flórida heimsótti hún okkur í sumarleyfinu sínu. Sundlaugar- bakkinn var hennar uppáhalds- staður þar sem krossgátur voru ráðnar, blöð og bækur lesnar. Þar leið henni best þó við drægj- um okkur í hlé. Þegar frumburð- urinn Ólafur kom heim af leik- skólanum vék hann vart frá ömmu sinni sem gætti hans á sinn einstaka hátt. Þegar Ólafur tengdafaðir minn féll frá fór Dúnna að vinna við símavörslu hjá Bændasam- tökunum. Þar líkaði henni mjög vel að vinna og kynntist mörgu góðu fólki. Með samtökunum fór hún í nokkrar eftirminnilegar ferðir um landið sem og erlendis. Hún hafði stundum orð á því hve lánsöm hún hefði verið að fá að vinna á svo góðum vinnustað. Að leiðarlokum vil ég þakka tengdamóður minni fyrir sam- fylgdina að sinni og sérstaklega þann hlýhug og væntumþykju sem hún bar til barnanna. Öllum ættingjum og vinum sendi ég samúðarkveðjur. Guðmundur Ingi Ásmundsson. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum hana ömmu okkar í hinsta sinn. Frá því að við systkinin munum eftir okkur hef- ur amma skipað stóran sess í lífi okkar og dýrmætar minningar um samverustundir með henni eru ótal margar. Það var alltaf gaman að kíkja í heimsókn til hennar ömmu þar sem hún tók alltaf á móti okkur með bros á vör í Heiðnaberginu og síðar í Lækjasmáranum. Þar skemmt- um við okkur oftar en ekki við að spila spil, leysa krossgátur eða spjalla saman um daginn og veg- inn á milli þess sem við gæddum okkur á gómsætum pönnukökum eða öðru góðgæti sem amma töfr- aði fram fyrir okkur. Amma hafði gaman af því að segja frá og höfðum við systkinin ávallt gaman af því að hlusta á frásagnir hennar frá gamalli eða nýliðinni tíð. Dugnaðarforkur var hún mikill og heilsuhraust og þótti okkur mikið til koma hinna löngu göngutúra sem hún brá sér stundum í, jafnvel á milli bæjar- hluta. Síðastliðin ár fór þó minnið að bresta og ellina bar að dyrum. Amma tókst þó á við það af miklu æðruleysi og dugnaði og hélt hún góðri heilsu og lífsgleði til síðasta dags. Á seinni árum reikaði hug- ur hennar æ oftar til eldri tíma og má segja að við höfum kynnst nýjum hliðum á ömmu og öðlast kærkomna innsýn í lífshlaup hennar fyrir okkar tíð. Síðastliðna daga höfum við rifjað upp þær fjölmörgu og góðu samverustundir sem við áttum saman með ömmu. Þá er okkur efst í huga öll ferðalögin sem við fórum saman í, matarboðin hjá okkur í Dalhúsunum sem og fjöl- mörg önnur boð innan stórfjöl- skyldunnar. Það er óhætt að lýsa ömmu sem einstaklega góðri og glaðlyndri konu sem þótti vænt um fólkið í kringum sig. Hún var ein af þeim manneskjum í lífi okkar sem var alltaf hægt að treysta á og stóð skilyrðislaust við bakið á okkur í öllu því sem við höfum tekið okkur fyrir hend- ur. Nú hefur hún amma kvatt okkur en minningarnar lifa áfram um ókomna tíð. Við kveðjum þig kæra amma með kinnar votar af tárum á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Við viljum þakka þér elsku amma fyrir allar þær góðu stund- ir sem við áttum saman. Hvíl í friði. Þín barnabörn, Ólafur, Margrét og Ingi Steinn. Nú sitjum við saman við gamla eldhúsborðið hennar ömmu og rifjum upp góðar minningar. Amma Dúnna hefur alltaf verið stór hluti af lífi okkar systkin- anna og við erum svo heppin að hafa átt margar góðar stundir með henni. Þessar minningar hafa hlýjað okkur síðustu daga þegar við erum að gera okkur grein fyrir því að hún sé í raun farin. Það sem kemur fyrst upp í hugann eru allar ferðirnar vestur í Örlygshöfn. Hún var oftar en ekki búin að baka hveitikökur og hjónabandssælu sem var ljúft að gæða sér á í nestisstoppum enda var leiðin vestur nokkuð löng. Hún gat frætt okkur um fyrstu ferðina sína vestur á Kirkjuból og þegar hún fór fyrst með pabba okkar lítinn í Örlygshöfn. Við átt- um oft mjög notalegar stundir með henni í Dúnnuhúsi þar sem spilað var fram eftir kvöldi en hún lagði mikið upp úr því að kenna okkur ýmis spil. Við minnumst þess þegar amma átti heima í Heiðnaberg- inu en þar var alltaf vel tekið á móti okkur og sérstaklega var gaman að gista um helgar hjá henni. Þá var farið í sundlaugina hjá Dóru eða í strætóferð niður í bæ. Amma bakaði bestu pönnu- kökur í heimi og voru þær vin- sælar hjá öllum börnunum í fjöl- skyldunni. Hún var alltaf til í að taka þátt og fylgdist hún vel með tómstundum okkar og námi. Amma var mjög góð kona en umfram allt skemmtileg og fynd- in. Við eigum eftir að sakna þess að fá ömmu í heimsókn og eiga fleiri stundir með okkur. Guðrún Björg, Ragnheiður og Þórir Ólafur. Nú erum við búin að kveðja ömmu Dúnnu og segja bless við hana í síðasta sinn. En við vitum að hún verður alltaf með okkur, horfir til okkar frá himnum og fylgist með okkur. Amma Dúnna naut þess að vera með fjölskyldunni sinni og vildi kynnast barnabörnunum, vera með þeim og fylgjast með þeim vaxa og dafna. Hún talaði alltaf einstaklega jákvætt um barnabörnin og sá ávallt hið góða í þeim og með skemmtilegri glettni varð allt að leik. Það eru svo margar fallegar minningar og ófáar stundir sem við áttum saman. Gönguferð í El- liðaárdal á nýársmorgun og snjór yfir öllu, það var gaman að hafa ömmu með. Amma að lesa fyrir okkur og dró alla að sér í fangið, hún kenndi okkur svo vel að hlusta. Katrín Inga að gista hjá ömmu, notaleg stund í rólegheit- um, að lesa, spila á spil eða fara út og gera eitthvað saman. Góðar minningar eru frá tímanum sem Hrannar Darri og pabbi bjuggu hjá ömmu Dúnnu, alltaf var Gaurinn spilaður fyrir svefninn og ófá skiptin sem það var rifjað upp. Pabbi, mamma, amma, börn og bíll á ferð í Portúgal, amma Dúnna naut þess að vera í sól og hita. Alltaf til staðar og alltaf boðin og búin að aðstoða… „ef ég get eitthvað gert“. Þú áttir alltaf kex í skápnum og bauðst upp á malt með, það þótti okkur svo gott. Bless elsku amma Dúnna, við söknum þín mikið, og takk fyrir allt það góða og fallega sem þú laðaðir fram. Takk fyrir glettn- ina, takk fyrir hvatningu og að hjálpa okkur að skilja hvað það er sem skiptir máli í lífinu. Hrannar Darri, Katrín Inga, Pétur Óli og Gunnar Ingi Gunnarsbörn. Guðrún Ólafsdóttir Hún amma er farin, afi sótti hana einn morguninn. Hún var farin að bíða eftir því að komast til hans og nú er biðin á enda. Ég er ekki í nokkrum vafa um að nú eldar hún fyrir hann sig- inn fisk og selspik og grjóna- graut í eftirrétt. Þau hafa alltaf átt stóran hluta af hjarta mínu og ég veit að það var gagn- kvæmt. „Elsku drengurinn“ sagði amma alltaf með tilfinn- ingu. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég fór að fara til ömmu og Anna Guðrún Halldórsdóttir ✝ Anna GuðrúnHalldórsdóttir fæddist á Bæ á Sel- strönd 11. október 1922. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 26. júní síðast- liðinn. Minningarathöfn um Önnu Guðrúnu fór fram frá Drangsneskapellu 28. júlí 2012. afa í sveit. Sendur með Strandarút- unni norður og stóra Velamoshjólið mitt bundið framan á. Strax eftir skóla norður og suður að hausti. Nýburstak- lipptur og í nýjum gúmmískóm. Eftir það varð ekki aftur snúið, flest sumrin fram á unglingsald- ur var ég á Burstafelli. Ég er og verð alltaf Stranda- maður, það er ömmu og afa að þakka. Ekki Reykvíkingur eða Húnvetningur þó að þar sé heimili mitt. Nei, Strandamaður og það segi ég með stolti. Þær eru margar minningarn- ar. Rifjast upp á stundum sem þessum. Það var eitt sem aldrei klikkaði, þegar ég kom norður á Burstafell, það var alltaf nýbök- uð brúnterta með bananakremi í búrinu, jafnvel lagkaka og ný- bakaðar kleinur. Amma gerði heimsins bestu kleinur og er uppskriftin hennar búin að dreif- ast um allan heim. Góður var tíminn hjá ömmu og afa. Þær voru ekki margar kvaðirnar sem á mig voru settar, en í fyrstu var ég kúasmali þorpsbúa og hænsnahirðir ömmu. Hænur héldu amma og afi og á sumrin var hænsnakof- inn færður út á Mýrar og þá var ég sendur í göngutúr með mat handa hænunum. Það fannst mér hin mestu leiðindi að þurfa að gera, vildi frekar vera á bryggjunni og veiða kola eða marhnút. Stráksi fór samt með fötuna flaksandi, fulla af afgöng- um fyrir hænurnar. En auðvitað gerði ég allt fyrir ömmu og sagði aldrei nei við hana. Hún þurfti aldrei að byrsta sig. Skemmtilegur tími var hey- skapur á Mýrunum. Heyjað var fyrir nokkrar kindur sem amma og afi héldu og líka kúna. Og svo auðvitað líka fyrir hana Golsu mína. Hugsað til baka sé ég fyrir mér afa og Frigga að slá með orfi og ljá. Nálægt þeim tækjum mátti ég aldrei koma. Það var of hættulegt. Eitt sinn sagði ég ömmu að ég hefði skráð mig í Framsóknarflokkinn, þá sagði hún: „Elsku drengurinn, það er allt mér að kenna, ég kenndi þér að lesa á Tímann.“ Góðir tímar sem mér þykir mjög vænt um og munu aldrei gleymast. Ég hitti ömmu nokkrum dög- um fyrir andlát hennar og lá vel á henni. Ég sagði henni að hún ætti marga afkomendur og að hún skilaði af sér góðu „búi“ góðra og mannvænlegra barna sem og fallegra og góðra barna- barna og barnabarnabarna, það þótti henni greinilega vænt um að heyra. Farðu í friði amma mín og takk fyrir allar góðu minningarnar. Þær munu aldrei gleymast. Höskuldur Birkir Erlingsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.