Morgunblaðið - 12.09.2012, Page 14

Morgunblaðið - 12.09.2012, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2012 Svalaskjól -sælureitur innan seilingar Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Hentar mjög vel íslenskri veðráttu BAKSVIÐ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætluð 573,1 milljarður kr. á næsta ári og hækka þau um 13,7 milljarða frá endurskoðaðri áætlun um útkomu ríkisfjármálanna á þessu ári. Heild- artekjur ríkissjóðs á árinu 2013 eru áætlaðar verða 570,3 milljarðar og er reiknað með að þær aukist um 36,8 milljarða frá yfirstandandi ári. Þar af aukast skatttekjur ríkisins um 29 milljarða milli ára. Þessi markmið koma fram í fjár- lagafrumvarpi ársins 2013, sem út- býtt var á Alþingi í gær. Halli verður á heildarjöfnuði rík- issjóðs, þ.e. mismun heildartekna og gjalda upp á 2,8 milljarða kr. eða sem svarar til 0,1% af vergri landsfram- leiðslu. Svonefndur frumjöfnuður ríkissjóðs, þ.e. afkoman að frátöldum vaxtajöfnuði, verður jákvæður um 60 milljarða gangi eftir áætlanir sem fjárlagafrumvarpið er byggt á. Oddný G. Harðardóttir, fjármála- ráðherra, kynnti frumvarpið á fréttamannafundi í gær og sagði þáttaskil eiga sér stað í þróun rík- isfjármálanna og nú væri siglt örugglega upp úr kreppunni. Lagði hún áherslu á að ekki væri gert ráð fyrir miklum skattkerfisbreytingum á næsta ári og þau aðhaldsmarkmið sem sett hafa verið væru hófleg. Er m.a. byggt á því að auknir skattar og tekjur af auðlindum skili sér í ríkissjóð á komandi fjárlagaári. Vega þar þyngst tekjur af veiðileyfa- gjaldi sem áætlað er að skili 14,9 milljörðum í ríkissjóð á rekstrar- grunni á næsta ári. Gengið er út frá að áform um hækkun virðisauka- skatts á hótel- og gistiþjónustu úr 7% í 25,5% gangi eftir og taki gildi frá og með 1. maí 2013. Sú hækkun á að skila 2,6 milljörðum í ríkissjóð á næsta ári. Fram kom í máli fjármála- ráðherra að eðlilegt væri að veita ferðaþjónustunni svigrúm til að laga sig að hækkuninni. 88 milljarða vaxtakostnaður Ráðuneytum og stofnunum eru sett sparnaðarmarkmið á næsta ári um 1,75% aðhald af veltu í almennri stjórnsýslu, eftirliti og þjónustu, 1,2% sparnað af veltu bótakerfa og sjúkratrygginga, 1% af veltu háskóla og framhaldsskóla og 0,5% af veltu löggæslustofnana. Alls eiga aðhalds- ráðstafanir þessar að skila 6,7 millj- arða kr. sparnaði. Heilbrigðis-, sjúkra- og öldrunarstofnunum verð- ur þó ekki gert að mæta þessum hag- ræðingarkröfum. Vaxtakostnaður er næststærsti útgjaldaliður ríkisins og er áætlað að hann verði 88,1 milljarður á næsta ári og hækki um 6,2 milljarða frá fyrri áætlunum. Fjárlagafrumvarpið hvílir á þeirri forsendu að hagvöxtur verði 2,7% á næsta ári, verðbólgan 3,9% og at- vinnuleysið fari niður í 5,3%. 2,8 milljarða króna halli 2013  Útgjöldin hækka um 13,7 milljarða og skatttekjur aukast um 29 milljarða í fjárlagafrumvarpi ársins 2013  Kröfur um aðhald eiga að skila 6,7 milljarða sparnaði  Tekjur af veiðileyfagjaldi 14,9 milljarðar Ljósmynd/Fjármálaráðuneytið Fjármálaráðherra Oddný G. Harðardóttir kynnir fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2013 fyrir fréttamönnum í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Frumvarp til fjárlaga 2013 Ríkið ætlar að afla 3,3 millj- arða kr. með hækkun á al- mennu tryggingagjaldi um 0,3 prósentustig til að mæta auknum vexti útgjalda í al- mannatryggingakerfinu. Tekið er fram að samhliða þessari hækkun lækki atvinnutrygg- ingagjald um 0,3 prósentustig með hliðsjón af minnkandi at- vinnuleysi. Því eigi hlutfall tryggingagjalds hjá atvinnu- rekendum að haldast óbreytt á milli ára. „Hækkun almenns tryggingagjalds um 0,3 pró- sentustig er ráðstöfun sem talin er nauðsynleg til þess að styrkja tekjuöflun næsta árs í ljósi vaxandi fjárþarfar al- mannatryggingakerfisins sem almennt tryggingagjald hefur náð að fjármagna að æ minna leyti undanfarin ár,“ segir í greinargerð frumvarpsins. Hækkun skili 3,3 milljörðum TRYGGINGAGJALD Kristján Þór Júlíusson, sem situr fyrir Sjálfstæðisflokk í fjárlaganefnd, segir „fyrirkvíðanlegt“ að horfa upp á þá niðurstöðu sem búast megi við ef fyrirhugað fjárlaga- frumvarp gengur eftir. „Það er eftirtektarvert að heyra af áhyggjum þeirra sem lögðu frumvarpið fram. Þeir telja vaxtagreiðslur ríkissjóðs of miklar. Þrátt fyrir það hafa þeir seinkað áætlun sem gerði ráð fyrir því að heildarjöfnuði á hallalausum rekstri yrði náð fyrr en þeir höfðu áformað. Á sama tíma eru aukin framlög á ýmsum sviðum bótaflokka þó að ríkissjóður sé rekinn með halla. Eins er vitað um útgjöld sem bíða greiðslu eins og Íbúðalánasjóður er gott dæmi um. Jafnframt hefur verið mikil umræða um lífeyrisiðgjöld ríkissjóðsins. Því eru ótal gjöld sem virðast vanmetin. Það gefur því ekki til- efni til mikillar bjartsýni þegar skoðað er hversu hróp- andi ósamræmi er á milli fjárlagafrumvarpsins, fjárlag- anna sem samþykkt eru og síðan þeirrar niðurstöðu sem er í ríkisreikningi ár hvert. Þar er vöxtur útgjalda á hverju stigi máls. Því set ég mikinn fyrirvara við það sem í frumvarpinu segir. Enn fremur vekur það spurningar hvernig menn horfa á afkomu ríkis- sjóðs til lengri tíma, þegar fjárfesting á Íslandi er enn í sögulegu lágmarki. Á þeim tímum er enn verið að boða breytingar og hækkanir á sköttum. Í mínum huga er þetta kokteill sem gengur ekki upp. Því miður,“ segir Kristján. „Það má líka minna á að það eru þónokkrir ný- ir skattar sem kallaðir hafa verið „tímabundnir“. En ég hef ekki heyrt eitt einasta orð, frá því ágæta fólki sem ræður för í ríkisfjármálum, við hvaða aðstæður þeir ættu að niður falla. vidar@mbl.is Hrópandi ósamræmi Kristján Þór Júlíusson Margrét Tryggvadóttir, fulltrúi Hreyf- ingarinnar í fjárlaganefnd, telur of mikla fjármuni fara í vaxtakostnað auk þess sem hún segir að hægt hefði verið að ganga lengra í skattlagningu. „Það er ákaflega blóðugt að sjá allan þann pening sem fer beint í vaxtakostnað. Við verðum með einhverjum ráðum að lækka þann kostnað. Það gerum við með því að endursemja um okkar skuldir,“ segir Margrét sem kallar eft- ir frekari skattlagningu. „Hvað varðar tekjuhliðina þá finnst mér löngu kominn tími á að leggja einhverja sérstaka skatta á þau fyrirtæki sem beinlínis hafa hagnast vegna ástandsins. Til að mynda fyrirtæki sem grætt hafa á gengi krónunnar eða fjármálafyrirtæki sem hafa hagnast á braski með eignir þrotabúanna og endurheimtu af lánum. Það er verið að gera það að vissu leyti með bankaskattinum en hann gengur ekki nógu langt. Eins hafa öll fyrirtæki sem eru í útflutningi grætt og það má skattleggja þau frekar,“ segir Margrét. Hún er hlynnt aukinni skattlagningu á ferðaþjónustu. „Ég myndi samt ekki hafa gert þetta svona snögglega. Í svona geira eru ferðir bókaðar langt fram í tímann og ég held að það sé óraunhæft að skella þessum skatti á eftir nokkra mánuði. En ég ítreka að mér finnst fullkomlega eðlilegt að ferða- þjónustan borgi virðisaukaskatt á við önnur fyrirtæki.“ Hún kallar eftir frekari niðurfellingu lána. „Einhverjir hafa fengið úrlausn sinna mála en það virðist happdrætti hver fær hvað og hvernig,“ segir Margrét. Hefði mátt ganga lengra Margrét Tryggvadóttir „Mér sýnist að ríkisstjórnin ætli enn á ný að ýta vand- anum á undan sér. Þau settu sér markmið með skýrslu um jöfnuð í ríkisfjármálum fyrir árin 2009-2013 og þau standast ekki þau markmið, sama hvert litið er. Við erum með hagvöxt sem er knúinn áfram af einkaneyslu, sem samanstendur að mestum hluta af úttekt á séreign- arsparnaði og yfirdráttarlánum á meðan fjárfesting er í raun sáralítil þó að hún mælist um 14%. En ef við tökum mið af því á hvaða grunni hún er mæld er þetta afar lítið að byggja á,“ segir Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokks í fjárlaganefnd, um fjárlaga- frumvarpið sem kynnt var í gær. Hann segir vanda heil- brigðiskerfisins enn óleystan. Landspítalinn sé á yf- irdrætti frá ríkissjóði og fjórar heilbrigðisstofnanir hafi þurft að leita til banka til að fjármagna rekstur sinn. Þá séu hvergi merki um að leysa eigi vanda Íbúðalánajóðs og nefnir að bæta þurfi eiginfjárhlut- fall hans um a.m.k. 12 milljarða. Hann segir þó jákvætt að „loksins sé tekið mark á tillögum framsókn- armanna um að bæta hag barnafólks. Það eigi að gera bæði með því að hækka vaxtabætur og að styrkja Fæðingarorlofssjóð.“ Þá gerir Höskuldur athugasemd við að í fjárlagafrumvarpinu sé gert ráð fyrir að 8 milljarðar verði sóttir í ríkissjóð með sölu á eignum ríkisins. „Það liggur ekki fyrir hvaða eignir það eru og óvíst hvort það gangi upp að selja þær.“ Höskuldur bendir á að hjá fjármálaráherra hafi komið fram að ef ekki tekst að selja eignirnar verði tekjurnar sóttar í arðgreiðslur. Engin innistæða fyrir hagvexti Höskuldur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.