Morgunblaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 27
sjónvarpsþátta um erlend málefni, var sérfræðingur í greiningardeild hjá Kaupþingi og ritstýri mán- aðarritum fyrirtækisins á ensku um íslenskan fjármálamarkað og fleira 2000-2002, var forstöðumaður sam- skipta- og upplýsingasviðs við lög- gæsluverkefni Evrópusambandsins í Bosníu og Herzegovínu á árunum 2002-2004, var upplýsingafulltrúi og síðar framkvæmdastjóri Norrænu friðareftirlitssveitarinnar á Srí Lanka 2004-2007, forstöðumaður al- þjóðlegra hjálparstarfa Össurar hf. fyrir bækluð fórnarlömb á stríðs- þjáðum svæðum, s.s. í Mostar, Ze- nica, Tuzla, Bosníu og Herzegovínu á árunum 2005-2008 og hefur verið fastafulltrúi Samtaka atvinnulífsins hjá BUSINESSEUROPE (Evrópu- samtökum atvinnulífsins) með að- setur í Brüssell frá 2009. Jón Óskar sendi frá sér unglinga- bókina Jón Páll – sterkasti maður heims, útg. 1987, og Púðurtunna í Paradís, um borgarstyrjöldina á Srí Lanka, útg. á Indlandi 2010. Starfsferill Ingu Bjarkar Inga Björk lauk stúdentsprófi frá MR 1981, lagði stund á frönskunám í Montpellier, stundaði nám í stjórn- málafræði við Freie Universitaet Berlín og útskrifaðist úr stjórn- málafræði frá HÍ 1988. Inga Björk hefur lengst af starf- að við kvikmyndagerð, var fram- kvæmdastjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík 1989, og framkvæmda- stjóri Listahátíðar í Reykjavík 1990. Hún starfaði hjá Filmkontakt Nord í Kaupmannahöfn í þrjú ár sem vann að því að liðsinna kvik- myndaleikstjórum við gerð og fjár- mögnun norrænna stutt- og heim- ildarmynda. Hún starfaði síðan hjá Íslensku kvikmyndasamsteypunni og kom að framleiðslu margra eftirminnilegra íslenskra kvikmynda á tíunda ára- tugnum. Þá var hún skrifstofustjóri hjá Kvikmyndasjóði um skeið. Á síðustu árum hefur Inga Björk aftur snúið sér að kvikmyndagerð og hefur m.a. unnið fyrir Saga Film og núna síðast hjá True North. Fjölskylda Eiginkona Jóns Óskars er Berg- dís Ellertsdóttir, f. 25.10. 1962, sendiherra og fyrrv. aðstoðarfor- stjóri EFTA. Hún er dóttir Ellerts B. Sigurbjörnssonar, lengst af yf- irþýðanda hjá RÚV, og Jóhönnu Snorradóttur myndlistarkennara. Börn Jóns Óskars og Bergdísar eru Salvör, f. 26.3. 1994; Katla, f. 17.3. 1996; Sturla, f. 27.8. 2004, og Hjalti, f. 30.3. 2006. Dóttir Ingu Bjarkar er Sigríður María Sigurðardóttir, f. 19.2. 1997, eldheit knattspyrnustúlka sem hef- ur leikið með yngri flokkum KR og verið valin í leikmannahóp yngri landsliða. Systir Jóns Óskars og Ingu Bjarkar er Lára, f. 11.8. 1959, sagn- fræðingur og skrifstofumaður, bú- sett á Seltjarnarnesi en dóttir henn- ar er Sofia Sólnes Moulder, f. 1995. Foreldrar Jóns Óskars og Ingu Bjarkar eru Júlíus Sólnes, f. 22.3. 1937, verkfræðingur og fyrrv. alþm. og ráðherra, og Sigríður María Ósk- arsdóttir, f. 18.3. 1938, versl- unarmaður. Úr frændgarði Jóns Óskars og Ingu Bjarkar Gísli Björnsson sjóm í Hafnarfirði María Guðmundsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Guðmundur Hjálmarsson vélstj. í Rvík Jóna Sigríður Guðjónsdóttir húsfr. í Rvík Hólmfríður Jónsdóttir húsfr. Páll Árnason lögregluþj. í Rvík, systursonur Skúla á Keldum, afa Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis, af Keldna- og Víkingslækjarætt Jón Óskar og Inga Björk Sólnes Júlíus Sólnes verkfr. og fyrrv. ráðh Sigríður María Óskarsdóttir húsfr. í Rvík Lára Ásgerður Guðmundsdóttir húsfr. í Rvík Óskar Aðalsteinn Gíslason skipamiðlari í Rvík Ingiríður Pálsdóttir húsfr. á Akureyri Jón Sólnes alþm. og bankastj. á Akureyri Guðmundur Þorkelsson sjóm. á Ísafirði, systursonur Guðnýjar Jónsdóttur, ömmu prófessoranna Halldórs og Jónasar Elíassona Páll Pálsson organisti í Hafnarfirði Kristín Árnadóttir húsfr. í Rvík Jón Árnason prentari og stjörnuspekingur Á eftirlitsferð Jón Óskar á frið- argæsluárunum. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2012 haltu þér við efnið í hárið fæst á hársnyrtistofum 90 ára Anna Sigurðardóttir Halldóra Jóhannsdóttir Svana Eyjólfsdóttir Sæmundur Pálmi Jónsson 80 ára Guðrún Ingólfsdóttir Hermann Guðmundsson Kolbeinn O. Sigurjónsson Svava Ingimundardóttir Tómas Einarsson 75 ára Guðný Eygló Guðmundsdóttir Halldór Þráinn Sigfússon Júlíus Axelsson Kristján Steinason María Gerður Hannesdóttir Pétur R. Kristjánsson 70 ára Anna María Sigurgeirsdóttir Brynja Einarsdóttir Jóhann Ólafur Ársælsson Þórunn Pálma Aðalsteinsdóttir 60 ára Anna Guðný Guðjónsdóttir Anna María Hafsteinsdóttir Brynhildur Halldórsdóttir Guðrún Freysteinsdóttir Helga Arnþórsdóttir Henry Henriksen Hilmar K. Viktorsson Jacobsen Lára Axelsdóttir Sara Harðardóttir Sigríður Ólöf Björnsdóttir Sigurður A. Jósefsson Sigurður G. Haraldsson Sigurjón Bragi Sigurðsson Skúli Ólafsson Zigmas Genutis Þórunn Símonardóttir Þuríður Jónsdóttir 50 ára Adam Podlewski Bryndís Jónasdóttir Helen Svala Meyers Indíana Auður Ólafsdóttir Jakob Ingi Jakobsson Jóna Jónsdóttir Manuel António Quintino Batista Sigurður Kári Sigfússon Sæmundur Kristinn Egilsson 40 ára Ásþór Þórisson Edin Zutic Finnur Guðni Þórðarson Guðrún Erla Árnadóttir Guðrún Inga Blandon Jakob Valgeir Flosason Jensína Guðrún Hjaltadóttir Jolanta Piotrowska Kristín Magdalena Ágústsdóttir Malgorzata Purwin Sigurjón Karel Rafnsson 30 ára Anna Dóra Gunnþórsdóttir Benedikt Ólafsson Dagmar Ýr Stefánsdóttir Edmunds Zumbergs Emilia Malgorzata Wieczorek Helga Sjöfn Magnúsdóttir Karl Jónatan Kárason Magdalena Maria Pasternak Mengke Chen Unnur María Axelsdóttir Þóra Pétursdóttir Ösp Árnadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sigrún er íþrótta- fræðingur frá Íþrótta- kennaraskóla Íslands og er nú bankastarfsmaður. Maki: Haraldur Þorvarð- arson, f. 1977, íþrótta- fræðingur. Börn: Birta, f. 2000 (stjúpd.) Kolbeinn Ari, f. 2011. Foreldrar: Þórður Ólafs- son, f. 1938, fyrrv. bóndi, og Guðný Björg Ósk- arsdóttir, f. 1949, versl- unarmaður. Sigrún Dögg Þórðardóttir 30 ára Baldur ólst upp á Húsavík, lauk stúdents- prófi frá MH, prófum í vélaverkfræði frá HÍ og starfar nú hjá Arctic Trucks í Reykjavík. Systur: Ingibjörg Gunn- arsdóttir, f. 1979, fé- lagsráðgjafi, og Sigurveig Gunnarsdóttir, f. 1994, nemi. Foreldrar: Gunnar Bald- ursson, f. 1953, kennari, og Guðrún Reynisdóttir, f. 1958, skólaliði. Baldur Gunnarsson 30 ára Karólína er íþrótta- og tómstunda- fulltrúi og bóndi. Maki: Tryggi Þór Tryggva- son, f. 1975, bóndi á Sveðjustöðum. Stjúpbörn: María Lilja, f. 1999; Tómas Eyþór, f. 2002, og Ísak Andri, f. 2005. Foreldrar: Gunnar Pét- ursson, f. 1956, fram- kvæmdastjóri, og Kristín Björg Hilmarsdóttir, f. 1953, fótaaðgerðarfr. Karólína Gunnarsdóttir Jóhann Jónsson skáld fæddist áStaðarstað á Snæfellsnesi 12.september 1896. Hann var son- ur Jóns Þorsteinssonar, bónda í Ólafsvík, og Steinunnar Kristjáns- dóttur frá Ytra-Skógarnesi. Jóhann lauk stúdentsprófum 1920, hélt utan til Þýskalands 1921 og var þar búsettur síðan. Hann stundaði nám í bókmenntum og germönskum fræðum við Háskólann í Leipzig en lauk ekki prófum enda lengst af heilsuveill af berklum. Þá þýddi hann m.a. verk Gunnars Gunnarssonar á þýsku. Jóhann varð ungur óvenju þroskað og frumlegt skáld. Ljóð hans eru afar tilfinningaþrungin og expressjónísk, rammstuðluð og oft með sterkri hrynjandi, en að öðru leyti óbundin hefðbundu formi. Þó hann hafi ekki afkastað miklu á stuttri ævi, er hann án efa einn af dáðustu snillingum hins nýrómantíska anda. Halldór Laxness var góðvinur Jó- hanns. Eitt af endurminningaritum Halldórs, Grikklandsárið, er að stórum hluta helgað Jóhanni og sam- skiptum þeirra skáldbræðranna, skamma hríð, áður en Jóhann flutti alfarinn til Þýskalands. Þar er að finna frásögn Halldórs af vornæt- urgöngu þeirra félaganna frá Smiðju- stígnum, þar sem Jóhann hélt þá til, og upp að Laxnesi, með viðkomu á veitingahúsi í Rauðarárholtinu, kostu- lega umfjöllun Nikkólínu, unnustu Jó- hanns, og óborganlegar lýsingar á því hvernig þessi Byron Reykjavíkur var í raun poppstjarna síns tíma, troðfyllti salinn í Iðnó með ljóðaupplestri og grætti dætur höfuðstaðarins er hann las með miklum tilþrifum Betlikerl- inguna eftir Gest Pálsson. Allt fram á þennan dag hafa róm- antískir menntskælingar heillað skólasystur sínar með a.m.k. fyrstu línunni úr hinu fræga ljóði Jóhanns, Söknuður. Oft þarf ekki meira til: Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað? Angantýr, endurminningabók El- ínar Thorarensen, er nýlega endur- útgefin og fjallar um ástarsamband þeirra. Jóhann lést í Leipzig 1. september 1932. Merkir Íslendingar Jóhann Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.